Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Side 24
24 Erlent 8.–10. júní 2012 Helgarblað Bin Laden-pLottið spiLLir BóLusetningu V antraustið hefur aðeins aukist í ljósi fregna af herferð CIA,“ sagði í bréfi sem InterAction, sem fer fyrir nærri 200 bandarísk­ um óháðum samtökum, sendi David Petraeus, yfirmanni CIA, í febrúar síðastliðnum. InterAction lýsti þarf gríðarlegum áhyggjum sínum vegna þess að í leit stjórnvalda í Banda­ ríkjunum að Osama bin Laden hafi meðal annars verið farið í falska bólusetningarherferð. Sú herferð skilaði því reyndar að það tókst að hafa upp á bin Laden í Abbottabad. En hún gróf undan vinnu sem staðið hafði um áratugaskeið í baráttunni gegn lömunarveiki. Sjaldan fleiri tilfelli Á síðasta ári var tilkynnt um 198 til­ felli af lömunarveiki í Pakistan. Sú tala hefur ekki verið hærri í fimmtán ár og var heimsmet það ár samkvæmt gögnum Global Polio Eradication Initiative (GPEI) sem vinnur að því að uppræta lömunarveiki í sam­ starfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnun­ ina (WHO), Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og Rotary International. Börn undir fimm ára aldri eru viðkvæmust fyrir lömunarveiki sem breiðist út eins og vírus og leiðir, líkt og nafnið gefur til kynna, til lömun­ ar og í einhverjum tilfellum, dauða. Síðan alþjóðlegt átak í baráttunni gegn lömunarveiki hófst árið 1988 hefur fjöldi tilfella á heimsvísu hrap­ að. Í Pakistan, Afganistan og Nígeríu er veikin þó enn landlægur faraldur. Bólusetning með lyfleysu En ástandið í Pakistan gremst Inter­ Action og yfirvöldum sem barist hafa fyrir því að bólusetja sem flest börn í ljósi þeirrar staðreyndar að CIA not­ aði falsað bóluefni á síðasta ári til að safna upplýsingum um Osama bin Laden. Það var fyrir rétt rúmlega ári síðan, í maí 2011, sem bin Laden var ráðinn af dögum í leynilegri aðgerð banda­ rískra hermanna í dvalarstað hryðju­ verkaleiðtogans í Abbottabad. Í síðasta mánuði var greint frá því að pakistanski læknirinn Shakil Afridi hefði verið dæmdur í 33 ára fangelsi fyrir að aðstoða CIA í ráðabrugginu. Leon Panetta, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hafði látið hafa eft­ ir sér í janúar síðastliðnum að Afridi ætti að öðrum ólöstuðum hvað mest­ an heiður af því að Bandaríkjamönn­ um tókst að hafa uppi á bin Laden. Afridi stýrði hinu falska bólusetn­ ingarátaki í Abbottabad. Bandaríkja­ menn hafa krafist lausnar læknis­ ins en yfirvöldum í Pakistan er ekki skemmt og var hann dæmdur fyrir landráð, hvorki meira né minna. „Framferði Afridi hafði ekki að­ eins neikvæð áhrif á bólusetningar­ átak okkar gegn lömunarveiki, heldur fleiri sambærileg verkefni líka,“ segir Arshad Ahmad Khan, læknir á heil­ brigðisstofnun Nowshera, í samtali við CNN. Sprautur til að gelda börnin Almenningur treystir ekki lengur sprautum frá Vesturlöndum. Í um­ fjöllun CNN um málið er rætt við Alem Zeb, tveggja barna föður, sem neitar að þiggja ókeypis bólusetn­ ingar fyrir börn sín, sjö og tveggja ára. „Lömunarveikidroparnir eyði­ leggja sæðið. Þetta er hluti af herferð Vesturlanda til að taka múslimabörn úr leik,“ segir Zeb á heimili sínu í Pesh awar. Og svo virðist sem fleiri en Zeb séu þessarar skoðunar. Hjálparstofn­ anir hafa leitað til trúarleiðtoga í von um að sannfæra þá um að róa pakist­ anska foreldra sem fullir eru efa­ semda og jafnvel ranghugmynda. Skilaboðin eru skýr: Vesturveldin eru ekki að reyna að gelda börnin ykkar. „Við göngum í hús, í öll hverfi, þar sem fólk hefur neitað að þiggja bólu­ setningu fyrir börnin og reynum að sannfæra fólk með öllum tiltækum ráðum um að við berum aðeins hag barna þeirra fyrir brjósti,“ segir Mo­ hammad Asim, forstöðumaður trúar­ skólans Idara­e­Taleem­ul­Quran. „Flestum dugar að fá heimsókn frá ís­ lömskum bænaprest [sk. imam].