Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Blaðsíða 50
Böðvar Tómasson
Ætlar að halda veislu fyrir
nánustu vini og ættingja.
50 8.–10. júní 2012 Helgarblað
Stórafmæli Böðvar Tómasson verkfræðingur 40 ára 7. júní
31 árs 9. júní
Natalie Portman sem sló í gegn í
kvikmyndinni The Black Swan.
47 ára 10. júní
Leikkonan Elizabeth Hurley sem hefur verið
að gera það gott í þáttunum Gossip Girl upp á
síðkastið.
61 árs 8. júní
Söngkonan Bonnie Tyler sem er hvað þekktust
fyrir lagið Total eclipse of the heart.
Fjölskylda Böðvars
n Foreldrar: Tómas Búi Böðvarsson f. 14.11. 1942 og Ragnheiður Stefáns-
dóttir f. 5.7. 1946
n Maki: Anna Pála Stefánsdóttir, spænskukennari og leiðsögumaður
f. 17.5. 1975
n Börn: Tómas Böðvarsson f. 6.3. 2004, Stefán Böðvarsson f. 22.5. 2006
og Markús Böðvarsson f. 22.5. 2006
n Systkin: Hlynur Tómasson f. 6.8. 1975
Ber alltaf sterkar
taugar til Akureyrar
B
öðvar Tómasson
fæddist á Akureyri
og ólst þar upp. „Það
var mjög gaman að
búa á Akureyri og ég
hef alltaf mjög sterkar taugar
til bæjarins. Akureyri er svo
skemmtileg stærð af bæ með
öllu því sem maður þarf án
þess að vera of stór og í minn-
ingunni var alltaf gott veður
á Akureyri,“ segir Böðvar og
hlær. „Ég átti mikið af vinum
og hjólaði mjög mikið og var
í skátunum. Ég bjó á Akureyri
til 20 ára aldurs en ég kláraði
þá menntaskólann og fór í há-
skóla. Ég var svo í tvö ár í Há-
skóla Íslands og sótti svo um
sérnám í Tækniháskólanum
í Lundi í Svíþjóð og lagði þar
stund á bygginga- og bruna-
verkfræði þar sem ég kláraði
mastersnám árið 1998.“
Eftir námið byrjaði Böðvar
að vinna á verkfræðistofu í
Malmö sem heitir Fire Safety
Design. „Þarna kynntist ég
rosalega miklu af skemmti-
legu fólki, margir af mínum
bestu vinum eru Svíar og
ég fer reglulega til Svíþjóð-
ar, í það minnsta einu sinni
á ári, bæði í vinnuferðir og
skemmtiferðir.“
Hefur tekið þátt í ýmsum
rannsóknum
Böðvar flutti svo heim
snemma árs 2000 og býr nú
á besta stað í Kópavoginum
með konu sinni og þremur
hressum strákum. „Ég kom
heim og hóf störf hjá Verk-
fræðistofu Snorra Ingimars-
sonar og svo flutti ég mig
yfir á stofu sem hét þá Línu-
hönnun árið 2005 sem heit-
ir í dag Verkfræðistofan Efla.
Þar starfa ég sem sviðsstjóri á
bruna- og öryggissviði. Ég hef
verið að sinna alls konar ver-
kefnum, bæði hér heima og
erlendis og mikið tekið þátt
í rannsóknum og er í alþjóð-
legum nefndum varðandi
bruna- og öryggismál.“
Böðvar ætlar að halda
veislu um helgina fyrir nán-
ustu vini og ættingja á heimili
sínu í Kópavoginum.
Er afmælið formlegt eða
óformlegt?
Hverjir mæta í afmælið? Er það
bara fjölskyldan eða eru það vinir og
vinnufélagar líka? Mikilvægt er að
hafa þetta í huga þegar ákveða skal
hvernig ræðu á að semja. Húmor er
beitt vopn í ræðuhöldum en getur
snúist fljótt í höndunum á manni í
„röngum“ hópi.
Eru fleiri ræðumenn?
Munu fleiri halda ræðu? Ef svo er
hvar ert þú í röðinni? Hvað eru hinir
líklegir til að fjalla um í sinni ræðu?
Gott er að athuga það því ekki vilt
þú koma upp á eftir ræðumanni og
flytja nánast eins ræðu.
Um hvað skal tala?
Til dæmis má nefna persónuleika-
einkenni viðkomandi, framtíðina;
hvað hún ber í skauti sér persónulega
og faglega, áhugamál, hvaða gildi
og viðmið hefur afmælisbarnið, hvað
vildi einstaklingurinn verða þegar
hann yrði stór, fólkið í lífi hans og
svona mætti lengi telja. Ef afmæl-
isbarnið er fullorðinn einstaklingur
er ágætis regla að tala ekki bara um
fortíðina heldur leggja einnig áherslu
á núið og framtíðina.
