Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 8
8 Fréttir 26.–28. október 2012 Helgarblað Stofnar Sprengiflokk n Sprengiflokkurinn í bígerð n Mál gegn S. Valentínusi fellt niður R íkissaksóknari hefur fellt nið­ ur mál S. Valentínusar Vagns­ sonar, karlmanns á áttræðis­ aldri, sem kom fyrir sprengju fyrir framan Stjórnarráðið og skrif­ stofu ríkissaksóknara á Hverfisgötu í janúar síðastliðnum. Mikill viðbún­ aður var vegna sprengjunnar sem lítið fútt reyndist þó í þegar til kast­ anna kom. Með sprengjunni fylgdu skilaboð sem beint var að gegn ríkis­ stjórninni. Helgi Magnús Gunnarsson vara­ ríkissaksóknari sagði í Fréttablaðinu á fimmtudag að embættið hafi ekki talið sig geta „heimfært þetta undir nein refsiákvæði“. „Það var ekki hægt að sýna fram á ásetning til að valda tjóni. Það er stað­ reynd að þessi svokallaða sprengja sprakk við hliðina á honum en það sást hvorki á honum né veggnum. Þetta var gas í brúsa sem var af hans hálfu aðallega ætlað til að vekja athygli á skeyti sem hann kom fyr­ ir í hólki sem fylgdi. Það hefði verið svipað ef einhver hefði kveikt í skot­ eldi þarna – og í raun hefði það verið hættulegra.“ Valentínus staðfesti í samtali við DV á fimmtudag að hann hefði feng­ ið bréf frá embættinu þess efnis á dögunum að málið hefði verið látið niður falla. Þá staðfesti hann einnig að hann vilji stofna stjórnmálaflokk sem stefni á þingframboð. Hann sendi á dögunum ritstjórn DV drög að stefnu­ skrá flokks sem hann kallar Sprengi­ flokkinn. Þar skorar hann á launafólk og alla þá sem kalla mætti minnimátt­ ar á Íslandi að taka höndum saman og gera róttækar breytingar á stjórn­ skipulagi Íslands. Sjálfur hafi hann ekki áhuga á að fara fram, en hann leiti að góðu fólki til að kollvarpa kerf­ inu: „Fólki sem hefur þann eldmóð sem þarf til að kollvarpa þeirri spill­ ingu sem hefur verið eins og graft­ arkýli á íslensku þjóðfélagi,“ skrifar hann meðal annars. n Fáðu greinar í heild sinni á DV.is og vefáskrift af prentútgáfu DV * Verðið er 790 kr. fyrstu 3 mánuðina, en 1.790 kr. eftir það. fyrir 790 kr. á mánuði * Sjáðu meira R annsókn skattrannsóknar­ stjóra á málefnum Jens Kjart­ anssonar lýtalæknis er vel á veg komin en henni er þó ekki lokið. „Það er lítið hægt að tjá sig um einstök mál en þetta er langt komið. Þetta er samt ekki farið héðan,“ sagði Bryndís Kristjánsdótt­ ir skattrannsóknarstjóri aðspurð um stöðu málsins á miðvikudag. Rann­ sókn embættisins snýr að meintum skattsvikum Jens í tengslum við starf­ semi hans sem lýtalæknir en grunur leikur á að hann hafi ekki gefið upp til skatts öll viðskipti sem fram fóru á einkarekinni læknisstofu sinni. Litlar upplýsingar fást þó um rannsóknina sjálfa hjá yfirvöldum. Neitar að hafa svikið undan skatti Rannsóknin á meintum svikum Jens hefur staðið í nokkra mánuði. DV greindi frá því 13. janúar að grun­ ur léki á að Jens hefði fengið konur til að greiða fyrir brjóstaaðgerðir í reiðufé gegn því að fá örlítinn afslátt. Í viðtali við Kastljós síðar í sama mánuði þvertók Jens hins vegar fyrir að hafa þegið greiðslur undir borðið vegna fegrunaraðgerða sem hann hafði framkvæmt undanfarin ár. Engu að síður var rannsókn hafin en samkvæmt frétt Smugunnar frá því í maí síðastliðnum lék grunur á að milljónum króna hafi verið kom­ ið undan skatti. Kom fram í umfjöll­ un vefjarins að hver aðgerð kosti í kringum hálfa milljón króna og því gæti velta vegna aðgerðanna numið um 200 milljónum króna. Mál Jens var sent til skattrann­ sóknarstjóra eftir að velferðar­ ráðuneytið hafði skoðað einka­ rekstur hans í tengslum við PIP­brjóstapúðamálið. Það mál snérist um iðnaðarsilíkonpúða sem græddir voru í fjölda kvenna víðsvegar um