Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Blaðsíða 72
Enginn
vindur í
Íslandi
lengur?
Linda elskar
gúmmístígvélin
n Athafnakonunni og alheimsfeg-
urðardrottningunni fyrrverandi
Lindu Pétursdóttur er margt til lista
lagt. Greindi hún frá því á Twitter á
fimmtudag að hún hefði nú komið
sér upp sínum fyrsta grænmetis-
garði. Kvaðst hún hafa plantað
gullfallegum og litríkum sumar-
blómum í þokka-
bót og sýndi þar
á sér algjörlega
nýja hlið. „Ég
elska garðyrkju
og garðstörf,
en sérstaklega
að fá að klæðast
gúmmístígvél-
unum!“
Tapa alltaf
n Hvað eiga blaðamaðurinn
Henry Birgir Gunnarsson og útvarps-
mennirnir Þorkell Máni Pétursson
og Þossi sameiginlegt? Allavega
eitt: þeir geta ekki unnið börnin
sín í tölvuleikjum. Henry Birgir
kvartar yfir því á Twitter að 9 ára
sonurinn leggi hann alltaf í Fifa
12 tölvuleiknum. Þossi segir að
þetta sé merki um að elli kerl-
ing sé að ná blaðamanninum
og hann hafi löngu gefist upp á
þessari baráttu.
Máni stingur upp
á því að þeir
stofni félag og
haldi sitt eigið
mót: „Pabbar
sem vilja ekki
spila við börn-
in sín.“
S
iggi stormur er fluttur til Spán-
ar. „Ég hef haft annan fótinn á
Spáni í mörg, mörg ár en svo
fékk ég verkefni hjá Plúsferð-
um nýlega og ég mun starfa sem
fararstjóri á Torrevieja-svæðinu fyrir
þeirra viðskiptavini. Maður getur nú
ekki hafnað tilboði um að vera sólar-
megin í lífinu,“ segir Siggi hlæjandi í
samtali við DV. Börnin þeirra eru öll
komin yfir tvítugt og Siggi segir að
þau séu að hjálpa þeim þarna úti og
skiptist á að koma út og vera heima
að passa húsið og hundinn.
Siggi er alls ekki hættur í veðr-
inu þó hann sé fluttur til Spánar. „Ég
get unnið veðurspána hvar sem er, ég
get unnið þær bæði innandyra og ut-
andyra hér úti. Ég geri spár á hverjum
morgni og tímamunurinn er mér í hag,
ég er alltaf búinn að öllu þegar dagur-
inn er rétt að byrja á Íslandi. Við hjón-
in verðum líka áfram að ritstýra blöð-
unum Hafnarfjörður og Vesturland.
Heimurinn minnkaði svo mikið þegar
tölvurnar urðu svona tæknilegar.“
Siggi segist ekki vita alveg hvenær
þau komi heim aftur. „Það verður
bara að ráðast hvernig það verður,
við munum náttúrulega koma heim
og kíkja hvernig allt er að ganga hjá
drengjunum okkar, hvort hundurinn
sé að fá að borða og svoleiðis.
Ég get ekki neitað því að þessi sól
og hiti hérna úti er alveg æðislegur
og hefur alveg einstaklega góð áhrif á
heilabúið,“ segir Siggi að lokum.
Stormurinn farinn af landinu
n Mun samt fylgjast vel með veðrinu áfram
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 8.–10. júní 2012 65. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
í sól og sælu
Siggi stormur fylgist nú
með íslenska veðrinu frá
Spáni. Hefur það gott þar.
LÁTTU VAÐA Á
MILLJÓNIRNAR!
Sjöfaldur Lottópottur stefnir í 70 milljónir.
Leyfðu þér smá Lottó!
09/06 20
12 | WW
W.LOTTO
.IS
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Skráðu þig sem aðdáanda Lottó á
facebook.com/lotto.is
Eins og
vuvuzela
n Lúðraþytur útgerðarmanna við
Reykjavíkurhöfn á fimmtudag fór
ekki fram hjá nokkrum manni
sem leið átti um nágrennið þann
daginn. Misjöfn var sýn manna á
þennan gjörning. Grínistinn Daníel
Geir Moritz, fyndnasti maður Íslands
í fyrra, sagði á Twitter að augljóst
væri að útgerðarmenn fylgdust
vel með fótbolta. „Þeyta vuvuzela
eins og enginn sé morgundagur-
inn vegna stórmóts í fótbolta.“ EM í
knattspyrnu hefst í dag, föstudag.