Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Blaðsíða 60
60 Lífsstíll 8.–10. júní 2012 Helgarblað
T
ölvuleikjarisinn Nintendo
kynnti í vikunni á E3-leikja-
ráðstefnunni næstu skref sín
með Wii-tölvuna. Á ráðstefn-
unni í fyrra kynnti Nintendo
til leiks nýja tölvu sem kallast Wii U
og smátt og smátt eru fleiri smáat-
riði að koma í ljós um þessa mögn-
uðu vél sem mun, ólíkt forvera sín-
um, senda frá sér mynd í háskerpu.
Fjarstýring eða hvað?
Nintendo hefur lagt hvað mesta
áherslu á að kynna fjarstýringuna
sem mun fylgja Wii U. Hún ólík flestu
sem sést hefur í leikjatölvuiðnaðin-
um. Fjarstýringin er í raun tölva með
fullkomnum snertiskjá og margs kon-
ar skynjurum. Í gegnum hana geta
spilendur gert ýmislegt. Svo sem spila
leiki áfram þó slökkt sé á tölvunni,
notað á fjölbreyttan hátt í leikjaspilun
og átt í samskiptum við aðra notend-
ur um allan heim. Bæði myndrænt og
með skilaboðum. Ef þú nennir ekki að
slá inn skilaboðin á snertiskjáinn get-
ur þú líka handskrifað þau.
Þar sem fjarstýringin hefur sinn
eigin skjá hefur hann sitt sjálfstæða
hlutverk í leikjaspilun. Auk þess
er hægt að nota hefðbundna Wii-
stýripinnann áfram með Wii U-fjar-
stýringunni. Þannig getur sá sem
spilar til dæmis lagt Wii U-fjarstýr-
inguna á gólfið, horft á golfbolta á
skjánum, brautina í sjónvarpinu og
slegið höggið með hefðbundnu Wii-
fjarstýringunni.
Ekki nóg með það heldur get-
ur hún tengst internetinu og er með
vafra. Hún er því í raun spjaldtölva
líka. Þú getur verið á netinu í fjarstýr-
ingunni á meðan þú spilar leikinn í
sjónvarpinu.
Samkeppnishæf?
Einn helsti galli Wii-tölvunnar var
hvað hún var takmörkuð þegar
kom að grafík. Hún hefur slegið í
gegn hjá yngri notendum og fjöl-
skyldum en tölvuleikjaunnend-
ur sem eru lengra komnir og vilja
meiri hasar hafa ekki sótt í Wii.
Þessu vill Nintendo breyta með Wii
U.
Sem fyrr sagði er grafík vélar-
innar í háskerpu líkt og Xbox 360
og PS3 og telja Nintendo hana
samkeppnishæfa að því leyti. Til
að höfða enn frekar til leikjanörda
mun verða fáanleg svokölluð Wii U
Pro-fjarstýring sem svipar meira til
þeirra stýripinna sem fylgja Xbox
360 og PS3.
Kraftleysi Wii varð til þess að
margir leikjarisar sniðgengu vélina
þar sem „kraftur“ hennar var svo
takmarkaður. Ekki eru allir sann-
færðir um að Wii U verði nægilega
öflug þrátt fyrir mikla bragarbót
frá Wii. Tæknispekingar segja vél-
ina ekki einu sinni standast Xbox
360 og PS3 snúning eins og þær eru
núna, hvað þá þegar Microsoft og
Sony senda frá sér nýjar vélar.
Wii-heimurinn
Líkt og með Wii leggur Nintendo
ekki aðeins áherslu á leikjaspilun
heldur samskiptakerfi sem sam-
einar notendur um allan heim.
Notendur Wii sem og Wii U geta
búið til sína persónu í gegnum tölv-
una og kallast hún Mii. Í Wii U hef-
ur verið búinn til heimur sem kall-
ast Miiverse. Sá heimur er efni í sér
blaðagrein en þar eru möguleik-
arnir gríðarlegir. Þú getur tengst
öðrum notendum beint heim í
stofu og átt við þá samskipti í gegn-
um háskerpumynd og hljóð. Ekki
ólíkt Skype fyrir þá sem þekkja það
samskiptaforrit. Í Miiverse getur
þú haft samband við og séð mynd-
rænt hverjir eru að spila sama leik
og þú, hvaða leikir eru vinsælastir
og margt fleira.
Verðið gæti fælt frá
Það er ljóst að stökkið frá Wii yfir í Wii
U er stórt en verður það nógu stórt til
að ná þeim markhópi sem Nintendo
stefnir að? Hvað sem því líður er ljóst
að Nintendo er að stórbæta Wii-upp-
lifunina og rúmlega það en verðið mun
hafa sitt að segja. Ein af ástæðunum
fyrir því að Nintendo Wii hefur selst í
mun meira mæli en Xbox 360 og PS3 er
verðið. Með nýju fjarstýringunni mun
verðið hins vegar hækka til muna og er
talið að það verði í kringum 600 dollara
eða um 80.000 krónur. Þetta eru þó
óstaðfestar tölur. Nintendo Wii kostar í
dag um 150 dollara en PS3 um 250.
Eins og allar vélar hefur Wii U
kosti og galla en við fyrstu sýn virðast
möguleikarnir endalausir.
asgeir@dv.is
Fjarstýringin
er tölvan Wii U Pro Fjarstýringin í anda Xbox 360 og PS3.
n Vafraðu á meðan þú spilar n Möguleikarnir endalausir n Wii-byltingin
Til í golf? Það hefur aldrei verið svona raunverulegt heima í stofu.
Galaxy S III
að lenda
Nýjasta útgáfan af Galaxy S-
farsímanum, III, er væntan-
leg á markað í júní. Hægt er að
panta eintak frá og með 12. júní
en hann kemur ekki í búðir í
Bandaríkjunum fyrr en 21. júní.
Síminn er fáanlegur í tveimur út-
færslum, 16GB og 32GB. 16GB
síminn verður fáanlegur í bláum
og hvítum lit en 32GB aðeins í
hvítum. Beðið hefur verið eftir
S III með mikilli eftirvæntingu
en S II er einn allra vinsælasti
snjallsími í heimi og stendur
skrefi framar að margra mati en
iPhone.
Myndum af
iPhone lekið
Myndum af nýjasta iPhone-sím-
anum hefur verið lekið á netið.
Ekki hefur fengist staðfest frá
Apple hvort um endanlega út-
gáfu sé að ræða eða frumgerð. Þó
nokkrar breytingar verða gerðar
ef marka má myndirnar. Síminn
verður örlítið lengri og skjárinn
býður upp á stærri upplausn,
bakhliðin verður að mestu úr áli
auk þess sem tengi fyrir heyrna-
tól hefur verið fært á botn sím-
ans. Ýmsar aðrar smávægilegar
breytingar hafa verið nefndar til
sögunnar en sú stærsta virðist
vera vöggutengið (dock conn-
ector) svokallaða en það verður
töluvert minna en á Apple-vör-
um til þessa. Gæti það þýtt að
eldri gerðir af vöggum og öðrum
aukabúnaði virki ekki með nýjum
iPhone.
Wii U-fjarstýringin Er í raun önnur tölva sem býður upp á ótrúlega fjölbreytta spilun.
iess
járnsmíði
Dalvegi 24 • 544 4884 • iess@iess.is
iess
járnsmíði
Dalvegi 24 • 544 4884 • iess@iess.is
l i www.i .i