Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 26.–28. október 2012 Helgarblað Bilaði í miðri aðgerð 3 Í síðustu viku bilaði eitt af þremur hjarta­ þræðingartækjum á hjartaþræðingar­ deild Landspítalans þegar sjúklingur var í aðgerð. Fjallað var um málið í DV á miðvikudag en þar kom fram að skipta hafi þurft um varahlut í tæk­ inu sem var gert næsta dag. Sjúk­ lingurinn var færður yfir í aðra stofu þar sem aðgerðinni var haldið áfram með öðru tæki. Einstaklingurinn sem var í aðgerðinni þegar tækið bil­ aði lést en þó er ekki talið að bilun tækisins hafi valdið dauða sjúklings­ ins. Einn viðmælenda DV sagði það tímaspursmál hvenær tæki klikkuðu á ögurstundu. Spáir Þjóðkirkj- unni dauða 2 Séra Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, var svart­ sýnn í ræðu sem hann hélt í Hallgrímskirkju á miðvikudag í síðustu viku. „Ætti eg að spá um nánustu framtíð íslenzku Þjóðkirkj­ unnar í svipaðri mynd og núlifandi kynslóðir Íslendinga þekkja hana, gef eg henni áratug eða tylft lífdaga, vel vitandi um spásagnir lækna um líklegan líftíma banvænna krabba­ meinssjúklinga,“ sagði séra Geir en DV ræddi við hann í vikunni. Geir sagði að hann hefði meðal annars átt við fækkun prestakalla í landinu, breytingar á prestsetraskipan og minnkandi starfsöryggi presta. Tókst ekki ætlunarverkið 1 „Síðan er líka al­veg ljóst í mínum huga, sem er alveg skýrt í þessari niður­ stöðu, að Sjálfstæðis­ flokknum tókst ekki það ætlunarverk sitt að eyðileggja þetta ferli eins og þeir unnu leynt og ljóst að,“ sagði Jóhanna Sig­ urðardóttir forsætisráðherra í DV á mánudag. Þar var fjallað um niður­ stöður ráðgefandi þjóðaratkvæða­ greiðslu sem fram fór um síðustu helgi. Niðurstöður hennar leiddu í ljós að mikill meirihluti kjósenda vill að tillögur stjórnlagaráðs verði lagð­ ar til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Jóhanna sagði að ekki væri hægt að hundsa vilja kjósenda. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni F ramkvæmdastjórar Reykja­ nesbæjar hafa iPhone­snjall­ síma til afnota frá sveitarfé­ laginu. Hjörtur Zakaríasson bæjarritari segir að símarnir séu nauðsynlegt vinnutæki þar sem framkvæmdastjórarnir þurfi alltaf að vera til taks, bæði í síma og tölvu­ póstsambandi. Hver sími kostaði um 90 þúsund krónur en símarnir eru ekki allir í notkun. Þurfa alltaf að vera til taks „Já, við erum með iPhone,“ segir Hjörtur. „Menn geta náttúrulega tek­ ið tölvupóstinn af því að menn eru á vakt allan sólarhringinn og menn eru að nota tölvupóstinn og svara tölvu­ póstinum í vinnunni og utan vinnu­ tíma. Það er náttúrulega aðalmálið held ég,“ segir Hjörtur aðspurður af hverju stjórnendur á bæjarskrifstof­ unni þurfi svona dýra síma. „Þetta eru yfirmenn sveitarfélagsins sem eru alltaf á vakt og það breytir engu hvort þeir séu í sumarfríi eða hvort það sé helgi. Þessir menn eru alltaf í tölvusambandi.“ Hjörtur segir að þar sem kraf­ an sé að framkvæmdastjórarnir séu alltaf til taks sé ekki annað hægt en að skaffa þeim tilheyrandi bún­ að. „Það er bara eðlilegt og þetta er bara samkomulag sem var gert var árið 1990,“ segir hann. Hjörtur seg­ ir að sjö framkvæmdastjórar séu hjá sveitarfélaginu en hann var ekki viss um hversu margir þeirra væru með iPhone. Reksturinn lítill miðað við íbúafjölda Hjörtur bendir á að rekstur bæjar­ skrifstofunnar sé lítill sé tekið mið af íbúafjölda í sveitarfélaginu. Skulda­ staða sveitarfélagsins hefur hins vegar verið svört undanfarin ár en í lok maí greindi fréttastofa RÚV frá því að sveitarfélagið skuldaði 300 prósent af tekjum sínum en það er tvöfalt meira en leyfilegt er sam­ kvæmt lögum. Þá trónaði sveitarfé­ lagið á toppnum yfir þau sveitarfélög sem voru í hvað verstri skuldastöðu. Í ágúst greindi Reykjanesbær