Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Síða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Síða 62
62 Sport 8.–10. júní 2012 Helgarblað n Fimmtán Íslendingar hafa leikið í ensku úrvalsdeildinni n Þeim gæti fjölgað í haust n Hvar eru þeir í dag? F immtán íslenskir leikmenn eiga deildarleiki að baki í efstu deild á Englandi, frá árinu 1992 þegar enska úr- valsdeildin var stofnuð. Þeim gæti fjölgað á næstu leiktíð því í það minnsta tveir af efnileg- ustu knattspyrnumönnum landsins gætu í sumar gengið til liðs við forn- fræg lið í efstu deild á Englandi. Tveir til Liverpool-borgar? Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Hoffenheim, sló í gegn sem láns- maður með Swansea á síðustu leik- tíð. Eftir að Brendan Rodgers, sem stýrði Gylfa fyrst hjá Reading og svo Swansea, skrifaði undir samning við Liverpool, bendir margt til þess að Gylfi Þór fylgi honum þangað. Annar ungur og þrælefnilegur leikmaður, Björn Bergmann Sig- urðsson, hefur með framgöngu sinni með Lilleström í Noregi vak- ið mikla athygli stærri félagsliða. Þeir sem ef til vill hafa sýnt honum mestan áhuga eru nágrannar Liver- pool FC, Everton. Ungir og góðir Ef svo færi að Gylfi Þór léki áfram í Englandi og Björn Bergmann gengi til liðs við Everton, yrðu fjórir leik- menn úr U21 árs landsliðinu frá því í fyrra, komnir í enska bolt- ann. Eggert Gunnþór Jónsson féll reyndar með Wolves, auk þess sem Aron Einar Gunnarsson leikur lyk- ilhlutverk í sterku liði Cardiff City, í næstefstu deild. Eiður Smári Guðjohnsen n Fæddur: 1978 n Staða: Framherji 2000–06 Chelsea 186 leikir 54 mörk 2010 Tottenham 11 leikir 1 mörk 2010 Stoke 4 leikir 0 mörk 2011 Fulham 10 leikir 0 mörk Alls: 211 leikir 55 mörk Hvar er hann í dag? Eiður Smári er á mála hjá AEK í Grikklandi en gæti yfirgefið liðið í sumar. 211 leikir Guðni Bergsson n Fæddur: 1965 n Staða: Varnarmaður 1992–93 Tottenham 5 leikir 0 mörk 1995–2003 Bolton* 129 leikir 8 mörk Alls 138 leikir 8 mörk Hvar er hann í dag? Guðni hætti knattspyrnuiðkun árið 2003 og starfar í dag sem lögmaður á Íslandi. *1995-96, 1997-98, 2001-03 í úrvALSdeiLd 135 leikir Jóhannes Karl Guðjónsson n Fæddur: 1980 n Staða: Miðjumaður 2002–03 Aston Villa 11 leikir 2 mörk 2003–04 Wolves 11 leikir 0 mörk 2009–10 Burnley 10 leikir 0 mörk Alls: 32 leikir 2 mörk Hvar er hann í dag? Kominn heim frá Englandi og leikur með ÍA. 32 leikir Þorvaldur Örlygsson n Fæddur: 1966 n Staða: Miðjumaður 1992–93 Nott. Forest 20 leikir 1 mörk Alls: 20 leikir 1 mörk Hvar er hann í dag? Þorvaldur þjálfar karlalið Fram í efstu deild hér heima. 20 leikir Brynjar Björn Gunnarsson n Fæddur: 1975 n Staða: Vörn/miðja 2006–08 Reading 43 leikir 3 mörk Alls 43 leikir 3 mörk Hvar er hann í dag?Brynjar er enn á mála hjá Reading þar sem hann hefur verið frá 2005. Hann hætti við að koma heim og spila með KR í sumar eins og jafnvel stóð til. 43 leikir Lárus Orri Sigurðsson n Fæddur: 1973 n Staða: Varnarmaður 2002–03 West Brom 29 leikir 0 mörk Alls: 29 leikir 0 mörk Hvar er hann í dag? Er þjálfari KF í 2. deild karla. 29 leikir Hermann Hreiðarsson n Fæddur: 1974 n Staða: Varnarmaður 1997–98 Crystal Palace 26 leikir 3 mörk 1999–00 Wimbledon 24 leikir 1 mörk 2000–02 Ipswich 74 leikir 2 mörk 2003–07 Charlton 132 leikir 5 mörk 2007–10 Portsmouth 70 leikir 6 mörk Alls: 326 leikir 17 mörk Hvar er hann í dag? Lék síðast með Coventry en er samningslaus. Leitar að nýju félagi. 326 leikir 11 3 10 2 9 1 8 Strákarnir okkar í enska boltanum Ekki sótt um að halda EM Ísland hefur ekki sótt um að halda Evrópumót kvenna í handknattleik. Þetta segir Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Ís- lands, við fréttamiðilinn Vísi. EHF, Evrópska handknattleiks- sambandið, birti Ísland á lista yfir þær þjóðir sem hefðu sýnt áhuga á að halda keppnina. Til stóð að mótið færi fram í Hollandi en á dögunum gáfu Hollendingar ver- kefnið frá sér. Fyrir vikið getur svo farið að Hollendingar missi sæti sitt á mótinu. Það gæti þýtt að Ís- lendingar komist á mótið en Ís- land náði bestum árangri þeirra liða sem ekki tókst að tryggja sér sæti á mótinu. Vísir hefur eftir Einari Þorvarðarsyni að ástæðu þess að Ísland er nefnt á meðal þeirra þjóða sem vilja halda keppnina megi líklega rekja til fyrirspurnar HSÍ til EHF. Þar spurði HSÍ meðal annars hversu stórar hallir þyrfti til að halda mótið. Málið sé hins vegar ekki komið lengra. Eiður fer frá AEK Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen mun á næstu dögum hitta forráðamenn gríska liðsins AEK þar sem gengið verð- ur frá starfslokum hans við fé- lagið. Frá þessu greinir vefmið- illinn TopNews. AEK glímir, eins og grískt samfélag, við mikla fjár- hagsörðugleika um þessar mundir og ætlar að láta sína dýrustu menn fara frá félaginu í sumar. Þetta rennir stoðum undir það sem haft var á dögunum eftir Arnari Grét- arssyni, yfirmanni knattspyrnu- mála hjá AEK, að Eiður Smári myndi yfirgefa félagið – enda gengi illa að greiða laun. Engar fregnir hafa borist af því hvert Eið- ur Smári heldur næst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.