Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 40
40 Lífsstíll 26.–28. október 2012 Helgarblað
Girnilegar marsipanuppskriftir
n Jólakossar og marsipanstangir
Á
Facebook síðu Odense gef-
ur að líta girnilegar marsip-
anuppskriftir. Þeir sem eru
farnir að huga að konfektinu
fyrir jólin geta kynnt sér vandað-
ar sælkerauppskriftir á síðunni. Þar
er til dæmis að finna, jólakossa og
marsipanstangir sem einfalt er að
útbúa.
JÓLAKOSS
n 500 gr Odense Ren Rå Marcipan
n 300 gr sykur
n 1 dl vatn
n 150 gr eggjahvítur
Aðferð: Skerið Odense Ren Rå
Marcipan í 30 sneiðar, leggið á
bökunarpappír og bakið við 180°C í
5–8 mínútur.
Kremið: 300 gr af sykri og 1 dl vatn
látið sjóða upp. Sjóðið í 2 mínútur.
150 gr af eggjahvítum þeyttar létt og
sykurblöndunni bætt varlega við.
Þeytið stíft saman með handþeytara
í 15 mínútur. Kremið á að vera mjög
stíft. Sprautið kreminu á marsipan-
botnana og bakið í u.þ.b. 5 mínútur
við 180°C.
Eftir að hafa kælt kossana, dýfið
þeim í brætt súkkulaði.
MARSiPANSTÖNG
n 300 gr hreint Odense Ren Rå Marcipan
n 50 gr pistasíuhnetur, ósaltaðar
n 1 msk. Amaretto-líkjör
n 200 gr dökkur Odense-hjúpur
n 200 gr hvítur Odense-hjúpur
n 10 stk.
Aðferð: 2/3 hlutum af hnetunum
er hnoðað saman við marsipanið
ásamt líkjörnum. Deiginu er skipt
í 10 hluta og hver um sig mótaður í
aflangan þríhyrndan bita. Dökkur
og/eða hvítur hjúpur er bræddur
og botninn á marsipanhleifnum er
hjúpaður og kældur. Efri hlutinn
af marsipan hleifnum er hjúpaður
með því að pensla/dýfa honum í
hjúp tvisvar sinnum. Skreyttur með
pistasíuhnetum áður en hjúpurinn
stífnar. Ábending: Geymist innpakk-
að við 14–16°C í u.þ.b. þrjár vikur.
Styrkjum
hjartað
Hjartað í okkur hefur slegið yfir 2,5
milljarða slaga þegar við erum 70 ára
gömul sem er mikil vinna fyrir líffæri
á stærð hnefa. Hreyfing er mikilvæg
þegar kemur að því að halda hjartanu
sterku en mataræðið hefur einnig
mikið að segja. Á síðunni womens-
healthmag.com eru talin upp fimm
matvæli sem eru góð fyrir hjartað.
1 Trönuber Vísindamenn við Scranton-háskóla í Penn-
sylvaníu komust að því að þeir sem
drekka sem samsvarar þremur boll-
um af trönuberjasafa á dag hækkuðu
gildi HDL (hollt kólesteról) um tíu
prósent en við það minnkaði hættan
á hjartasjúkdómum um 40 prósent.
Talið er að efnasambönd í berjunum,
sem kallast „polyphenols“, séu ábyrg
fyrir þessu. Trönuberjasafar eru oft
þynntir svo mikilvægt er að leita eftir
safa sem inniheldur að minnsta kosti
27 prósent trönuberjasafa.
2 Heilkorn Í rannsókn sem framkvæmd var við Tulane-
háskóla komust rannsakendur að
því að þeir sem borða fjóra eða fleiri
skammta af heilkornum, hnetum eða
baunum á viku, eru í 22 prósent minni
hættu á að fá hjartasjúkdóma en þeir
sem borða slík matvæli einu sinni í
viku eða sjaldnar.
3 Greipaldin Með því að borða einungis einn slíkan
ávöxt á dag minnkar þú heildar-
kólesteról um átta prósent og LDL
(slæmt kólesteról) um ellefu prósent
og minnkar þar með hættuna á
hjartasjúkdómum. Úr einu greipaldini
færðu einnig meira en 150 prósent af
ráðlögðum dagskammti af C-vítamíni.
