Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Page 19
þykktur. Áður höfðu útgerðarmenn getað krafist þess að menn ynnu hvíldarlaust jafnvel sólarhring- um saman. Vinnuveitendur héldu því fram að lögbundinn lágmarks- hvíldartími gæti gengið að útgerð dauðri. „Einfaldasta og algengasta röksemdin gegn kjarabótum er sú að þar sem vinnuveitandinn fari á hausinn gangi hann að tiltekn- um kröfum launþega, sé það verst fyrir launþegana sjálfa að krefjast kjarabóta,“ segir Jón og bendir á að dómur sögunnar á röksemdafær- slu útgerðarmanna þriðja áratugar síðustu aldar sé harður. „Kannski hélt einhver einlæglega á þriðja áratugnum að lögbundinn hvíldar- tími myndi setja útgerðina á haus- inn, rétt eins og fáeinir sakleysingj- ar kunna að halda í dag að eðlileg gjöld á útgerðina setji hana á haus- inn,“ segir Jón. „Í dag sjá allir að bar- áttan gegn vökulögunum var sið- laus í nákvæmlega þeim skilningi. Það er sennilegt að þess verði ekki langt að bíða að aðgerðir útgerðar- innar gegn breytingum á fiskveiði- stjórnunarkerfinu verði dæmdar á sama hátt.“ Fréttir 19Helgarblað 8.–10. júní 2012 „Pólitískt siðleysi“ að binda flotann n Sagan mun dæma aðgerðirnar n Útgerðarmenn hafa ítrekað beitt álíka aðferðum „Þess vegna er líka skýrasta og besta dæmið um pólitískt sið- leysi að berjast fyrir einkahagsmunum í nafni almannahagsmuna. „Vélskip til sölu“ A ðvaranir útgerðarmanna um efnahagslegar afleiðingar vegna breytinga og lækkandi arðhlutdeildar þeirra eru ekki nýjar af nálinni. Á þriðja áratug síð- ustu aldar gengu útgerðarmenn á Ísafirði svo langt að auglýsa skipa- flota bæjarins til sölu nokkrum dög- um fyrir kosningar vegna andstöðu sinnar við stefnu jafnaðarmanna á Ísafirði. Fjallað er um deilurnar í bókinni Vindur í seglum, sögu verkalýðsfélaga á Vestfjörðum eftir Sigurð Pétursson, bæjarfulltrúa á Ísafirði. „Miklar pólitískar deilur urðu þessu samfara þar sem fulltrúar at- vinnurekenda og bankanna deildu á forystu jafnaðarmanna á Ísafirði, en jafnaðarmenn töldu á ferðinni eitt stórt samsæri um að koma atvinnu- málum kaupstaðarins á kné,“ seg- ir í bókinni og við bætt að pólitískur undirtónn málsins hafi verið augljós. Tvö vikublöð voru á þessum tíma gefin út í Ísafjarðarkaupstað, Vestur- land, blað atvinnurekenda og íhalds- manna annars vegar, og Skutull, af jafnaðarmönnum og verkalýðshreyf- ingunni. Flotinn auglýstur Ellefu vélbátar á Ísafirði og í Hnífsdal voru auglýstir til sölu í Vesturlandi í lok janúarmánaðar árið 1927. Á sömu síðu og auglýsing Íslandsbanka birt- ist í Vesturlandi, blaði íhaldsmanna, ritaði útibússtjóri bankans á Ísafirði grein undir heitinu „Útgerð og bæjar- stjórnarmeirihlutinn.“ „Hefur ekki öll framkoma þeirra verið látlaus ofsókn á hendur at- vinnurekendum?“ skrifaði Magnús Thorsteinsson útibússtjóri Íslands- banka í heilsíðugrein sem vafðist í kringum auglýsingu bankans. „Ég minnist þess ekki að hafa verið á fundi hér, þar sem aðalforingi „ör- eiganna“, tekjuhæsti maður bæjarins, ekki hefir haldið æsinga- og níðræð- ur um atvinnurekendurna.“ Magnús segir í greininni að meirihluti bæjar- stjórnarinnar sé „… merkilega fund- vís á nýja útgjaldaliði.“ Engin tilviljun Alþýðuflokksmenn töldu að það væri engin tilviljun að í sömu vikunni og auglýsing Íslandsbanka birtist ætti að kjósa þrjá menn í bæjarstjórn. Á þessum tíma var þjóðnýting út- gerðar á stefnuskrá Alþýðuflokksins. „Ekki tókst íhaldsmönnum að slá á meirihluta jafnaðarmanna á Ísafirði, þrátt fyrir alvarlegt útlit í atvinnumál- um bæjarins,“ skrifar Sigurður Péturs- son um málið í bók sinni. „Eftir stóð sú spurning hvernig forysta Alþýðu- flokksins og verkalýðshreyfingu ætl- aði að vinna á þeim vanda sem at- vinnulífið var ratað í.“ Af átján bátum stærri en 20 tonn sem gerðir voru út frá bænum árið 1926 voru átta eftir tveimur árum síðar. Rússarnir koma Við gjaldþrot hinna Sameinuðu verslana losnaði um eignir félagsins þar á meðal eignir Ásgeirsverslun- ar í Neðstakaupstað á Ísafirði. Eign- ir verslunarinnar voru til að mynda hafskipabryggja, saltfiskreitur og byggingar. „Forysta bæjarins ákvað árið 1927 að leita eftir kaupum á eign- um í samkeppni við togaraútgerðina í bænum. Bærinn varð hlutskarpari og varð af því nokkur hvellur,“ segir í bók- inni Vindur í seglum. Fyrsti samvinnufélagsbáturinn, Sæbjörn kom til hafnar á Ísafirði á Þorláksmessu 1928. Hann var fyrstur í röð fimm báta sem Samvinnufélag Ísfirðinga lét smíða í Noregi. Sam- vinnufélag Ísfirðinga var fyrsta út- gerðarsamvinnufélagið á Íslandi. Það var stofnað af sjómönnum með stuðningi verkalýðsfélaga og bæjar- yfirvalda á Ísafirði auk þess sem rík- ið veitti lánum tryggingu en þó aðeins eftir að gengið hafði verið á verka- lýðsfélögin og bæjarfélagið. Rússarn- ir voru þeir kallaðir, bátar samvinnu- félagsins. atli@dv.is Flotinn til sölu Auglýsing Íslandsbanka í Vesturlandi, blaði íhaldsmanna. Auglýsingin var birt í lok janúar árið 1927 og var nokkuð grímulaus hótun til bæjarbúa í miðjum kosningum. Bæjarbryggjan á Ísafirði Aðalbryggja Ísafjarðar var bæj- arbryggjan svokallaða. Ísafjarðarbær eignaðist hana árið 1923 og lét stækka hana. Þar lögðust millilandaskip að bryggju. fyrir lífiðfjárfesting gluggar og hurðir Faris ehf. Gylfaflöt 16-18 112 Reykjavík s: 5710910 www.faris.is 10 ára ábyrgð Skoðaðu lausnir fyrir ný og eldri hús á faris.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.