Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 17
Fordæmd aF Fjölskyldunni
Fréttir 17Helgarblað 26.–28. október 2012
fyrrverandi eiginmanni sínum Zhang
Wei stofuna fyrir tíu milljónir króna í
febrúar 2001. Sævar Örn gat ekki lagt
fram neinar sannanir þess eðlis að
honum bæri að fá hlut í stofunni og
tapaði málinu.
Ofsótt eftir skilnað
Seinna birtist Sævar í viðtali í DV
þar sem hann sagðist brenndur af
samskiptum sínum við Línu. Hon-
um hefði sárnað þegar hún tók aftur
saman við fyrrverandi eiginmann
sinn frá Kína, Zhang Wei, eftir skiln-
aðinn við Sævar. Sagðist honum líða
eins og Zhang Wei hefði lánað sér eig-
inkonuna sína.
Eftir skilnaðinn ofsótti Sævar Línu,
hótaði henni og beitti starfsmann
hennar, Zhang Tongziang, ofbeldi.
Zhang hafði þá komið hingað til þess
að vinna fyrir Línu og bjó á nudd-
stofunni líkt og mæðgurnar. Gjörðir
Sævars Arnar gerðu það að verkum
að hann var fyrsti íslenski karlmað-
urinn sem dæmdur var í nálgunar-
bann og það ekki einu sinni
heldur tvisvar. Að lokum
var hann dæmdur í fimmt-
án mánaða fangelsi fyrir lík-
amsárásir, eignaspjöll og brot
á vopnalögum. Þá hafði hann
meðal annars ekið hratt í átt að
þeim mæðgum og Zhang þar
sem þau voru stödd í bifreiða-
geymslu. Mæðgurnar náðu að
forða sér undan bílnum með því
að hlaupa upp brekku en Zhang
ekki, Sævar Örn ók á hann svo
hann kastaðist upp á vélarhlífina.
Einnig tók hann manninn kverkataki
og herti að þar til hann missti með-
vitund og féll í gólfið og hlaut við það
ýmsa áverka.
Sýknuð af bifreiðarsvikum
Mágur Sævars Arnar stefndi Línu líka
fyrir svik í bifreiðarviðskiptum. Lína
varðist og sagðist ekki hafa keypt bif-
reiðina af honum heldur af Sævari
Helga. Fyrir það hefði hún greitt 700
þúsund krónur, með peningum og
eftirgjöf á skuld. Hún hefði hvorki haft
samskipti við Má né veitt Sævari um-
boð til að skuldbinda hana við yfirtöku
á láni og sakaði hann um að hafa fals-
að ritun nafns hennar. Sævar hafði þá
„gert út um kaupin við eldhúsborðið“
og undirritað skjölin fyrir hönd Línu.
Sagðist hann hafa gert það þar sem
tungumála-
kunnátta hennar
væri takmörkuð
og því hefði hann
oft undirritað
skjöl fyrir hana.
Hún hefði yfirleitt
ekki komið nálægt
neinum viðskipt-
um „nema það
væri alveg nauðsynlegt“. Sagði hann
jafnframt að bílinn hefðu þau bæði
notað en þar sem hann hefði skuld-
að skatta hefði honum tekist að halda
bílnum frá skuldheimtumönnum
með þessu móti. Dómur féll í málinu
árið 2000 og var Lína sýknuð af ásök-
unum um svik.
Lýsti eftir horfnum manni
Ári síðar hvarf starfsmaður af nudd-
stofu Línu en hún dó ekki ráðalaus
heldur auglýsti hún eftir manninum
í fjölmiðlum. Í fyrstu kannaðist lög-
reglan ekkert við málið en dóttir Línu
staðfesti mannshvarfið við blaða-
menn DV, sagði að Pang hefði horfið
úr vinnunni og lofaði góðum fundar-
launum. Rúmri viku síðar reyndi hún
að draga málið til baka, sagði það
byggt á misskilningi, hann væri fund-
inn og „… hann vill ekki tala um það,“
sagði hún og neitaði að tjá sig frekar
um málið. Lína hafði aftur á móti aðra
sögu að segja, sagð-
ist ekki hafa séð Pang
í margar vikur, hann
væri ekki á stofunni
og ekki með síma.
