Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Blaðsíða 21
Fréttir 21Helgarblað 8.–10. júní 2012
Staða MileStone var
„Stórt núll“ í Maí 2008
og er ein af ástæðunum fyrir því
af hverju Glitnir er reiðubúinn til
að halda áfram að aðstoða okkur í
þessari stöðu.“
Glitnir hélt því lífinu í Mile-
stone með lánveitingum og fram-
lengingum á eldri lánum fram
að bankahruninu 2008. Með-
al annars kemur fram í skýrsl-
unni að lánið til Vafnings hafi ver-
ið endurfjármagnað í hverjum
mánuði eftir að það var gjaldfall-
ið. Þetta kemur fram í tölvupósti
Arnars Guðmundssonar, fjár-
málastjóra Milestone, frá því í júní
sem vísað er til í skýrslunni. „Lán-
um hjá Glitni tengdum Vafningi
og Svartháf hefur hingað til verið
framlengt um 1 mán í senn en það
gerist mjög seint og því eru þessi
lán í raun alltaf gjaldfallin.“
Glitnir hélt því lífinu í Milesto-
ne allt árið 2008 þar til bankinn
sjálfur gat ekki lengur fjármagn-
að í lok september það ár. Hætt
er við því að bankinn hefði fallið
fyrr ef hann hefði hlaupið undir
bagga með eigendum sínum eins
og Milestone. n
Dökk mynd Myndin sem dregin er upp af
starfsemi Milestone, fjárfestingarfélagi Karls
Wernerssonar, í skýrslunni er dökk. Félagið var
orðið ógjaldfært strax í lok nóvember 2007.
AKUREYRI 4627800. KRINGLAN 5680800. SMÁRALIND 5659730. LAUGAVEGUR 5629730.
Við gefum þér ódýrustu vöruna
TAKTU 3
BORGAÐU 2
ALLAR SUMARVÖRUR
H
æstiréttur staðfesti á
fimmtudag fjögurra ára
fangelsisdóm yfir tveimur
erlendum karlmönnum
fyrir hrottalega nauðgun
við Reykjavíkurflugvöll í október á
síðasta ári. Mönnunum er einnig
gert að greiða fórnarlambinu 1,2
milljónir króna í miskabætur.
Mennirnir, Arkadiusz Zdislaw
Pawlak og Rafal Grajewski, voru
ákærðir fyrir að hafa að morgni
sunnudagsins 16. október á síð-
asta ári, tekið konu upp í bifreið
við Laugaveg í Reykjavík og ekið
með hana að Reykjavíkurflugvelli.
Þegar þar var komið nauðguðu
þeir konunni í aftursæti bifreiðar-
innar og neyddu hana með ofbeldi
til samræðis.
Mennirnir játuðu við yfirheyrsl-
ur hjá lögreglu að hafa tekið kon-
una upp í bifreiðina og ekið með
hana að Reykjavíkurflugvelli þar
sem kynferðisleg samskipti hafi átt
sér stað. Framburður þeirra var þó
ekki samhljóða, en báðir neituðu
að hafa neytt konuna til samræðis.
Framburður konunnar þótti
aftur á móti greinargóður og skýr.
Hún sagðist hafa verið á gangi
á leið í verslun þegar mennirnir
tveir hafi boðist til að aka henni í
verslunina og hafi hún þegið það.
Í stað þess að aka þangað hafi þeir
keyrt að Reykjavíkurflugvelli þar
sem þeir samlæstu hurðum bif-
reiðarinnar. Hún hafi reynt að telja
mönnunum trú um að hún væri
smituð af HIV í þeim tilgangi að fá
þá til að hætta ofbeldinu. Þá hafi
hún einnig öskrað en þegar hún
hafi gert það hafi ökumaðurinn
tekið hana hálstaki og lamið hana
í andlitið.
Mennirnir hafa setið í gæslu-
varðhaldi frá því að þeir voru
handteknir í október.
Fjögur ár fyrir nauðgun
n Hæstiréttur staðfesti nauðgunardóm
Hæstiréttur Íslands Hæstiréttur stað-
festi dóm yfir tveimur mönnum sem áður
höfðu verið dæmdir í fjögurra ára fangelsi.