Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Side 45
Viðtal 45Helgarblað 8.–10. júní 2012 Þvert á flokka,“ seg- ir hún og brosir breitt. „Guðrún Helgadóttir sagði að maður eignaðist fæstu vinina í eigin flokki. Ég er ekkert alveg sammála því. Ég á alveg dásamlega vini í mínum flokki sem ég hefði aldrei viljað vera án í gegnum þá erfiðleika sem hafa verið á liðnum árum. En það eru líka einstaklingar í öðrum flokkum, innan sem utan þings, sem ég hef mikið dálæti á og eru djúpvitrir. Þeirra vinátta er líka góð. Þannig að já, svo sannarlega er hægt að eignast vini á Alþingi.“ Stórkostlegt klúður Evrópumálin eru Þorgerði hugleikin. Það var ekki síst vegna utanríkis- stefnu flokksins sem hún gekk til liðs við hann á sínum tíma. Hún er ein þeirra sem vilja að kosið verði um framhald aðildarviðræðna við ESB samhliða alþingiskosningum á næsta ári og segist þeirrar skoðunar að ESB-umsóknin feli í sér að skapa valkosti fyrir Íslendinga, en ekki taka þá af þeim. Því sé hún eindreg- ið þeirrar skoðunar að málið eigi að klára. „Ríkisstjórnin hefur klúðrað mál- inu stórkostlega,“ segir Þorgerður og hristir höfuðið. „Það voru mikil mis- tök að hafna þjóðaratkvæðagreiðslu í byrjun ferilsins. Í ljósi aðstæðna í dag er skynsamlegast að kjósa um fram- haldið samhliða næstu þingkosning- um. Við verðum að tryggja þátttöku þjóðarinnar og hlusta á hennar vilja. Við stjórnmálamenn eigum ekki að skammta það úr hnefa hvað fólk geti valið um. Mín skoðun er sú að klára eigi aðildarviðræðurnar og sú skoðun er byggð á því að ég vil standa vörð um valfrelsið. Þjóðin verður því að fá tækifæri til að kjósa um samning sem fel- ur í sér bestu mögulegu niðurstöðu fyrir landið okkar. Ég vil að innan flokksins heyrist ólíkar raddir um þetta mál. Við það á enginn að vera smeykur.“ Samninganefnd hefur „ekkert bakland“ Hún segir það gleymast að aðildar- umsóknin sé nú í ákveðnum farvegi þótt langt sé í land með að niður- staða liggi fyrir. „Samninganefndin sem ræðir við ESB er skipuð hæfum einstaklingum með víðtæka reynslu. Mestu máli skipta niðurstöður um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál. Samninganefndin hefur hins vegar ekkert pólitískt bakland að mati Þorgerðar. „Baklandið er ekkert og það sér hver sem vill. Ríkisstjórn- in getur ekki klárað þessa samninga þrátt fyrir að hún hafi komið þeim af stað. Það er eins og með allt annað sem hún hefur hafið, ekkert er klárað og allt unnið illa og í óeiningu.“ Tók pólitíska áhættu Þorgerður var ein þeirra sem sóttu um stöðu framkvæmdastjóra tónlist- arhússins Hörpu nýverið. Meirihluti stjórnar, þrír af fimm, vildi ráða hana í starfið. Það varð ekki. Enginn vafi leikur þó á því að Þorgerður er afar hæf til starfsins. Hvers vegna var þá gengið fram hjá henni? „Stjórnmálamenn mega ekki sýna áhuga á neinu öðru en störf- um sínum á þingi. Það er svona við- tekna venjan en ég sótti um af því að ég taldi krafta mína og reynslu geta komið að notum. Ég tók með því pólitíska áhættu,“ segir hún. „Ég vona svo innilega að Harpa verði eðlilegur partur af íslenskri þjóðarsál og ég mun gera allt til að hjálpa til að svo verði, bara á öðrum vettvangi. Þessum kafla er hins vegar lokið. Stjórnmálin eru minn vettvang- ur. Ég hef ánægju af þeim og ef póli- tíkinni fylgir þessi sletta af ást sem er svo mikilvæg í lífinu þá gerir maður hlutina vel. Í dag er ég á þeim stað að mig langar til þess að taka þátt. Mér finnst ég hafa kraft til þess, löngun- ina og ég væri hætt ef ástríðan væri ekki til staðar. Ég, eins og fleiri stjórnmálamenn, veit hins vegar að kóngur vill sigla en byr ræður. Við sjáum hvað setur.“ Vill fara nýjar leiðir Það eru ákveðin mál sem Þorgerður vill að heyrist meira um innan Sjálf- stæðisflokksins. „Ég vil sjá auknar áherslur á vel- ferðarmál. Flokkurinn hefur aldrei verið með ábyrgð á félags- eða vel- ferðarráðuneyti. Við fengum heil- brigðisráðherra, Guðlaug Þór Þórðarson, þótt hann hafi setið í skamman tíma náði hann góðum árangri, eins og að vinna á biðlist- um með áherslur okkar sjálfstæðis- manna að leiðarljósi. En ég held að það eigi að vera jafn eðlilegt fyrir Sjálfstæðisflokk- inn þegar hann fer í ríkisstjórn eft- ir næstu kosningar að gera kröfu um velferðarmál og félagsmál eins og at- vinnumál. Ég held að það sé gríðar- lega mikilvægt að hann undirstriki að hann er breiðfylking fólks.“ Börnin eru lánið í lífinu Þorgerður hefur tekið margan stóran slaginn í stjórnmálum. „Þegar mað- ur stendur frammi fyrir slíkum árás- um getur maður gert tvennt. Hunds- að þær eða rætt málin,“ sagði hún þegar hún stóð frammi fyrir flokksfé- lögum sínum og gerði upp stöðu sína í flokknum. Hún stóð sterk í brúnni og kraftinn fékk hún frá fjölskyldu sinni því þar hefur hún háð stærstu orrusturnar. „Börnin mín eru lánið í lífinu. Þau skipta mig öllu máli. „Það er hægt að eignast vini á Alþingi“ „Ég varð líka sár yfir þeim aðstæð- um sem börnin mín voru sett í með þessu „ Í stóru pólitísku myndinni þá sé ég mest eftir því að hafa ekki verið nægilega vakandi. Á vini á Alþingi „En það eru líka einstaklingar í öðrum flokkum sem ég hef mikið dálæti á og eru djúpvitrir. Þeirra vinátta er líka góð. Þannig að já, svo sannarlega er hægt að eignast vini á Alþingi.“ myndir SigTryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.