Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Síða 54
54 8.–10. júní 2012 Helgarblað „Pólitískur farsi sem fjallar um einræðisherra“ „Umgerð leiksins og öll myndræn úrvinnsla er mikið augnagaman“Menning m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g The Dictator Larry Charles Gamli maðurinn og hafið Bernd Ogrodnik Þ essi sýning er saga líð- andi stundar í íslenskri vöruhönnun,“ segir Hlín Helga Guðlaugs- dóttir en hún stýrir sýningunni Saga til næsta bæj- ar sem opnuð var í Hönnunar- safni Íslands á fimmtudag. Á sýningunni er að finna 50 verk eftir íslenska vöruhönnuði auk þess sem sagt er frá mikilvæg- um samstarfsverkefnum sem hafa átt þátt í því að efla ný- sköpun og þróun í íslenskri vöruhönnun. Þrívíð hönnun Hlín segir ástæðuna fyrir því að lögð sé áhersla á síðasta áratug þá að á þeim tíma hafi vöruhönnun á Íslandi orðið að faggrein. Fyrir um tíu árum var hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands stofn- uð sem hefur haft mikil áhrif. „Vöruhönnun hefur vissulega verið til á Íslandi í lengri tíma en þessi áratugur hefur verið afgerandi í uppbyggingu fags- ins á Íslandi.“ Hlín segir sýninguna ekki vera yfirlitssýningu. „Hún er ekki tæmandi og það eru mun fleiri starfandi hönnuðir á Ís- landi en eiga á henni verk. En ég reyndi að festa fingur á því sem hefur haft áhrif á þessa mótun og síðan beinum við sjónum okkar sérstaklega að samstarfi og samtali hönnuða við samfélagið.“ Stefnumót við bændur Hlín nefnir Stefnumót hönnuða og bænda sem dæmi um sam- félagsþenkjandi hönnunarver- kefni. „Það er mjög árangurs- ríkt matarhönnunarverkefni þar sem um er að ræða sam- starf vöruhönnuða, bænda og síðan sérfræðinga eins og hjá Matís,“ en verkefnið er unnið á vegum Listaháskólans. Hlín nefnir einnig verk- efnið Make by Þorpið sem er starfrækt á Austurlandi. „Þar er verið að leiða saman hönnuði og handverksfólk og fólk í smá- iðnaði.“ Hlín segir að í báðum þessum verkefnum sé með- al annars verið að vinna með sjálfbærni, nýstárlegar leiðir til að vinna með íslenskt hráefni og endurverkja gamlar hefðir með þverfaglegu samstarfi. Lítil hefð en frelsi Hlín segir íslenskt samfélag skorta grunn vöruhönnun- ar í hefðbundnum skilningi. Að infrastrúktúr vöruhönnun- ar til dæmis í iðnaði sé ekki mikill og heimamarkaður lítill. „Þetta gefur okkur hins vegar ákveðið frelsi líka, að vera svona ómótuð, en fyrir vik- ið er hönnunarlist kannski meira áberandi hérna.“ Sýningin er sem fyrr sagði í Hönnunarsafni Ís- lands á Garðatorgi í Garða- bæ og stendur hún fram í október. asgeir@dv.is Íslensk vöruhönnun síðasta áratuginn n Saga til næsta bæjar n Frelsi í lítilli hefð fyrir vöruhönnun Hlín Helga Guðlaugsdóttir Sýningarstjóri á sýningunni Saga til næsta bæjar. Sólskin Sjálfbær sólarlampi. Hönnuðir: Hrafnkell Birgisson, Sesselja Guð- mundsdóttir og Aðalsteinn Stefánsson. Þéttsetrið Staður eða afdrep sem leikur við nánd meðal einstaklinga og rammar inn landslagið í umhverfi sínu. Byggð með svipaðan tilgang í huga og almenningsbekkir og veggir í senn. Hönnuður: Hanna Jónsdóttir. Pantið áhrifin Hugmyndafræðilegur farandveitingstaður. Þar sem gestir panta réttinna út frá áhrifum þeirra á líkamann. Hönnuðir: Auður Ösp Guðmundsdóttir, Embla Vigfúsdóttir, Katarina Lötzsch og Robert Petersen. Vík Ný útfærsla af gömlum eldhúskollum. Hönnuður:Tinna Gunnars- dóttir. Sasaklukka Hvetur til slökunar og til þess að leyfa tímanum að líða. Sýnir lífrænan tíma í stað atómtíma. Hönnuður: Þórunn Árnadóttir. Miklimeir Frásöng af töframanninum Miklameir er hér útfærð á teppi. Hönnuður: Katrín Ólína Pétursdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.