Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 36
1. sæti Páll Óskar Hjálmtýsson n „Verður bara betri með hverju árinu. Með heiðarlegustu textana í dag. Persónuleikinn skiptir máli í poppinu og þar eru fáir með tærnar þar sem Páll Óskar hefur hælana. Legg­ ur mikið í atriðin þegar hann kemur fram og það er nær öruggt að fólk skemmtir sér þegar Palli er kominn í hús – hvort sem hann er með tónleika eða ekki.“ n „Svo mikill gleðigjafi, það ljómar svo af honum og við elskum hann öll.“ n „Hin eina sanna poppstjarna á Íslandi. Aðrir komast ekki með tærnar þar sem hann er með hælana þegar kemur að „performance“.“ n „Páll Óskar er og verður ókrýndur popp­ kóngur Íslands!“ „Fæddist poppari og mun ávallt vera það. Hefur allt sem þarf. Er einstakur í að koma fólki í gírinn. Slær ekki feilnótu og slær í gegn með hverjum slagaran­ um á fætur öðrum. Bæði ungir sem aldnir fíla hann og allir þekkja lögin hans. Hörðustu rokkarar breytast í dansglaða poppara á augabragði þar sem líkami þeirra tekur yfir og leyf­ ir gleðinni sem Palli dælir frá sér af sinni einskæru snilld að ná tökunum. Skemmtikraftur af allra bestu gerð.“ n „Börn elska hann, gamalt fólk elskar hann, unglingar elska hann og ég elska hann.“ n „Palli er auðvitað poppkóngurinn! Fallegur á allan hátt. Manni hlýnar bara í hjartanu við að hugsa um Palla. Með dásamlega útgeislun, skemmtikraftur af guðs náð og svo er hann líka svo flottur! Hann á fyrsta sætið skuldlaust.“ 36 26.–28. október 2012 Helgarblað m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g „Magnaður Mercury“ „Frjálsleg uppskrift í réttum hlutföllum“ The Great Pretender Rhys Thomas Astralterta Stuðmenn/Ágúst Guðm. „Palli er PoPP- kóngurinn!“ DV leitaði til fjölbreytts hóps í leitinni að núverandi poppstjörnu landsins. Margir nýliðar komust á listann en engum þeirra tókst að skáka Páli Óskari Hjálmtýs- syni. Þórunn Antonía og Jón Jónsson verma saman annað og þriðja sætið. 2.–3. sæti Þórunn Ant- onía Magnúsdóttir n „Fulltrúi kven­ þjóðarinnar þegar kemur að poppi á Íslandi í dag. Set­ ur skemmtilegan eitís blæ á poppið sitt og lögin höfða því til breiðari hóps en ella. Klæðir sig eins og poppstjarna og er dugleg að koma sér á framfæri. Hún þráir líf poppskvísunnar, bæði hér heima og utan landsteinanna og mun ör­ ugglega ná að lifa því lengi hvar sem það verður.“ n „Flott stelpa sem syngur sjúklega vel og hefur allan pakkann.“ n „Besti poppari landsins á þessari stundu. Er ekki að elta það sem er að gerast í dag heldur er með sinn eigin stíl sem virkar vel fyrir hana. Metnaðurinn sem hún leggur í tón­ listina og myndböndin skilar sér í eyru og augu hlustenda. Það er ekki ólíklegt að hún slái í gegn á heims­ vísu ef hún hefur áhuga á því.“ n „Þórunn Antonía er Kylie Minogue Íslands. Alvöru popp­ stjarna sem getur allt!“ 2.–3. sæti Jón Jónsson n „Fyrst þegar ég heyrði í hon­ um hélt ég að þetta væri ein­ hver drengur frá útlöndum sem væri búinn að „meika‘ða“.“ n „Nútímapopp­ ari. Æðisleg­ ur söngvari sem er meira í ró­ legu popplögunum en getur alveg tekið slagarana og slátrað þeim. Á fjöld­ ann allan af góðum lögum sem eru hvert öðru betra. Öllum líkar við hann. Hress, skemmtilegur, einlæg­ ur, klár. Algerlega niðri á jörðinni. Mann langar að honum gangi vel og það stefnir nú allt í það. Hvort hann muni kallast poppari úti í hinni glysgjörnu Hollywood er annað mál en hann mun „meika‘ða“.“ n „Framúrskarandi tónlistarmað­ ur, flott fyrirmynd, sjarmerandi og allt þar á milli. Með allan pakkann. Draumadrengurinn með hagfræði­ prófið, ritstjóradjobbið, erlenda plötusamninginn og samt í góðu lagi með hann. Hann hlýtur að kremja hamstra í frístundum eða gera eitthvað hræðilegt – hlýtur bara að vera.“ n „Vá, hvað Jón Jónsson er heill­ andi! Einlægur, bjartur og fagur. Það er eitthvað svo ótrúlega ein­ lægt og fallegt við Jón Jónsson. Frá­ bær fyrirmynd, ekki einungis fyrir yngri kynslóðina heldur fyrir alla! Ég hef fulla trú á því að heimsbyggðin eigi eftir að hrífast með og heillast af Jóni Jónssyni.