Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 56
Kallast
þetta
ekki góð
lending?
Troðið í Teit
n Körfuboltamaðurinn Teitur
Örlygsson, sem nú er þjálfari
karlaliðs Stjörnunnar, er einn
þeirra sem sendi stelpunum í A-
landsliði kvenna óskir um gott
gengi í leiknum mikilvæga við
Úkraínu. „Vona að stelpunum
gangi vel á morgun,“ sagði hann
en bætti við: „en finnst einhverj-
um þetta virkilega skemmti-
legt?“ Ummælin viðhafði hann
á samskiptasíðunni
Twitter.
Kvenkyns fylgis-
maður Teits
á Twitter var
fljótur til
og svaraði
um hæl:
„Er þetta
ekki bara
svipað og
hvítir menn í
körfubolta?“
Ekki heyrðist
meira frá Teiti,
sem þótti harður
í horn að taka
hér áður fyrr.
Nýtt útlit
hjá Jónasi
n Jónas Kristjánsson, samfélags-
rýnir og fyrrverandi ritstjóri,
hefur loksins gert útlitsbætur á
bloggvef sínum, jonas.is. Jónas
hefur um árabil verið einn vin-
sælasti bloggari landsins enda
birtir hann á hverjum degi stutt-
ar, skorinorðar og beittar blogg-
færslur um allt það sem honum
finnst gagnrýnivert í samfélaginu.
Útlit vefjarins var þó komið tölu-
vert til ára sinna og þótti ekki al-
veg í takt við það sem gerist í ný-
tískulegri vefhönnun.
Almenn ánægja er
þó með nýja út-
litið og aldrei
að vita nema
lesendum Jónasar
fjölgi í kjölfarið.
Gísli Marteinn
„skilur það ekki“
n Sigmundur Ernir Rúnarsson, þing-
maður Samfylkingar, sá ástæðu
til að skjóta léttum skotum á Gísla
Martein Baldursson, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks, á bloggsíðu
sinni á fimmtudag. Nokkuð hefur
verið rætt um jöfnun húshitun-
arkostnaðar í landinu og sitt sýn-
ist hverjum um það. Látum Sig-
mund fá orðið: „Gísli Marteinn
Baldursson borgarfulltrúi skil-
ur ekki nauðsyn þess að jafna
húshitunarkostnað í landinu.
Hann skilur það ekki þrátt fyrir
að kostnaðurinn sé fjórfalt til
tífalt meiri á köldum svæðum
en heitum.
Hann skil-
ur það ekki.
Hann skilur
Reykjavík.
En hann
skilur ekki
Ísland.“
E
itthvað þarf ég nú að fara að gera
þegar ég hætti hér,“ segir Skarp-
héðinn Berg Steinarsson í sam-
tali við DV. Skarphéðinn, sem
lét af störfum sem framkvæmdastjóri
Iceland Express á dögunum í kjölfar
kaupa Skúla Mogensen á fyrirtækinu,
hefur í hyggju að koma á fót ferða-
þjónustufyrirtæki á Snæfellsnesi.
„Mig hefur lengi dreymt um það að
gera eitthvað í ferðamennsku á Snæ-
fellsnesi og í Stykkishólmi og ætla að
láta þann draum minn rætast ein-
hvern tímann í vetur.“
Aðspurður hvers konar ferða-
þjónustu hann hyggist bjóða upp á
segist Skarphéðinn hafa ýmislegt í
undirbúningi með góðum hópi fólks.
„Ég hef mikla trú á Snæfellsnesi og
Stykkis hólmi og Breiðafirðinum og
ég held að það sé hægt að gera mikla
meira þar með samhentu átaki.“
Hann vill þó lítið gefa upp um hvers
konar ferðaþjónustu hann hyggst fara
út í eða hvaða aðilar ætli að koma að
verkefninu með honum. „Ég er búinn
að vera að spekúlera í þessu heillengi
og það hefur alltaf verið opin bók að
mínir draumar liggja þar.“
Skarphéðinn segir undirbúning
ferðaþjónustu á Snæfellsnesi
ekki tengjast starfslokum sínum á
nokkurn hátt. „Ég hafði hugsað mér
að taka þátt í þessu verkefni með öðr-
um og þá í litlu hlutverki en þessi
breyting gerir það að verkum að ég
verð meira í því en ella hefði orðið.“
En hefur Skarphéðinn einhver tengsl
þangað vestur? „Við hjónin höfum átt
afdrep þarna í nokkur ár og verið mik-
ið þarna,“ segir Skarphéðinn. Á léttari
nótum segist hann ekki hafa búist við
því að fyrirhugaðar hugmyndir hans
um ferðaþjónustu á svæðinu vektu
athygli: „Ég gerði mér ekki grein fyrir
því að þetta vekti áhuga neins, þessir
draumar mínir við eldhúsborðið.“ n
Úr flugi í ferðaþjónustu
n Skarphéðinn Berg Steinarsson kemur á fót ferðaþjónustufyrirtæki í Stykkishólmi
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 26.–28. oKTóBER 2012 124. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Draumar við eldhúsborðið Skarphéðinn
Berg segir að hann hafi lengi dreymt um að koma
á fót ferðaþjónustufyrirtæki á Snæfellsnesinu.