Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Blaðsíða 10
10 Fréttir 26.–28. október 2012 Helgarblað
n Björn Þorri og Helgi Hjörvar ráðleggja fólki að krefja bankana um endurútreikning
B
æði Björn Þorri Viktorsson
hæstaréttarlögmaður, sem
sérhæft hefur sig í gengis-
lánum, og Helgi Hjörvar, for-
maður efnahags- og við-
skiptanefndar, hvetja fólk til að senda
bönkunum formleg bréf og krefja þá
um endurútreikning gengislána. Í síð-
ustu viku féll dómur í máli Borgar-
byggðar gegn Arion banka þar sem
Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu að bankanum væri óheimilt að
breyta vöxtum á lánum sveitarfélags-
ins aftur í tímann.
Dómurinn þýðir að fjölmargir geta
nú átt von á að fá endurgreiðslu vegna
lánanna.
Skrifið þeim kröfubréf
„Ég hvet fólk til að senda kröfubréf
á bankana, helst á bankastjórana
sjálfa eða æðstu aðila. Bréfin skulu
send í ábyrgð eða farið með þau og
látið kvitta fyrir móttökunni og í bréf-
inu á fólk að krefjast endurútreikn-
ings án tafar í samræmi við þennan
dóm,“ segir Björn Þorri í samtali við
DV. Í sama streng tók Helgi Hjörvar á
Beinni línu á DV.is á miðvikudaginn
þegar hann var beðinn að ráðleggja
fólki. „Ef það er með ólögmæt geng-
islán, þ.e. sem voru alfarið í íslensk-
um krónum, þá ætti það að óska eftir
endurútreikningi hjá sínum banka – ef
það stóð í skilum eða samdi við bank-
ann um greiðslur. Ég sé enga ástæðu
fyrir banka til að neita viðskiptavin-
um sínum um slíkan endurútreikning
enda hafa a.m.k. tveir þegar hafið
endurútreikning.“
Taka má fram að Landsbankinn og
Drómi hafa að sögn forsvarsmanna
þegar hafið endurútreikninginn.
Pressa á fjármálafyrirtækin
Björn Þorri segir afar mikilvægt að fólk
sé vakandi og krefji fjáramálafyrir-
tækin um endurreikning því það geti
haft áhrif á endanlegan rétt til drátt-
arvaxta. Samkvæmt vaxtalögunum þá
gilda ákveðnar reglur um það að fólk
þurfi að setja fram kröfu með formleg-
um eða sannanlegum hætti til að geta
síðar krafist dráttarvaxta. „Þar með er
komin pressa á fjármálafyrirtækin til
að aðhafast eitthvað í þessum mál-
um,“ segir Björn Þorri – fjölmargir að-
ilar séu í þeim sporum að enn sé verið
að rukka þá. „Þetta eru kannski lágar
fjárhæðir, segjum 500.000 krónur í
reiknuðum eftirstöðvum, en það get-
ur bent til þess að lánið sé í raun upp-
greitt og þar með eigi fólki inni endur-
greiðslukröfu.“ Eins eigi þeir sem hafa
nú þegar fengið endurreikning og
endurgreiðslur, nær undantekningar-
laust rétt á aukinni endurgreiðslu.
Hissa á þolinmæði opinberra aðila
Að mati Björns Þorra er ótrúlegt að
fylgjast með framkomu og málflutn-
ingi Lýsingar en í vikunni tilkynnti
fjármálafyrirtækið að það teldi dóm
Hæstaréttar frá síðustu viku ekki eiga
við um lánasafn sitt og því verði ekki
ráðist í endurútreikninga. Í svipaðan
streng tók Helgi Hjörvar á Beinni línu
á DV.is á miðvikudaginn. „Þeir kveð-
ast ætla að rukka áfram eins og ekkert
hafi í skorist, sem er furðuleg afstaða,“
sagði hann og bætti við að í dag, föstu-
dag, muni nefndin funda með Fjár-
málaeftirlitinu til þess að fara yfir
hvernig staða viðskiptavina fjármála-
fyrirtækjanna verði best tryggð.