Þema
Skemmtilegt getur verið að hafa
þema eða rauðan þráð í ræðu. Til
dæmis með því að setja hana í sögu-
legt samhengi. Hvað gerðist sögu-
legt á sama degi eða ári og eitthvað
átti sér stað í lífi viðkomandi? Hvaða
lög voru vinsæl á hverjum tíma eða
hvar bjó fjölskyldan?
Góð ráð að lokum
Mundu að verðlauna þig að
ræðuhöldum loknum! Það er fátt
vandræðalegra en ræðumaður
sem er ofurölvi. Þakkaðu fyrir að fá
tækifærið til að halda ræðu, bjóddu
fólki að skála fyrir viðkomandi að
ræðu lokinni, skrifaðu helstu atriði
ræðunnar á minnismiða til að forð-
ast að gleyma henni, æfðu þig áður
en þú flytur ræðuna. Að lokum; góð,
hugljúf eða fyndin ræða getur verið
ógleymanleg afmælisgjöf sem lifir í
minningunni að eilífu.
HEiMild: wriTE-oUT-loUd.coM
Hin fullkomna ræða
Þ
að getur fylgt því tölu-
vert stress fyrir óvana
ræðumenn að halda
tölu í afmæli hjá vin-
um eða ættingjum. Það hafa
flestir orðið vitni að of langri
eða óviðeigandi ræðu og vill
enginn vera í þeim sporum.
Hér koma nokkur ráð sem
hafa ber í huga.
Klár með
ræðuna? Það
borgar sig að
æfa sig heima!
8. júní
1435 - Dómkirkjan í
Uppsölum var vígð.
1624 - Jarðskjálfti skók Perú.
1783 - Skaftáreldar hófust. Í kjöl-
far þeirra fylgdu Móðuharðindin.
1887 - Herman Holle-
rith fékk einkaleyfi á stimpilklukku.
1789 - Jarðskjálftar hófust
á Suðurlandi. Skjálftar komu með
allt að tíu mínútna millibili og
stóðu í viku.
1968 - James Earl Ray var hand-
tekinn fyrir morðið á dr. Martin
Luther King, Jr.
1968 - Robert F. Kennedy var
jarðsettur.
2002 - Íslensk stjórnvöld neituðu
meðlimum Falun Gong-hreyf-
ingarinnar um landvistarleyfi
vegna ótta við mótmæli.
9. júní
1534 - Jacques Cartier
sá Lawrence-fljót fyrstur Evrópu-
búa.
1741 - Ferming barna var lögfest
á Íslandi en hafði áður tíðkast um
aldaraðir.
1878 - Dýragarðurinn í Leipzig var
stofnaður.
1880 - Hornsteinn var lagður
að Alþingishúsinu við Austur-
völl. Húsið var tekið í notkun 1.
júlí 1881.
1943 - Hæstiréttur Íslands sýkn-
aði útgefendur Hrafnkels sögu
Freysgoða, sem höfðu gefið
söguna út án samræmdrar
stafsetningar fornrar. Meðal út-
gefendanna var Halldór Laxness.
1957 - Broad Peak (tólfta hæsta
fjall heims) var klifið í fyrsta sinn.
1963 - Alþingiskosningar voru
haldnar á Íslandi.
1976 - Benny Goodman kom
til Íslands og hélt tónleika
á Listahátíð í Reykjavík. Hann
hefur verið nefndur „konungur
sveiflunnar“.
2006 - Heimsmeistaramótið
í knattspyrnu 2006: Opnunar-
leikurinn var leikinn á Allianz
Arena í München.
10. júní
1190 - Þriðja krossferðin: Friðrik
1. keisari drukknaði í Salef-á á leið
með her sinn til Jerúsalem.
1596 - Willem Barents og Jacob
van Heemskerk uppgötv-
uðu Bjarnarey.
1619 - Uppreisnarmenn
í Bæheimi biðu ósigur fyrir
keisarahernum í orrustunni við
Sablat.
1829 - Fyrsta kappróðrar-
keppnin milli Oxford-há-
skóla og Cambridge-háskóla var
haldin.
1935 - AA-samtökin voru stofnuð
1940 - Seinni heimsstyrj-
öld: Þýskar sveitir náðu að Ermarsundi.
1947 - Saab framleiddi fyrsta bíl-
inn sinn.
1975 - Karl 16. Gústaf Svíakon-
ungur kom í opinbera heimsókn
til Íslands.
1977 - Apple-fyrirtækið setti
fyrstu Apple II-tölvuna í sölu.
1978 - Keflavíkurganga á veg-
um herstöðvaandstæðinga var
gengin frá hliði herstöðvarinn-
ar til Reykjavíkur.
1986 - Fimm þúsund króna
seðill var settur í umferð. Mynd
Ragnheiðar Jónsdóttur var á
seðlinum, en hún var eiginkona
tveggja Hólabiskupa.
1993 - Steinboginn yfir Ófæru-
foss í Eldgjá var fallinn þegar
ferðamannahópur kom að hon-
um. Allt virtist í lagi með hann
tveimur vikum áður.
Merkis-
atburðir