Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Side 35
M eð tvo af heitustu framherjum Evrópu í hópnum sínum stendur Bert van Marwijk frammi fyrir því lúxusvandamáli að þurfa að gera upp á milli þeirra. Robin van Persie ætti með öllu að vera lykilmaðurinn í þessu hollenska landsliði enda skoraði hann eins og hann lysti á nýliðnu tímabili og var markahæstur í ensku úrvalsdeildinni. En Klaas Jan Huntelaar var marka- hæsti leikmaður landsliðsins í undankeppninni með 12 mörk í 8 leikjum og var markahæstur í þýsku Bundesligunni með 29 mörk fyrir Schalke. Það verður grimmt að setja annan þessara framherja á bekkinn en Marwijk spilar með einn framherja. Kvölin er hans. Holland er með eina sterkustu miðju í keppninni, varnarlega og sóknarlega. Það verður athyglisvert að sjá hvort þjálfarinn velji hinn reynslumeiri Nigel de Jong eða hinn unga og bráðefnilega miðjujaxl, Kevin Strootman, sem vakið hefur mikla athygli og er vert að fylgjast með á mótinu. Vörnin er sem fyrr spurningarmerki. Þá skortir varnarmenn í sama klassa og framlínan er. Hollendingar eiga hins vegar fleiri frábæra markmenn í ár en þeir vita hvað gera skuli við. Hollendingar eru taldir líklegir til að fara upp úr riðli dauðans með Þjóðverjum. En það getur allt gerst í honum. R onaldo getur þetta ekki einn,“ segir hinn ungi þjálfari Portúgal, Paulo Bento, um lið sitt. Besti árangur Portúgal er annað sæti árið 2004 þegar liðið, og knattspyrnan, tapaði fyrir Grikklandi. Liðið sem Bento hefur gefið lausan tauminn er til alls líklegt. Bento er nefnilega með besta leikmann Evrópu í liðinu. Cristiano Ronaldo getur, þrátt fyrir varnarorð þjálfarans, unnið leiki upp á sitt einsdæmi. Hann þarf að sanna sig á stórmóti, og hann ætlar að sanna sig. Það er næstum því skrifað á ennið á honum að hann ætlar að koma liðinu upp úr dauðariðlinum og í úrslitaleikinn. Hann ætlar að vera markahæstur og skora sigurmarkið í úrslitunum. Þannig leikmaður er Ronaldo. Og það verður unun að fylgjast með honum leggja sig 110 prósent fram við að ná markmiðum sínum. Liðsíþróttin fótbolti byggist þó, þegar á botninn er hvolft, á liðinu. Aukaleikarar ýmiss konar eru ágætlega sterkir í portúgalska hópnum en stöð- ugleikinn og skortur á breidd gæti reynst þeirra helsti höfuðverkur. Ef Ronaldo nær sér ekki á strik þá veit enginn hver á að skora mörkin því Portúgal, sem fyrr, er fátækt af hreinræktuðum framherjum. Það þarf margt að ganga upp til að Portúgal vinni sinn fyrsta Evrópumeistaratitil. D anir hafa lengi lifað á sigri sínum á EM 1992 en síðan hafa þeir aðeins einu sinni náð á lokamótið. Það var árið 2004 og nú snúa þeir aftur. Rauðir, hvítir og eiturhressir. Eina vandamálið er að þeir lentu í einhverjum erfiðasta riðli sem sögur fara af í stórmóti. Það býst enginn við neinu af Morten Olsen og mönnum hans í B-riðli enda við ramman reip að draga. Kannski verður það helsti styrkleiki þessara frænda okkar. Danir luma á leikmönnum sem í senn geta skemmt áhorfendum og komið á óvart, ef liðsheildin smellur. Það var mikið áfall fyrir Dani að missa mark- vörðinn reynda Thomas Sørensen meiddan úr leik en með Daniel Agger í hjarta varnarinnar, Christian Eriksen á miðjunni og Nicklas Bendtner frammi sem nokkurs konar lykilmannahrygg liðsins þá gæti tæknilega séð allt gerst. Eriksen er iðulega líkt við dönsku þjóðhetjuna Michael Laudrup. Hann leikur með Ajax í Hollandi í dag og er talinn gríðarlega eftirsóttur af stórliðum Evrópu. Hann er klárlega leikmaðurinn sem áhorfendur ættu að gefa gaum. Sparkspekingar eru þó flestir á því að Danir ættu bara reyna að skemmta sér á EM í ár, njóta þess að spila, án þess að eiga raunhæfa möguleika á að komast upp úr dauðariðlinum. Þ jóðverjar koma, eins og svo oft áður, sigurstranglegir til leiks á EM 2012. Undir stjórn Joachim Löw enduðu þeir í öðru sæti á síðasta móti og þriðja sæti á HM 2010. Þjóð- verjar hafa heillað unnendur fallegrar knattspyrnu undanfarin ár og það eru því ekki einungis væntingar um árangur á herðum þýska stálsins, heldur einnig krafa um að þeir vinni með stæl. Með þrjá EM-titla á bakinu (1972, 1980, 1996) þá má færa fyrir því góð rök að kominn sé tími á enn einn titil hjá stórveldinu. Nái