Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 14
VILL RANNSÓKN Á ÆVINTÝRINU 14 Fréttir 26.–28. október 2012 Helgarblað G uðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjar­ stjórn Kópavogs, óskaði eftir því á bæjarstjórnarfundi á fimmtu­ dag að hafin yrði rannsókn á kaupum Kópavogsbæjar á svokölluðu Glað­ heimalandi, eignarnámi í Vatnsenda og vatnssölu til Garðabæjar. Lagði hún til að óháður úttektaraðili yrði fenginn til þess að fara yfir aðdraganda og vinnubrögð kjörinna fulltrúa og starfs­ manna bæjarins vegna þessara mála. Eins og kunnugt er birti DV út­ tekt um málefni Glaðheimalandsins á miðvikudaginn. Þar kom fram að samkvæmt heimildum DV sannfærði Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjar­ stjóri Kópavogsbæjar, verktaka árið 2005 um að byggt yrði á Glaðheima­ svæðinu í Kópavogi. Í ágúst árið 2005 hófu byggingaverktakar að sýna svæði hestamannafélagsins Gusts við Glað­ heima í Kópavogi áhuga. Þá hafi sömu verktakar verið búnir að gera samkomulag við Straum­Burðarás um sölu á svæðinu upp á sex millj­ arða króna árið 2006. Gunnar hafi hins vegar komið í veg fyrir að umrætt samkomulag yrði að veruleika. Rándýrt ævintýri Óhætt er að segja að hvert áfallið á fætur öðru hafi komið niður á Kópa­ vogsbæ eftir að samþykkt var að kaupa Glaðheimasvæðið á 3,2 millj­ arða króna árið 2006. Við kaupin hafði bærinn samið við hestamannafélagið Gust um að borga kostnað við flutn­ ing á hesthúsahverfinu yfir á Kjóavelli þrátt fyrir að bærinn ætti ekki land á því svæði á þeim tíma. Jafnframt samdi bærinn við hesta­ menn um fjármögnun á uppbyggingu á nýju svæði auk reiðhallar og reið­ vega. Var talið að heildarkostnaður við flutninginn myndi nema um tveimur milljörðum króna fyrir Kópavogsbæ. Í upphafi árs 2007 seldi Kópavogsbær síðan Glaðheimasvæðið á 6,5 millj­ arða króna. Sagðist Ármann Kr. Ólafsson, þá­ verandi forseti bæjarstjórnar Kópa­ vogsbæjar, í samtali við Morgunblað­ ið við það tilefni gera ráð fyrir um 1,5 milljarða króna hagnaði fyrir bæinn vegna sölu Glaðheimasvæðisins þegar búið væri að taka kostnað við flutning aðstöðu hestmanna upp á Kjóavelli inn í reikninginn. Kaupendur svæðisins skiluðu því hins vegar aftur til bæjarins eftir hrun. Þar með varð bærinn bæði af um­ ræddum 1,5 milljarða króna hagnaði og 500 milljóna króna árlegum áætl­ uðum skatttekjum af svæðinu auk þess sem bærinn borgar enn vexti og verðbætur vegna 3,2 milljarða króna láns vegna kaupa á svæðinu árið 2006. Slæm samningsstaða um Vatnsenda Ofan á þetta bættist síðan eignarnáms­ sátt um 864 hektara lands á Vatnsenda á milli Kópavogsbæjar og Þorsteins Hjaltested, eiganda landsins, sem undirrituð var í lok janúar árið 2007. Eins og áður kom fram ákvað bærinn að flytja hestamenn upp á Kjóavelli sem eru inni á landi Vatnsenda í maí 2006 án þess að eiga þar land. Þar af leiðandi hafi samningsstaða Kópa­ vogsbæjar gagnvart Þorsteini Hjalte­ sted verið afleit – hann hafi getað komið ýmsu inn í samninginn vegna þeirrar stöðu sem bærinn var kom­ inn í. Kópavogsbær hefur þegar greitt Þorsteini Hjaltested tæplega 2,3 millj­ arða króna fyrir Vatnsendalandið. Jafnframt kom fram í sáttagerðinni að bærinn átti að afhenda honum að lág­ marki 300 lóðir undir sérbýli á 35 hekt­ ara svæði með fullfrágengnum götum, veitum og stígum. Einnig átti hann að fá ellefu prósent af öllum byggingarétti fyrir íbúðarhús og atvinnuhúsnæði sem úthlutað yrði á hinu eignarnumda landi. Kópavogsbær hefur einungis staðið við að greiða Þorsteini um 2,3 milljarða króna. Þorsteinn í mál 2011 Árið 2011 fór Þorsteinn síðan í mál við bæinn vegna vanefnda á samn­ ingnum. Að auki hefur ekki tekist að aflétta vatnsvernd af svæðinu – annað atriði sem hefur kostað Kópavogsbæ mikla fjármuni. Þess má geta að árið 2006 gerði Kópavogsbær samning við Garðabæ um sölu á vatni. Samkvæmt honum veitir Kópavogur Garðabæ vatn á 25 prósent af kostnaðarverði til ársins 2017 og 50 prósent af kostnað­ arverði 2018 til 2027. Í lok ágúst á þessu ári vísaði Hæsti­ réttur 5,6 milljarða króna kröfu Þor­ steins Hjaltested á hendur Kópa­ vogsbæ aftur í hérað. Byggist krafan á áætluðu virði hins 864 hektara svæð­ is sem sátt var gerð um í janúar 2007, þær 300 lóðir sem áttu að afhendast fullfrágengnar auk rúmlega tíunda­ hluta af byggingarétti á svæðinu. Margir af þeim sem DV ræddi við telja