frá því að hann hefði selt skuldabréf sem bæjarfélagið eignaðist við sölu á HS Orku til Geysis Green Energy og síðar Magma Energy og að með þeim tekj­ um hafi verið hægt að borga niður allar skammtímaskuldir og erlendar skuldir sveitarfélagsins. Samkvæmt heimildum DV hefur verið lögð rík áhersla á það inn­ an stjórnkerfis Reykjanesbæjar að framkvæmdastjórar sveitarfélags­ ins séu framarlega þegar kemur að því að tileinka sér tækninýjungar. Þá herma sömu heimildir að símunum sé skipt út jafnóðum og eldir símar, sem einhverjir eru af gerðinni Black­ berry, skemmast eða verða ónothæf­ ir. Þá fái framkvæmdastjórarnir áð­ urnefnda iPhone­snjallsíma. Með dýrari símum á markaði Snjallsímar eru á mjög breiðu verð­ bili og eru iPhone­símar með dýr­ ari snjallsímum sem í boði eru hér á landi. Nokkrar mismunandi gerðir eru til af iPhone­símum og er verðið á símunum á bilinu 89.990 til 179.990 krónur. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjanesbæ kostuðu símarnir þeirra, sem eru af gerðinni iPhone 4, um 90 þúsund krónur. „Það var mat deildarinnar þegar upp var staðið að þetta væri hag­ stæðast þar sem aðrir símar s.s. Blackberry dygðu í stuttan tíma og það væri eilíft vesen,“ segir Hjörtur um ástæður þess að ákveðið var að kaupa iPhone en ekki Blackberry. Snjallsímarnir keyra á 3G­ eða 4G­ farsímakerfi, geta sótt tölvupóst og tengst vefsíðum á netinu. Þá eru símarnir líka búnir ágætri myndavél og möguleikanum á að sækja fjölda snjallforrita úr verslun Apple. n n Nauðsynlegt til að geta verið í stöðugu sambandi, segir bæjarritarinn Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is „Það var mat deildarinnar þegar upp var staðið að þetta væri hagstæðast. Góðir Apple iPhone-snjallsímarnir eru vinsælir og þykja góðir. Þeir kosta þó sitt. Árni Sigfússon er bæjarstjóri Reykjanesbæjar. saMsett Mynd stefán KaRlsson /siGtRyGGuR aRi Sveitarfélagið skaffar iPhone Matthías imsland hættur: Útilokar ekki framboð „Það hafa menn komið að máli við mig,“ segir Matthías Imsland, fráfarandi framkvæmdastjóri flug­ rekstrarsviðs WOW air, aðspurður hvort hann hyggi á þingframboð í nánustu framtíð. Tilkynnt var nokkuð óvænt um starfslok Matth­ íasar hjá WOW á fimmtudag en að eigin sögn lætur hann af störfum í góðu og í sátt við alla. WOW keypti í vikunni vöru­ merki og leiðarkerfi Iceland Ex­ press en þar var Matthías forstjóri áður. Matthías er gallharður fram­ sóknarmaður og því ljóst hvaða flokkur hefur falast eftir starfskröft­ um hans. Í samtali við DV kveðst hann ekki útiloka framboð. „En hins vegar þykir mér það ólíklegt á þessari stundu enda er annað verkefni sem ég hef skuld­ bundið mig til,“ segir Matthías sem virðist strax kominn með annað starf eftir WOW­ævintýrið með Skúla Mogensen. Hann vill þó ekki upplýsa hvað nákvæmlega tekur við hjá honum að svo stöddu. Höskuldur rúllar yfir Sigmund Áhugahópur um oddvita Fram­ sóknarflokksins í Norðausturkjör­ dæmi lét Gallup skoða hvern íbúar Akureyrar og nágrennis vilja sem oddvita flokksins fyrir komandi alþingiskosningar, Höskuld Þór­ hallsson þingmann eða Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann. Þetta kom fram á vef Vikudags á Akureyri á fimmtudag. Þar kom fram að úrtakið hafi verið 1.080 manns á Akureyri og nágrenni. 699 manns svöruðu, en 381 kaus að svara ekki og var því svarhlut­ fall 64,7 prósent. 380 sögðust vilja að Höskuldur færi fyrir framboðs­ listanum, eða 67,8 prósent, 114 nefndu hvorugan, eða 20,4 pró­ sent, en aðeins 66 sögðust vilja Sigmund Davíð, eða 11,8 prósent. Á vef Vikudags kemur fram að stuðningsmenn Höskuldar fagni þessari könnun en stuðningsmenn Sigmundar Davíðs segi óeðli­ legt að kanna fylgið á afmörkuðu svæði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.