Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 21
Gægst inn í gagnaverin
G
oogle hefur nú í fyrsta skipti
veitt heiminum innsýn í
hin risavöxnu gagnaver fyr-
irtækisins sem grundvalla
þjónustu þess. „Sárafáir hafa
stigið fæti inn í gagnaver Google og
er það af góðri ástæðu. Eitt af okkar
helstu áhersluatriðum er að gæta
gagnaöryggis viðskiptavina okk-
ar,“ segir í tilkynningu frá fyrirtæk-
inu. Nú geta áhugasamir hins vegar
skoðað sig um innan veggja gagna-
veranna á vefnum.
Gagnaverin eru undirstaða starf-
semi Google þó þau séu öll í tölu-
verðri fjarlægð frá höfuðstöðvum
fyrir tækisins í Kaliforníu. Fyrirtækið
var stofnað í bílskúr í Kísildalnum árið
1997 og var afsprengi rannsóknarver-
kefnis tveggja doktors nema við Stan-
fordháskóla, þeirra Larry Page og
Sergey Brin. Nú er fyrirtækið á meðal
þeirra stærstu í heimi.
Þrjú gagnaver til viðbótar
Google heldur úti yfir milljón net-
þjónum í gagnaverum sínum víðs
vegar um heiminn. Gagnaverin eru
átta talsins, þar af sex í Bandaríkj-
unum, eitt í Belgíu og eitt í Finn-
landi. Á næstu árum er gert ráð fyrir
að þrjú slík gagnaver til viðbótar rísi
í Singapúr, Hong Kong og Taívan.
Það gífurlega magn upplýsinga
sem Google safnar um notendur
vefsíðunnar, sem eru sagðir vera um
milljarður manns, hefur verið upp-
spretta deilna um persónuvernd
víða um heiminn. Upplýsingarnar
snúa meðal annars að vefnotkun
einstaklinga og gera Google kleift
að miða auglýsingar út frá hverjum
og einum en nær allar tekjur fyrir-
tækisins eru auglýsingatekjur.
Starfsfólkið hjólar í vinnunni
Á myndunum má sjá nokkur af
þeim gríðarstórum gagnaverum
sem Google á, víðsvegar um heim-
inn. Þau rúma hundruð þúsund
netþjóna og ótal kapla og leiðslur,
eins og sjá má á myndunum. Starfs-
fólkið hefur reiðhjól um umráða
enda geta vegalengdirnar verið
miklar.
Gagnaverin á myndunum eru
staðsett í Berkeley County, Council
Bluffs, Douglas County, Mayes
County, Lenoir, The Dalles, Hamina
og St. Ghislain. n
n Google birtir myndir innan úr gagnaverum fyrirtækisins
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Öðruvísi vinna Starfsmaður
Google í netþjónafrumskógi.
Gögn, gögn, gögn Gagnaverin hafa til
þessa verið alveg lokuð.
Miklar vegalengdir Starfsmenn gagnavers
Google í Georgíu ferðast um á hjólum.
Stórt í sniðum Í gagnaveri Google í Iowa eru tæplega 11 þúsund fermetrar undirlagðir fyrir netþjóna fyrirtækisins.
Erlent 21Helgarblað 26.–28. október 2012
Hryllingsmynd í stað teiknimyndar
n Romney og Obama með ólík viðhorf n Lítið rætt um ýmis stór mál
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
Meydómurinn
falur fyrir
milljónir
Tvítug brasilísk stúlka, Catarina
Migliorini, hefur ákveðið að selja
meydóm sinn fyrir nærri 500 þús-
und pund, eða rúmar hundrað
milljónir króna. Stúlkan auglýsti
meydóm sinn til sölu á ónefndri
uppboðsvefsíðu og barst hæsta
tilboðið frá japönskum manni,
Natsu að nafni. Migliorini segir að
peningunum verði varið til góð-
gerðamála og meðal annars not-
aðir til að byggja hús fyrir fátækar
fjölskyldur í Brasilíu. Þá ætlar hún
að nota hluta upphæðarinnar til
að fara í læknanám í nágrannarík-
inu Argentínu. „Ég er tvítug, ber
fulla ábyrgð á líkama mínum og er
ekki að skaða neinn,“ segir hún í
samtali við brasilíska blaðið Folha
de Sao Paulo. Hún segist ekki líta
svo á að um vændi sé að ræða
enda sé þetta eitthvað sem hún
geri bara einu sinni á ævinni. „Ef
þú tekur eina góða mynd ertu ekki
atvinnuljósmyndari,“ segir hún.
Sprengdur
í loft upp
Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-
un, er sagður hafa fyrirskipað
aftöku á varahermálaráðherra
landsins á dögunum. Ráðherrann,
Kim Chol, er sagður hafa unnið
sér það til saka að hafa drukkið
ótæpilegt magn af áfengi á sama
tíma og 100 daga sorgartímabil
hófst til að minnast andláts föður
Kims Jong, Kims Jong-il, einræðis-
herra Norður-Kóreu. Samkvæmt
frétt The Daily Telegraph var ráð-
herrann sprengdur í loft upp með
sprengjuvörpu.
Haft er eftir sérfræðingum í
málefnum Norður-Kóreu að leið-
toginn hafi losað sig við fjórtán
háttsetta aðila í Norður-Kóreu síð-
an hann tók við völdum í fyrra.