“ Risavaxið verkefni GPEI tók umsvifalaust í taumana þegar menn þar á bæ urðu þess áskynja hvernig staðan væri. Neyðar­ aðgerðaáætlun var sett í gang í byrjun ársins og þær aðgerðir hafa borið ár­ angur. Í lok maí höfðu aðeins 16 til­ felli lömunarveiki greinst í Pakistan, samanborið við 36 á sama tímabili í fyrra. Bardaginn er þó hvergi nærri unninn. Hjálparsamtök áætla að til að uppræta lömunarveiki í Pakistan þurfi að bólusetja 95 prósent allra barna þar á hverju ári. Eins og flest­ ir geta ímyndað sér, er það risavaxið verkefnið. n n Baráttan gegn lömunarveiki fékk skell í fyrra n Tilfellum fjölgaði Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Bólusett með dropum Fjöldabólusetningar gegn lömunarveiki eru gjarnan fram- kvæmdar með dropum í munn. Stundum þarf hvert barn að fá fleiri en einn skammt. Mynd: ReuteRS Vantraust Almenningur í Pakistan virðist hafa fyllst vantrausti eftir plott CIA við að ná bin Laden. Mynd ReuteRS Skelfilegur sjúkdómur Afleiðingar lömunarveiki eru margvíslegar. Útlimir rýrna og visna og kvalir geta verið miklar. Mynd ReuteRS „Lömunar- veiki- droparnir eyði- leggja sæðið Háar sektir fyrir mótmæli Neðri deild rússneska þingsins, Dúman, samþykkti á miðvikudag umdeilt lagaframvarp sem kveð­ ur á um gríðarlega hækkun sekta sem mótmælendum verður gert að greiða. Stjórnarandstaðan hafði taf­ ið fyrir frumvarpinu með því að krefjast atkvæðagreiðslu um einstök ákvæði laganna, en í gær lauk umræðum um frumvarp­ ið sem var vísað til efri deild­ ar áður en það lendir á borðinu hjá Pútín. Ef lögin verða stað­ fest munu hámarkssektir þeirra sem skipuleggja ólögleg mótmæli nema milljón rúblum eða rúm­ lega fjórum milljónum króna. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa gagnrýnt laga­ frumvarpið harkalega og segja það skerða stórlega réttindi fólks til friðsamlegra mótmæla. Réðust á eftir­ litsmenn SÞ Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð­ anna, SÞ, urðu á fimmtudag fyr­ ir skotárás þegar þeir ætluðu að heimsækja þorpið Al­Kubeir í Sýrlandi. Tugir þorpsbúa féllu á miðvikudag þegar hópur manna, vopnaðir byssum og hnífum, réðust til atlögu. Ban Ki­moon, framkvæmdastjóri SÞ, greindi frá þessu á allsherjarþingi. Hátt í níutíu manns eru taldir hafa týnt lífi í árásinni en heimildum ber þó ekki saman um fjöldann. Sýr­ lenska þjóðarráðið hefur til dæmis sagt að mun fleiri hafi fallið. Óvíst er hverjir voru að verki en stjórn­ arandstæðingar telja sveitir ráða­ manna í Damaskus ábyrgar. Breyta geðdeild í fangelsi Í Noregi er verið að breyta einni álmu öryggisfangelsis í landinu í réttargeðdeild til að undirbúa komu fjöldamorðingjans And­ ers Behring Breivik, fari svo að hann verði fundinn ósakhæfur. Engin réttargeðdeild í Noregi þyk­ ir nógu örugg til að hýsa manninn. Verdens Gang greinir frá þessu. Með þessu má ljóst vera að Breivik mun dvelja í fangelsi næstu árin, eða áratugina, óháð því hvort hann verður dæmd­ ur sakhæfur eður ei. Robin Koss, varaheilbrigðisráðherra, sagði við fjölmiðilinn að verið séð að byggja réttargeðdeild með hámarksör­ yggisgæslu. Þess má geta að dóm­ ur hefur ekki enn verið kveðinn upp í málinu, en það verður gert á næstu vikum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.