Seðlabankinn fær á baukinn
Aðspurður hvort Lýsing geti einfald-
lega neitað að fara eftir dómunum
bendir Björn Þorri á að fyrirtækið
hafi komist upp með ansi margt hing-
að til. „Ég er í raun steinhissa á þolin-
mæði opinberra aðila gagnvart Lýs-
ingu. Það þarf þó að spyrja sig hver
ætti raunverulega að stöðva þetta.
Ætti það að vera Fjármálaeftirlið sem
kom upphaflega með þessi leiðbein-
andi tilmæli til fjármálafyrirtækja árið
2010? Tilmæli um að reikna aftur-
virkt margfalda vexti umfram það sem
fólk var búið að greiða. Skömm Fjár-
málaeftirlitsins og Seðlabankans er
ævarandi í þessu máli,“ segir hann og
á við tilmælin sem stofnanirnar tvær
settu fram þann 30. júní 2010 eða rétt
um tveimur vikum eftir að Hæstiréttur
kvað upp tvo dóma varðandi lögmæti
lánsskuldbindinga í íslenskum krón-
um tengdum gengi erlendra gjald-
miðla. Niðurstaða réttarins var á þann
veg að gengistrygging slíkra lána væri
óskuldbindandi en tilmæli Seðla-
bankans fólust í því að í stað gengis-
tryggingar og erlends vaxtaviðmiðs
ættu lánin að taka Seðlabankavexti,
sem eru margfalt hærri en samnings-
vextir.
Dauðdagi kröfunnar
er greiðsla hennar
Björn Þorri hélt því fram árið 2010 að
tilmælin stæðust engan veginn. „Fólk
hafði móttekið fullnaðarkvittun og
það var ekki hægt að ógilda hana með
einhverjum einhliða tilmælum,“ seg-
ir hann og útskýrir það með því að
lýsa hvernig greiðsla á greiðsluseðl-
um fór fram fyrir um það bil tíu árum.
Hann segir að þá hafi fólk fengið send-
an heim greiðsluseðil sem var í raun
greiðsluáskorun. Farið var með seð-
ilinn í banka til gjaldkera og hann
greiddur þar með peningum. Gjald-
keri hafi þá stimplað seðilinn greiddan
og sett stafi sína við og að lokum afhent
viðskiptavinum. Greiðslu seðillinn hafi
þá verið í raun greiðsluafsal.
„Ólafur Lárusson, kröfuréttarsér-
fræðingur okkar, segir að eðlilegur
dauðdagi kröfunnar sé greiðsla henn-
ar. Þegar hún er greidd þá er hún dauð
og niðurfallin og þú færð afsal fyr-
ir greiðslunni. Ég hef sagt að ef Seðla-
bankinn, Fjármálaeftirlitið, Alþingi
eða hver sem er, ætlar að fara að ógilda
greiðsluafsöl í hundraða þúsunda
vís, hvað gerist þá næst? Ætla þeir þá
á ógilda afsalið á bílnum þínum eða
húsinu þínu? Ætla þeir að heimila selj-
andanum að rukka um miklu hærra
söluverð en samið var um og er fyrir
löngu uppgert? Hvar mun þetta enda?
Fyrir mér var þetta aldrei flóknara en
þetta.“
Þolinmæðin er búin
Aðspurður hvernig málin standa með
prófmálin ellefu sem voru valin til að
reyna á tuttugu álitaefni sem talið er
að þurfi að fá úr skorið fyrir dómstól-
um segist Björn Þorri halda að þau
séu í raun orðin óþörf. „Ég sé ekki bet-
ur en þau séu meira eða minna óþörf
úr þessu. Það er búið að svara stærstu
spurningunum í þeim. Bæði með
dómi sem féll í febrúar og svo í þessu
máli. Með dóminum í síðustu viku
kom það með enn skýrari hætti fram.“
Hann bendir í lokin á að þetta eigi
aðallega við um árin 2005 til 2008
þar sem vextirnir fóru á því tímabili
upp í 21 prósent. Flestir hafi náð að
standa í skilum fram að 2009 en svo
hafi farið að kvarnast úr hópnum.
