Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Page 70
Trúlofuð Böddi og Jórunn trúlofuðu sig um jólin.
Jórunn lék meðal annars í kvikmyndinni Svartur á
leik en hún byrjar í leiklistarnámi í haust.
Þríþraut þingmanns
n Róbert Marshall stendur fyrir skemmtilegri víðavangskeppni
Í
mínum huga snýst líkamsrækt
frekar um það að geta gert það
sem mann langar frekar en að líta
öðruvísi út. Gott útlit er fylgifisk-
ur hreyfingar en hreyfingin sjálf á að
vera markmiðið. Við erum gerð til
þess að hreyfa okkur og þess vegna
líður okkur vel eftir að hafa reynt
á okkur. Þríþraut er frábær og fjöl-
breytt leið til að blanda saman ólík-
um æfingum og halda sér þannig í
góðu formi,“ segir alþingismaður-
inn Róbert Marshall en hann og eig-
inkona hans Brynhildur Ólafsdóttir
standa fyrir þríþraut þann 30. júní.
„Við byrjum undir Brimlárhöfða
rétt utan við Grundarfjörð þar sem
ætlunin er að synda þvert yfir
Lárvaðalinn sem er um 520 metr-
ar. Vatnið er tiltölulega grunnt og
verður því vonandi orðið sæmilega
hlýtt þarna um mitt sumar. Á bakk-
anum bíða hjólin og við leggjum í
hann austur í átt að Grundarfirði
og hjólum sem leið liggur í gegn-
um bæinn, út að Hraunsfirði og
svo í gegnum Berserkjahraun í átt
að Stykkishólmi,“ segir Róbert og
bætir við að svo verði síðustu 10
kílómetrarnir hlaupnir inn í Stykk-
ishólm þar sem keppni lýkur við
sundlaugina.
„Við fáum einhvern velviljaðan
til að sækja hjólin og skutla þeim
til baka. Vonandi náum við að setja
upp eina eða tvær vatnsstöðvar á
leiðinni og auðvitað tímatöku við
lok keppni. Þetta er fyrst og fremst
hugsað til að hafa gaman af því og
reyna sig við erfiða áskorun í góðra
vina hópi. Um kvöldið grillum við,
syngjum og tröllum í náttbjartri úti-
legustemningu við upphafsreitinn
úti í Lá.“
Róbert hefur tvisvar áður haldið
slíka víðavangskeppni en hingað til
hafa aðeins tveir þátttakendur ver-
ið með í keppninni. Nú hafa hins
vegar yfir 60 manns skráð sig svo
ljóst er að um alvöru keppni verður
að ræða þótt skemmtunin eigi vissu-
lega að vera í fyrsta sæti. „Mér finnst
gott að hafa langtímamarkmið eins
og maraþon eða Laugavegshlaup til
að stefna og þess vegna ákvað ég að
efna til Snæfellsnesþristsins í byrjun
ársins. Ég er líka að æfa fyrir Lauga-
veginn um miðjan júlí og þetta fellur
vel að því hlaupi. Maður kemur sér
ekki í form með stuttu átaki heldur
lífsstílsbreytingu. Þetta er hugsað
fyrst og fremst til að hafa gaman af
þessu og allir mega taka þátt.“
70 Fólk 8.–10. júní 2012 Helgarblað
Quarashi-stuð
á Prikinu
Mikil stemning myndaðist á Prik-
inu á miðvikudag þar sem Tiny
og Halleluwah, þekktur sem Sölvi
Blöndal úr Quarashi, komu fram.
Meðal þeirra sem voru á gólfinu
og nutu tónlistarinnar var félagi
þeirra Höskuldur Ólafsson úr Qu-
arashi. Það ætlaði allt að verða vit-
laust þegar þeir Tiny og Sölvi tóku
Quarashi-slagarann Stun Gun
og gestir Priksins sungu hástöf-
um með. Samkvæmt heimildum
DV virtist Höskuldi ekki leiðast sú
uppákoma.
Nokkuð er síðan Quarashi lagði
upp laupana en þeir félagar komu
þó saman aftur síðasta sumar til
að halda almennilega kveðjutón-
leika fyrir aðdáendur sína. Þeir
hafa fullyrt að það hafi verið í allra
síðasta skipti sem þeir spiluðu
saman sem Quarashi.
„Sámur myndi
elska allt þetta
kjöt“
Facebook-síða Dorritar Moussai-
eff nýtur mikilla vinsælda. Á síð-
unni segir Dorrit fréttir úr kosn-
ingabaráttunni og birtir myndir
af ferðalögum þeirra hjóna um
landið. Á dögunum heimsótti hún
sláturhús og skrifaði undir: Sámur
myndi elska allt þetta kjöt!
