Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Qupperneq 14
14 Fréttir 8.–10. júní 2012 Helgarblað
Einar „Boom“
laus úr haldi
Einar „Boom“ Marteinsson, fyrr-
verandi formaður Hells Angels
á Íslandi, er laus úr gæsluvarð-
haldi. Einar hefur setið inni síð-
an 13. janúar en hann bíður nú
dóms ásamt þremur öðrum sem
setið hafa í gæsluvarðhaldi fyrir
sérstaklega hættulega líkamsárás.
Hin þrjú ákærðu voru úrskurðuð
í áframhaldandi gæsluvarðhald í
Héraðsdómi Reykjaness.
Einar er talinn hafa skipulagt
árásina sem var sérlega hrottaleg
og átti sér stað í Hafnarfirði þann
22. desember síðastliðinn. Þar var
ráðist inn til konu og henni mis-
þyrmt harkalega, bæði líkamlega
og kynferðislega. Einar var ekki á
staðnum þegar árásin átti sér stað
en er talinn hafa skipulagt árásina
sem var hefndaraðgerð. Hann hef-
ur neitað aðild að árásinni og seg-
ist ekki hafa þekkt fórnarlambið
persónulega.
Alls voru sex ákærð í málinu en
fjögur hafa setið í gæsluvarðhaldi.
Einar var eins og áður sagði
formaður Vítisengla á Íslandi eða
Hells Angels. Hann hætti sem for-
maður þeirra meðan hann sat
inni. Hann hringdi í DV úr gæslu-
varðhaldinu og tilkynnti að hann
væri hættur í samtökunum.
Dóms er beðið í málinu en
samkvæmt heimildum DV verður
hann kveðinn upp þann 18. júní
næstkomandi.
Engin ævisaga
Útgáfufélagið Sena hefur
ákveðið að hætta við útgáfu fyr-
irhugaðrar ævisögu Annþórs
Kristjáns Karlssonar sem nú
situr í gæsluvarðhaldi grun-
aður að hafa orðið samfanga
sínum að bana, auk þess sem
ákærur fyrir fjölmörg gróf of-
beldisbrot á hendur honum og
fleirum eru nú til meðferðar í
dómskerfinu. Sölvi Tryggvason
ætlaði að skrifa ævisöguna en
hann hafði áður tekið viðtal við
Annþór fyrir sjónvarpsþátt sinn
á Skjá Einum þar sem Annþór
birtist áhorfendum sem nýr
og breyttur maður. Jón Þór Ey-
þórsson, deildarstjóri bóka-
deildar Senu, staðfesti við RÚV
að ævisagan hafi verið söltuð.
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220
Sumar 2012
Kynnum nýja vörulínu
25% afsláttur
lindesign.is
0 kr sendingargjald
fram á laugardag
J
óhann Traustason og Guð-
björgu Ingu Guðjónsdóttur
þekkja flestir sem Jóa og
Guggu en þau vöktu athygli
þegar fréttaskýringaþátturinn
Kompás fylgdi þeim eftir og fjall-
aði um líf þeirra sem langt leiddra
fíkniefnaneytenda. Þau hafa nú ver-
ið edrú í rúmlega eitt ár en þurftu að
mæta í Héraðsdóm Reykjavíkur á
fimmtudag til að svara fyrir gamlar
syndir.
Sátt við dómana
Þá var tekin fyrir ákæra á hendur
þeim báðum fyrir að hafa í febrúar
2009 rænt Lyf og heilsu í Austurveri,
þar sem Gugga ógnaði starfsmanni
lyfjaverslunarinnar með sprautu-
nál og hníf og krafðist þess að fá af-
hent lyfið Contalgin, sem hún fékk.
Gugga hafði á brott með sér þrjár
pakkningar af lyfinu og komst und-
an í bifreið sem Jói ók. Í samtali við
DV segir Gugga að atvikið hafi átt
sér stað þegar hún var sem veikust
af neyslunni.
Dómari dæmdi Guggu í 10
mánaða skilorðsbundið fangelsi en
Jói var dæmdur í átta mánaða fang-
elsi skilorðsbundið til tveggja ára.
„Ég er sátt við þessa dóma,“ seg-
ir Gugga. „Þetta var þegar ég var
svakalega veik í neyslu. Ég hafði
aldrei áður gert svona og hef aldrei
gert það aftur.“ Aðspurð hvort hún
hafi náð botninum þegar hún rændi
verslunina segir hún: „Ég veit það
ekki, mér fannst ég vera alltaf svo-
lítið langt niðri, en jú, þetta kannski
hjálpaði mér seinna meir að fara í
meðferðina og verða edrú og svona.“
Hefðu ekki þolað að fara í fangelsi
Gugga hélt upp á eins árs
edrúafmæli sitt þann 1. maí síðast-
liðinn og segir lífið aldrei hafa ver-
ið jafn gott. Þau Jói vinna saman hjá
Samhjálp í Stangarhyl þar sem þau
fá að „… þjónusta fyrir Jesú Krist,“
sem hún segir þau elska. „Núna bý
ég við gleði, frið og fögnuð. Það er
svona fögnuður inni í mér og of-
boðslega mikið þakklæti. Ég hlakka
til að vakna og það er ekki þessi kvöl,
þannig að lífið er bara dásamlegt
í dag. Þetta er ekkert alltaf auðvelt,
en það er dásamlegt hversu vel það
hefur gengið hjá okkur.“
Jói grípur orðið og segist vera
ánægður og þakklátur fyrir að dóm-
arinn hafi við dómsuppsögu tek-
ið tillit til þess að þau hafi hætt í
neyslu. „Dómarinn tók tillit til þess
hvað við erum að gera núna. Það er
nefnilega dálítið magnað. Ég er ekk-
ert viss um að við hefðum þolað það
að fá einhvern fangelsisdóm á okk-
ur núna.“
Hann segir edrúmennskuna
ganga framar björtustu vonum.
„Það gengur svo miklu betur en
maður hefði nokkurn tímann þor-
að að vona. Þetta er búið að vera
svakalega erfitt, en við vorum bara
að koma af þannig stað að mað-
ur átti alltaf von á því að líkaminn
myndi bara öskra á þetta kjaftæði
sem við vorum að nota. En við höf-
um einhvern veginn fengið að vera
laus við það. Við erum náttúru-
lega búin að vera svakalega dugleg í
prógramminu. Við erum í AA og við
erum í kirkjunni og svo hefur Sam-
hjálp stutt vel við bakið á okkur. Lífið
er yndislegt.“
„Lífið er yndislegt“
n Jói og Gugga fengu dóm fyrir gamlar syndir n Hafa verið edrú í rúmlega ár„Ég hlakka
til að vakna
og það er ekki
þessi kvöl, þannig
að lífið er bara
dásamlegt í dag
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Edrú og ánægð Jóhann Traustason og
Guðbjörg Inga Guðjónsdóttir sem eru betur
þekkt sem Jói og Gugga, fengu skilorðsbundinn
dóm síðastliðinn fimmtudag, fyrir rán sem þau
frömdu árið 2009. Þau hafa síðan snúið við
blaðinu og eru edrú í dag. mynd Sigtryggur ari