“ 4.–5. sæti Ás- geir Trausti n „Kemur eins og stormsveipur inn í íslenska músík með ferska og ferlega flotta músík.“ n „Ferskur blær í íslenskt tónlistar­ líf, hógvær og sjarmerandi. Litli bróðir Steina í Hjálmum og því ekki langt að sækja hæfileikana.“ n „Ásgeir Trausti er Bon Iver Ís­ lands.“ 4.–5. sæti Ragga Gísla n „Einstök. Hörkutól og töffari. Stútfull af hæfileikum. Svo skemmir ekki fyrir hvað hún heldur sér hrika­ lega vel.“ n „Þó hún sé kannski ekki mikið í poppinu lengur þá er ég nýkom­ in af Stuðmannatónleikum í Hörpu og hún sannaði þar að hún er drottning poppsins hérlendis. Þessi rödd, þetta útlit, þessi karakter og þetta ótrúlega form! Hún á þetta skuldlaust!“ n „Metnaður og fágun út í eitt. Ein besta söngkona sem við eigum.“ 6.–10. sæti Magni Ásgeirsson n „Hörkusöngvari sem hann sannaði svo um munaði í Rock Star hér um árið. Svo er hann bara svo „likable“ og það fleytir mönnum langt.“ n „Frábær söngvari en kannski eru það sexíheitin í gaurnum sem gerðu það að verkum að ég gaf honum at­ kvæði.“ 6. –10. sæti Andrea Gylfadóttir n „Stelpurokkarinn er bara hrein unun á sviði! Slær aldrei feiltón og nýtur sín í botn böðuð í sviðsljóm­ anum. Todmobile tók auðvitað poppið upp á annað „level“ á sínum tíma og Andrea heldur því „leveli“ alltaf.“ n „Ein magnaðasta söngkona sem ég hef á ævinni heyrt í.“ 6.–10. sæti Helgi Björnsson n „Kóngurinn. Þarf ekki að útskýra það frekar.“ n „Mick Jagger Íslands. Gjörsamlega tekur sviðið og pakkar því saman. Það skín af honum hversu vel hann skemmtir sér og það skil­ ar sér alltaf til áhorfenda. Kannski ekki besti söngvari lands­ ins en það skiptir engu því hann er besti „performerinn“. „Halló! Ég elska þig!““ 6.–10. sæti Mugison n „Með betri ís­ lenskum tónlistarmönnum. Gerir góða og áhugaverða texta.“ n „Hefur gert fullt af frábærri músík.“ 6.–10. sæti Unnsteinn Manuel í Retro Stefson n „Framúrskarandi tónlistarmaður, flott fyrirmynd, sjarmer­ andi og allt þar á milli.“ n „Vá, þvílíkir listamenn í Retro Stefson. Sjúklega flottir og Unnsteinn er besti poppari lands­ ins.“ Ingó Veðurguð n „Heldur velli með einfalt skemmtilegt popp sem nær til allra. Stóð sig betur en Ronan Keating í brekkunni á Þjóðhátíð – það er ekki nóg af vera bara töff og kúl, það þarf að geta skemmt fólki!“ Of Monsters and Men n „Eiga bransann. Einlægni, krúttlegheit og hreinræktaðir hæfileikar gera þau að óskabandi þjóðarinnar. Engir stælar né óregla – bara góðar fyrirmyndir og dásamlegheit.“ Agnes í Sykri n „Hefur sjarma og þor, stútfull af krafti.“ Hallgrímur Jón í Kiss the Coyote n „Dave Grohl Íslands. Trommari með englarödd.“ Daníel Ágúst og Björn Jörundur n „Koma sterkir inn þessa dag- ana. Nýju lögin eru mögnuð. Það er eitthvað við sam- hljóminn hjá þeim sem dregur mann í draumaheim og þeir eru líka sem popparar í öllu sem þeir gera.“ Friðrik Dór n „Heeeeitur!“ Svala Björgvins n „Alvöru stjarna sem getur allt. „Perfect“ í öllu! Framkomu og söng! Heimurinn á eftir að heyra í henni.“ Jón Þór Birgisson í Sigur Rós n „Magnaður tónlistarmaður og galdramaður á sínu sviði.““ Guðmundur Jónsson í Sálinni n „Einn af okkar allra bestu laga- smiðum.“ Björgvin Halldórsson n „Need I say more?“ Guðmundur Pétursson n „Frábær og smekklegur gítarleikari.“ ÞAU VORU LÍKA NEFND n Ágúst Bjarnason kvikmyndagerðarm. n Björk Eiðsdóttir ritstjóri n Einar Bárðarson n Erla Hlynsdóttir fréttamaður n Erla Tryggvadóttir útvarpskona n Hugrún Á. Þorvaldsdóttir hárgreiðslum. n Ingibjörg Reyn- isdóttir leikkona n Ingó Geirdal rokkari og töframaður n Nonni Quest hárgreiðslum. n Sigrún Birna Blomsterberg útvarpskona n Stefán Svan Aðalheiðarson innkaupastj. n Rúnar Róberts útvarpsmaður n Tobba Marinós fjölmiðlakona n Þóra Sigurðardóttir fjölmiðlakona ÁLITSGJAFAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.