Pang hafði þá búið
í tvö ár á Íslandi þar
sem hann starfaði hjá
Línu og bjó ásamt öðru
starfsfólki hennar í kjallaranum á
nuddstofunni. Þegar hann komst svo
að því að Lína hafði lagt sex milljón-
ir króna inn á reikning hans án hans
vitneskju tók hann út pening og flúði
ásamt tveimur öðrum starfsmönnum
nuddstofunnar.
Fleiri starfsmenn segja að Lína
hafi lagt peninga inn á reikninga
þeirra. Í bréfinu frá Sun segir að Lína
DV ræddi við nokkra einstaklinga sem
höfðu nýtt sér þjónustu Línu Jia og
eiginmanns hennar, Wei Zhang. Þau sem
DV ræddi við voru öll á einu máli um það að
nuddið á stofunni væri afbragðs gott, en
þegar kom að því að lýsa aðstæðum á
stofunni kvað við annan tón.
„Svart og sykurlaust“
Ein kona sem blaðamaður ræddi við
sagði að það væri sér hjartans mál að
það kæmi fram að sér líkaði ágætlega á
nuddstofunni í Kópavogi. Hún hefði sótt
hana í nokkur ár og að það hefði hjálpað
henni mikið bæði varðandi bakverki og
vöðvabólgu.
Hún segist ekki telja að mansal sé stundað
á stofunni og að hún trúi því varla að slíkt
geti átt sér stað þar. Þó hefði hún séð
eitt og annað sem hún taldi athugavert
við starfsemina. Þó að það væri alltaf
mjög mikið að gera á stofunum fengi hún
undantekningarlaust tíma samdægur. Það
væri þó sjaldan sami aðili sem nuddaði
hana og hún taldi að mannaskipti væru ef
til vill hröð.
„Þetta er náttúrulega allt svart og sykur-
laust,“ segir hún meinar að alltaf þegar
hún heimsækir stofurnar greiði hún með
reiðufé. „Þetta er allt mjög sérstakt, en
ég hringi og þau spyrja hvort ég vilji koma
strax. Það er einmitt það sem ég hef sótt
í – ég vil koma þegar mér líður illa. En þau
hafa hjálpað mér mikið og nuddið er alltaf
mjög gott og ég kem þaðan endurnærð.
Þetta er frábært nudd – alveg dásamlegt
nudd.“
„Pay now“
Önnur kona sem DV ræddi við var langt
í frá eins hrifin af nuddstofunni og segir
að fyrstu kynni hennar af stofunni hefðu
verið á þann veg að þangað færi hún aldrei
aftur. Nuddið var gott, en hún sagðist
hafa fengið ónotatilfinningu gagnvart
umgjörðinni á stofunni og aðstæðum þar.
Þegar hún kom þangað, í þetta fyrsta og
eina sinn, var engin á stofunni nema ungur
piltur. „Hann var ekki orðin tvítugur,“ segir
hún. „Þegar ég kom þá var hann þarna
en hann talaði eiginlega enga ensku og
alls ekki íslensku. Hann tók upp símann
og hringdi í einhvern og rétti mér tólið.
Þá sagði kona mér á bjagaðri ensku að ég
ætti að „pay now“.“
Nuddarinn leiddi hana svo að nuddbekk
og sagði „clothes off“ og yfirgaf herbergið.
Þegar hún var lögst á bekkinn spurði hann
hana svo „where pain“ og bað hana um
að snúa sér á alla kanta svo hægt væri
að nudda hana. „Svo fór ég í nuddið, og
hann nuddaði mig vel það vantaði ekki, en
ég get alveg sagt þér það að ég kem ekki
til með að fara þangað aftur,“ segir hún,
og segist hafa átt erfitt með að losna við
ónotin eftir heimsóknina.
n Kínverskur nuddari ber Lína Jia þungum sökum n „Hún er bara að ljúga þessu“ n Þrír menn flúðu nuddstofuna í skjóli nætur n Fjölskyldan afneitar Línu Jia
„Þetta er allt
mjög sérstakt“
n Misjöfn upplifun viðskiptavina
„Ég skil þetta ekki.
Ég er ekki vondur
– ég vil engum illt. Ég er
góður nuddari.
Ákærð og dæmd Lína hefur áður lent í vandræðum vegna meðferðar á starfsfólki
sínu og hefur ítarlega verið fjallað um starfsemina í fjölmiðlum.