heim. Jens fram­ kvæmdi fjölda brjóstastækkana með gölluðu brjóstapúðunum hér á landi. Um fjögur hundruð íslenskar konur voru með silíkonpúða frá franska framleiðandanum PIP en Jens framkvæmdi aðgerðir á nærri öllum þessum fjögur hundruð kon­ um. Vegna orðróms um greiðslur undir borðið og frétta af máli Jens ákvað velferðarráðuneytið að senda fjármálaráðuneytinu erindi til að meta hvort málið yrði rannsakað. Flutti púðana inn sjálfur Jens sá ekki aðeins um að framkvæma aðgerðirnar heldur flutti einkahluta­ félag hans púðana inn landsins. Ástæður þess að hann hóf sjálfur inn­ flutning á brjóstapúðum sagði hann hafa verið að hann hefði viljað bæta þjónustuna sem hann bauð á skurð­ stofunni. Fyrst hafi viðskiptavinir hans þurft að sækja púðana út í bæ eftir að hafa fengið ávísun á þá frá honum. Í samtali við Smuguna í janúar sagði hann að í einhver skipti hafi hann lán­ að starfsbræðrum sínum brjóstapúða ef þeir áttu þá ekki til sjálfir í þeim stærðum sem þeir þurftu á að halda. Félagið sem hélt utan um rekstur­ inn hefur undanfarin ár skilað ágæt­ um hagnaði. Árið 2011 hagnaðist það um 4,5 milljónir króna og árið áður um 7,5 milljónir. Þá nam óráðstafað eigið fé félagsins 18,5 milljónum í lok síðasta árs. n Skattamál Jens eru enn til rannsóknar n Rannsókn á meintum skattsvikum Jens lýtalæknis stendur enn yfir Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is „ Þetta er langt komið Rannsókn Mál Jens voru til skoðun- ar í velferðarráðuneytinu vegna PIP- brjóstapúðamálsins en í kjölfar þess hóf skattrannsóknarstjóri rannsókn á honum. MyNd MoRguNblaðið/ ÞÖK 400 konur Jens gerði brjóstaaðgerðir á flestum þeim 400 kvenna sem fengu PIP- brjóstapúða grædda í sig. Púðarnir reyndust innihalda iðnaðarsilíkon. MyNd EyÞóR ÁRNaSoN Styðja félaga með hvítblæði „Ég er bara nokkuð hress mið­ að við allt,“ segir Ingólfur Júlíus­ son ljósmyndari en hann berst nú við bráðahvítblæði sem hann greindist með fyrir tveimur vikum. Hann er nýbúinn að ljúka lyfja­ meðferð á Landspítala Íslands þar sem hann er nú í einangrun á blóðlækningadeild. „Þetta fer svona upp og niður eftir dögum en ég er yfirleitt hress,“ sagði Ingólfur í samtali við DV.is á mið­ vikudagskvöld. Vinir hans hafa ýtt úr vör söfn­ un til að aðstoða hann og fjöl­ skyldu hans í þeirri von um að hann geti öðlast bata án þess að þurfa að standa í fjárhagsáhyggj­ um í ofanálag. Ingólfur er verktaki og á því takmarkaðan veikinda­ rétt. Hann segist vera afar þakk­ látur þeim samhug sem honum er sýndur. „Þetta er ótrúlegt. Ég er eiginlega orðlaus.“ Þeir sem geta og vilja styrkja fjölskylduna geta lagt inn á reikn­ ing í nafni konu hans, Monicu. Banki: 0319 Hb 26 Reikningsnúmer 002052 Kennitala: 190671-2249 Leitað að ökumanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns dökkleitrar bifreið­ ar, sennilega Renault Clio, í tengsl­ um við vinnuslys á plani Shell­ stöðvarinnar við Vesturlandsveg í Reykjavík klukkan 9.30 miðviku­ daginn 3. október síðastliðinn. Ver­ ið var að eiga við vatnskassa bílsins þegar óhappið varð en í fyrstu var ekki talið að starfsmaðurinn, sem var að sinna verkinu, hefði orðið fyrir meiðslum. Annað hefur nú komið á daginn og því er umræddur ökumaður beðinn um að gefa sig fram. Um er að ræða unga, dökk­ hærða konu, sem líklega er á þrí­ tugsaldri. Búi aðrir yfir vitneskju um kon­ una, bílinn og áðurnefnt óhapp eru hinir sömu vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444­ 1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@ Vill á þing S. Valentínus Vagnsson hefur gert drög að stefnuskrá flokks sem hann kallar Sprengiflokkinn. MyNd SigtRygguR aRi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.