Þjóðverjar sér á strik munu áhorfendur og sparkspekingar slefa yfir knattspyrnuveislunni sem þeir munu bjóða upp á. Þá sér í lagi yfir sóknarleikn- um sem leiddur verður af hinum óviðjafnanlega og silkimjúka Mesut Özil. Hvor sínum megin við hann á vængjunum verða þeir Thomas Müller og Lukas Podolski síógnandi. Fyrir aftan þessa þrjá verða hinir grjóthörðu Bastian Schweinsteiger og Sami Kheidira. Og frammi hinn mikli markahrókur Mario Gomez sem skoraði að vild með FC Bayern á tímabilinu. Fái hann tækifæri gæti verið þess virði að fylgjast með hinum unga og efnilega Mario Götze. Þetta þýska landslið hefur alla burði til að fara langt í mótinu enda ætti það á pappírunum að vera næsta ósigrandi. HollandPortúgal DanmörkÞýskaland Byrjunarlið 4-3-3 21 Khalid Boulahrouz 6 Nigel de Jong 2 Gregory van der Wiel 11 Arjen Robben 1 Maarten Stekelenburg 3 John Heitinga 10 Wesley Sneijder 8 Mark van Bommel 16 Robin van Persie 7 Dirk Kuyt 4 Joris Mathijsen Byrjunarlið 4-2-3-1 1 7 10 5 4 3 Simon Poulsen 14 Dennis Rommedahl 6 Lars Jacob- sen 21 William Kvist Stephan Andersen Simon Kjær Michael Krohn-Dehli 8 > Christian Eriksen Nicklas Bentdner 7 Niki Zimling Daniel Agger Byrjunarlið 4-3-3Byrjunarlið 4-2-3-1 Á bekknum Markmenn: Michel Vorm, Tim Krul. Varnarmenn: Wilfred Bouma, Ron Vlaar, Jetro Willems. Miðjumenn: Stijn Schaars, > Kevin Strootman, Rafael van der Vaart. Sóknarmenn: Klaas-Jan Huntelaar, Ibrahim Afellay, Luuk de Jong, Luciano Narsingh Á bekknum Markmenn: Anders Lindegaard, Kasper Schmeichel. Varnarmenn: Andreas Bjelland, Jores Okore, Daniel Wass. Miðjumenn: Christian Poulsen, Lasse Schøne, Michael Silberbauer, Jakob Poulsen, Thomas Kahlenberg. Framherjar: Nicklas Pedersen, Tobias Mikkelsen. Á bekknum Markmenn: Rui Patrício, Beto. Varnarmenn: Ricardo Costa, Rolando, Miguel Lopes. Miðjumenn: Custódio, Ricardo Quaresma, Rúben Micael, Hugo Viana. Framherjar: Hugo Almeida, Nélson Oliveira, Silvestre Varela. Á bekknum Markmenn: Tim Wiese, Ron-Robert Zieler. Varnarmenn: Marcel Schmelzer, Benedikt Höwedes, Per Mertesacker. Miðjumenn: lkay Gündoan, Lars Bender, Toni Kroos, >Mario Götze, Marco Reus. Sóknarmenn: Miroslav Klose, André Schürrle. Þjálfari: Bert van Marwijk Aldur: 60 Þjálfari: Morten Olsen Aldur: 62 Þjálfari: Paulo Bento Aldur: 42 Þjálfari: Joachim Löw Aldur: 52 Riðill B 8 Stýrir öllu Mesut Özil mun stýra sóknarleik þýska landsliðsins og er potturinn og pannan í honum. Aldur: 23 Staða: Miðjumaður Landsleikir:33 Mörk:8 Félagslið: Real Madrid > Lykilmaður Nicklas Bendtner > Lykilmaður Wesley Sneijder > Lykilmaður Mesut Özil 17 Nani Aldur: 25 Staða: Kantmaður Landsleikir: 52 Mörk: 12 Félagslið: Man Utd 19 Mario Götze Aldur: 20 Staða: Miðjumaður Landsleikir: 14 Mörk: 2 Félagslið: Dortmund 17 Kevin Strootman Aldur: 22 Staða: Miðjumaður Landsleikir: 11 Mörk: 1 Félagslið: PSV 8 Christian Eriksen Aldur: 20 Staða: Miðjumaður Landsleikir: 23 Mörk: 2 Félagslið: Ajax > Fylgstu með > Fylgstu með > Fylgstu með > Fylgstu með 1 9 10 3 2 5 Stephen Ward 4 John O‘Shea 7 Aiden McGeady Shay Given Richard Dunne > Robbie Keane 8 Keith Andrews 6 Glenn Whelan Kevin Doyle 11 Damien Duff Sean St Ledger 1 13 16 14 5 Philipp L hm 6 Sami Khedira 20 Jérôme Boateng 7 Bastian Schwei steiger Manuel Neuer Mats Hummels 10 Lukas Podolski 8 Mesut Özil Thomas Müller 23 Mario G m z Holger Badstuber 1 4 5 2 3 Fábio Coentrão 7 Cristiano Ronaldo 21 João Pereira 16 Raul Meireles Eduardo Pepe 8 João Moutinho 17 > Nani Miguel Veloso 23 Hélder Postiga Bruno Alves > Lykilmaður Cristiano Ronaldo 7 Þarf að skora Nicklas Bendtner hefur tröllatrú á sjálfum sér. Nú þarf hann að breyta þeirri ofurtrú í mörk á stórmótinu. Aldur: 24 Staða: Framherji Landsleikir: 48 Mörk: 18 Félagslið: Arsenal 10 Frábær Wesley Sneijder þarf að stíga upp, leika betur en í vetur, og eiga frábært mót. Aldur: 27 Staða: Miðjumaður Landsleikir: 81 Mörk: 23 Félagslið: Inter Milan 7 Allt í öllu Cristiano Ronaldo mun leika á als oddi á EM og vera allt í öllu í sóknaraðgerðum Portúgal. Aldur: 27 Staða: Kantmaður Landsleikir: 90 Mörk: 32 Félagslið: Real Madrid EM 2012 35Helgarblað 8.–10. júní 2012

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.