4 Vatn Vísindamenn við Loma Linda-háskólann hafa komist
að því að að fimm til átta glös af vatni
á dag hjálpa til við að minnka hættu
á hjartasjúkdómum um allt að 60
prósent. Það eru sömu líkur og fást
með því að hætta að reykja, lækka
kólesteról, með hreyfingu og að vera
í kjörþyngd.
5 Fiskur Omega 3-fitusýrur sem fást úr feitum fiski og
hörfræjum styrkja hjartavöðvann,
lækka blóðþrýsting, koma í veg fyrir
ofstorknun blóðs og minnka bólgur í
líkamanum.
Ertu háð/ur klámi?
n Níu augljós merki þess að þú eigir við vandamál að stríða
K
oma internetsins breytti öllu.
Með einum smelli geturðu
bókað flug, gert matvöruinn-
kaupin þegar þér hentar og
talað við skyldmenni sem búa hin-
um megin á hnettinum án þess svo
mikið sem lyfta rassinum. En þar
með er ekki allt upptalið. Með komu
internetsins varð einnig aðgangur að
nekt, klámi og alls kyns óþverra mun
aðveldari svo klámfíkn er orðin viður-
kennt vandamál. Tímaritið FHM
býður upp á níu auðveldar leiðir
til að sjá hvort þú átt við vandamál
að stríða.
Þú misskilur
kærustuna
þína þegar hún
segist vilja
„andlitsnudd“
Hún þráir andlits-
meðferð hjá færum
húðsjúkdómalækni og fokdýr krem,
full af næringarríkum efnum.
Það eina sem kemur í hugann á
þér er allt önnur tegund af hvítu efni.
Þú kannt að fela slóðina
„Private browsing“, „delete
cookies“ og „browser resets“ hljóm-
ar eins og bull í eyrum þeirra sem
eyða ekki öllum stundum við að
horfa á klám á netinu.
Sérfræðingur í óþverranum veit
upp á hár hvernig hann getur falið
slóðina fyrir öðrum heimilismeð-
limum.
Allt – gjörsamlega allt – verður
dónalegt í þínum huga
Þú hefur séð svo margt rugga, titra
og hristast að þú ert far- in/n
að sjá klám í öllu.
Einföld mynd eins
og þessi af handar-
krika þessa manns
verður til þess að
þig þyrstir í fjögurra
klukkustunda mara-
þonáhorf á RedTube.
Konan sem þú ert að
„deita“ segir þér að hún
elski vatnasport …
… og þú ferð strax að leita að plast-
lökum á Amazon.
Hún var hins vegar að tala um
seglbretti.
Þú þekkir allar „leikkon-
urnar“ hér að ofan með
nafni
Þú þekkir nöfn á hinum ýmsu
karlkyns klámstjörnum
Ef áhorfið er nógu mikið fara jafnvel
gagnkynhneigðustu menn að líta á
klámstjörnur á borð við Scott Nails og
Peter North sem vini sína –
bara allsbera vini með
óvenjulega stór typpi.
Ef þú þekkir einnig
nöfn hljóðmannanna
og þeirra sem stjórna
ljósabúnaðinum er
greinilega kominn tími á
að slíta nettenginguna.
Þú eyðir allt of löngum
tíma að leita að hinni full-
komnu mynd
Þegar þú byrjaðir að fikta þig áfram í
heimi klámsins þurfti lítið annað en
stutt skot af geirvörtu til þess að þú
fengir nægju þína.
Í dag eyðir þú dýrmætum klukku-
stundum af lífi þínu í að leita að ein-
hverju nýju sem gæti örvað þinn
klámdofna huga.
Þú kannt allt rétta slangrið
Meira að segja amma þín
þekkir undirstöðuorðin í heimi kyn-
lífsins. Þess vegna varð hún svona
skelfd þegar þú sagðist ætla að gefa
henni perlufesti í áttræðisafmælis-
gjöf.
En ef þú sérð alþjóðlegu
skammstöfunina fyrir hrað-
banka sem eitthvað kynferðislegt
þá áttu líklega við vandamál að
stríða. ATM er ekki aðferð til að ná
sér í munnsýkingu heldur reiðufé.
Þú ert að lesa þetta
Þú dregst að öllu sem inni-
heldur orðið „klám“. Og þar á meðal
þessari grein.
1
2
3
4
5
6
7
8
9