Hvert gullkornið af öðru ratar
inn á síðuna enda er Dorrit með
eindæmum einlæg og lífsglöð
kona. Í einni færslunni lýsti hún
því hvað henni finnst eiginmað-
ur sinn flottur í kosningabarátt-
unni. „Ég er kannski ekki hlutlaus,
en mér fannst Ólafur býsna flottur.
Vildi að það væru kosningar á
hverju ári, Ólafur hefur yngst um
mörg ár í þessari baráttu.“
Sköpunar-
saga Bubba
Bubbi sagði á Facebook á fimmtu-
dag að hann hefði hjólað upp að
Laxá til að kíkja á lax. Hann kom
auga á nokkra laxa og þá kom
skáldgyðjan yfir hann. Úr varð við-
bót við sköpunarsöguna. „Lax-
inn er fiskurinn sem guð skapaði
þegar hann var búinn að skapa öll
dýr jarðar. Því honum langaði að
skapa eitt dýr sem honum fyndist
Fullkomið. Og þegar guð sá hvað
honum tókst vel upp þá hugsaði
hann ég verð að búa til stöng og
hnýta flugu því annað er ekki hægt
að bjóða laxinum upp á. Síðan
hefur guð verið brosandi glaður.“
Rómantískt að
vinna saman
n Jórunn Steinsson er húsmóðir á virkum dögum en rokkstjarna um helgar
A
uðvitað leyfir hann mér að
vera með puttana í þessu.
Annað kæmi ekki til greina.
En þetta er hans batterí.
Mér finnst ég bara hepp-
in að fá að taka þátt,“ segir Jórunn
Steinsson sem syngur á tónleikum
með kærastanum sínum, Bödda
Reynis, sem venjulega er kenndur
við hljómsveitina Dalton.
Böddi vinnur að nýju sólóefni og
mun halda tónleika á Hressó í kvöld,
föstudagskvöld, og mun njóta hjálp-
ar Jórunnar við flutninginn. Jórunn
hefur getið sér orð sem fyrirsæta
auk þess sem hún hefur snúið sér
æ meira að leiklist. „Ég er alltaf eitt-
hvað að sitja fyrir en síðan ég leiddist
út í leiklistina hefur hún tekið meira
og meira pláss í mínu lífi,“ segir Jór-
unn sem hefur leikið í stuttmyndum
auk þess sem hún lék í kvikmyndinni
Svartur á leik og mun leika á móti
Ólafi Darra í kvikmyndinni XL.
Jórunn komst inn í Kvikmynda-
skólann þar sem hún byrjar í námi í
kvikmyndaleik núna í ágúst. „Ég ætl-
aði mér alltaf að verða leikkona svo
ég er mjög spennt. Það er svo margt
sem hægt er að gera út frá leiklistar-
námi. Svo er líka gott að kunna að
syngja. Það er partur af þessu öllu
saman,“ segir Jórunn sem fór ekki að
leika fyrrr en fyrir tveimur árum.
„En ég hef sungið frá því að ég
var krakki. Ég var alltaf á söngnám-
skeiðum og slíku og hef alltaf haft
gaman af söng. Söngurinn er númer
eitt, tvö og þrjú. Ég syng allar helgar
með Bödda og næst á dagskrá hjá
okkur er að drífa sig í stúdíó og taka
upp svo okkar fyrsti dúett fari nú að
koma út. Og svo verð ég klárlega að
fara huga að eigin efni. Síðasta árið
hefur skipt gríðarlega miklu máli
fyrir mig því ég var alls ekki með
mesta sjálfstraustið. Eftir að ég byrj-
aði að syngja og koma fram hefur
það heldur betur breyst til batnaðar.
Maður þroskast því á svona reynslu.
Það er klárt mál“
Jórunn óttast ekki að vinna
svona náið með kærastanum en
parið trúlofaði sig um jólin. Hún
segir enn fremur að samband
tveggja listamanna sé ekki jafn
flókið og margir myndu halda.
„Það er bara æðislegt að vinna
svona mikið saman – ferlega róm-
antískt. Við vinnum svo vel saman.
Hjá okkur eru alls ekki tvö egó sem
berjast um athyglina. Allavega hef-
ur þetta virkað vel hingað til og ég
held að það muni gera það áfram,“
segir hún hlæjandi og bætir við að
þar sem hún hafi fengið tvö yndis-
leg börn í bónus þegar þau Böddi
byrjuðu saman þá séu þau í fjöl-
skyldugírnum á virkum dögum.
„Ég er húsmóðir í Laugardalnum
frá mánudögum til fimmtudags en
hina dagana er bara spilerí.“
Erfið áskorun Róbert segir öllum vel-
komið að taka þátt og að keppnin sé fyrst
og fremst til að hafa gaman af og reyna við
erfiða áskorun í góðra vina hópi.