að Þorsteinn Hjaltested eigi góða möguleika á því að vinna umrætt dómsmál. Líklegast sé þó að hann og Kópavogsbær nái að semja til mála­ mynda áður en að því kemur. Hins vegar er ljóst að kostnaður Kópa­ vogsbæjar vegna þessa mun leiða til þess að fjárhagsstaða bæjarins mun versna enn frekar – vilja sumir ganga svo langt að tala um mögulegt gjald­ þrot bæjarins. „Ófyrirséðar afleiðingar“ „Það liggur algjörlega fyrir að bærinn er stórskuldugur út af þessu ævintýri og það mun taka tíma að ná skuldum bæjarins niður,“ segir Guðríður þegar hún er spurð hvernig þessi vandræði bæjarins vegna kaupa á Glaðheima­ og Vatnsendasvæði gætu endað. Þegar hún er spurð hvort Kópavogur gæti þá jafnvel lent í gjaldþroti segir hún: „Það er náttúrulega alveg ljóst að ef við töp­ um þessu dómsmáli, þá hefur það ófyrirséðar afleiðingar fyrir bæjarsjóð. Sveitarfélög í sjálfum sér verða ekki gjaldþrota, en ég þori eiginlega ekki og vil ekki tjá mig um það að öðru leyti en því að ef þessi stóra skuldbinding fell­ ur á bæinn þá hefur það ófyrirséðar af­ leiðingar.“ Þannig að tæknilegt gjaldþrot bæj­ arfélagins er möguleiki í stöðunni? „Ég bara þori ekkert að segja til um það, og vil bara ekkert kommenta á það.“ n n Guðríður Arnardóttir vill rannsókn á Glaðheimaævintýri Kópavogsbæjar Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is „… ef við töpum þessu dóms- máli, þá hefur það ófyrirséðar afleiðingar fyrir bæjarsjóð Skuldastaða Kópavogs- bæjar 2005–2011 Ár Skuldir * Eigið fé (eiginfjárhlutfall) 2005 21,914 9,470 (30%) 2008 37,441 10,091 (21%) 2011 44,469 14,113 (24%) Hækkun 103% (-6%) *UppHæðiR í milljöRðUm kRÓna Sex milljarða krafa Hæstiréttur vísaði kröfu Þorsteins Hjaltested á hendur Kópavogsbæ upp á nærri sex millj- arða króna aftur í hérað í lok ágúst á þessu ári. Fjárhags- staða Kópavogsbæjar myndi versna til muna ef bærinn þyrfti að greiða nokkra milljarða af umræddri kröfu. Vill óháða úttekt Guðríður lagði það til á fundi bæjarstjórnar að óháður úttektaraðili yrði fenginn til að fara yfir vinnubrögðin. Glaðheimaævintýrið n 1988: Kópavogsbær gerir nýjan 50 ára samning við hestamannafélagið Gust um Glaðheimasvæðið. Fyrirvari er í lóðaleigusamningum sem segir þá „uppsegjanlega án fyrirvara og án bóta“. n Ágúst 2005: KGR eignarhaldsfélag sendir öllum hesthúsaeigendum í Glaðheimum kauptilboð. 80 þús/fm fyrir gömul hús og 100 þús/fm fyrir ný. Heimildir DV herma að Gunnar Birgisson hafi stuttu áður lofað verktökunum breytingum á svæðinu. n Haust 2005: Hægt gengur hjá uppkaupamönnum sem hækka tilboðið í 180 þús/fm. n janúar 2006: Gunnar Birgisson segir engar breytingar fyrirhugaðar í Glaðheimum. n Febrúar 2006: Uppkaupamenn bjóða nú 280 þús/fm og hafa náð að eignast um þriðjung húsanna í hverfinu. n apríl 2006: Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks ákveður að kaupa verktaka út úr Glaðheimaævintýrinu. Borgar þeim 295 þús/fm. Verktakar hagnast um 500 milljónir króna. n maí 2006: Kópavogsbær kaupir Glaðheimasvæðið á 3,2 milljarða króna. n Sumar 2006: Samið við Garðabæ um niðurgreitt vatn frá Vatnsveitu Kópavogs. Garðabær fær vatn á 25% af kostnaðarverði 2007–2017. Síðan á 50% af kostnaðarverði 2018–2027. n janúar 2007: Kópavogsbær selur Glaðheimasvæðið á 6,5 milljarða króna. Gerir ráð fyrir 1,5 milljarða hagnaði af sölunni. Auk þess komi fljótlega 500 milljónir króna árlega í skatttekjur af svæðinu. n janúar 2007: Eignarnámssátt á milli Þorsteins Hjaltested og Kópavogsbæjar um 864 hektara af landi Vatnsenda. Þorsteinn fær greiddar 2,3 milljarða króna. n nóvember 2008: SMI, félag Jákub Jacobsen í Rúmfatalagernum, skilar 40% af Glað- heimasvæðinu til Kópavogsbæjar. Hafði einungis greitt 10% af kaupverðinu sem bærinn endurgreiddi SMI. n mars 2010: Kaupangur semur við Kópavogsbæ um að skila 60% af Glaðheimasvæðinu sem félagið hafði keypt árið 2007. Hafði einungis greitt 10% af kaupverðinu sem bærinn endurgreiddi Kaupangi. n mars 2011: Fréttatíminn birtir frétt um að kostnaður Kópavogsbæjar vegna Glaðheima- ævintýrsins sé kominn yfir 12 milljarða króna. n maí 2011: Þorsteinn Hjaltested kærir Kópavogsbæ fyrir vanefndir á eignarnámssátt sem gerð var 30. janúar 2007. n Ágúst 2012: Hæstiréttur vísar 5,6 milljarða króna kröfu Þorsteins Hjaltested á hendur Kópavogsbæ aftur í hérað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.