„Við verðum bara að komast út úr
þessari fásinnu að vaxtareikna aft-
urvirkt með þessu hætti. Þolinmæð-
in gagnvart þessu rugli er búin úti
um allt samfélag, bæði á Alþingi,
lögreglunni og alls staðar. Þetta bara
stenst ekki og það að menn geti
komið svona fram misseri eftir miss-
eri, ár eftir ár, því hlýtur að fara að
linna.“ n
Byrjaðir að reikna
Á Beinni línu á miðvikudags bar viðskiptavinur Landsbankans að
hann hefði fengið þau svör að bankinn ætlaði að bíða þess að fleiri
prófmál yrðu til lykta leidd áður en hafist yrði handa við að endur-
reikna gengislánin. Það stangast á við fyrri yfirlýsingar bankans;
bæði bankastjórans og upplýsingafulltrúans.
„Við erum byrjuð að vinna í þeim málum sem falla beint
undir dóminn. Svo munum við skoða framhaldið,“ segir
Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans
í samtali við DV. Kristján segir að verið sé að finna út og
meta hvaða lán dómurinn gefi fordæmi fyrir. Spurður
hvenær þeir lánþegar sem eigi lán sem falli undir
dóminn geti átt von á niðurstöðu segist hann ekki
vilja svara því beint. „Það borgar sig ekki að gefa
út einhverja tímasetningu. Í þessum málum hefur
það alltaf verið þannig að þetta hefur tekið lengri
tíma en áætlað hefur verið í upphafi. Ég vil ekki lofa
einhverju sem ekki er hægt að standa við.“
Úr þessu þarf
að skera
Fjármálafyrirtækjunum og fulltrúum
lánþega var í vor veitt heimild til að
bera sig saman og finna út hvaða
prófmál þyrftu að fara fyrir dóm til að
eyða óvissu um gengislán. Úr varð að
ellefu prófmál voru valin þar sem reyna
mun á 20 álitaefni sem talið er að þurfi
að fá úr skorið fyrir dómstólum. Fjórir
lögmenn, þeir Aðalsteinn E. Jónasson
hrl. og Stefán A. Svensson hrl., fyrir hönd
fjármálafyrirtækja og Dróma, og Einar
Hugi Bjarnason hrl. og Sigríður Rut Júl-
íusdóttir hrl., fyrir hönd umboðsmanns
skuldara, völdu þessi ellefu mál út frá
fyrrnefndri samantekt um álitaefni.
Meðal annars voru
valin mál þar sem:
n lánsfjárhæð var ýmist há eða mjög lág
n lánstími var ýmist skammur eða til
lengri tíma
n lán hafði verið í vanskilum en komið í
skil með ýmsum úrræðum
n lán hafði alltaf verið í skilum
n lán var enn í vanskilum
n lán var greitt upp fyrir lok lánstíma
n lán var fasteignalán
n lán var bílalán
Af vefSíðu umboðSmAnnS SkulDArA
Sendu svona bréf
n Dæmi um bréf sem þú gætir sent fjármálafyrirtækinu þínu*
Skrifaðu
bankanum
kröfubréf
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Ég er í
raun stein-
hissa á þolinmæði
opinberra aðila
gagnvart Lýsingu
„furðuleg afstaða“ Helgi Hjörvar undr-
ast afstöðu Lýsingar, sem segir dóminn ekki
gefa fordæmi fyrir lánasamninga þeirra.
„Hvar endar þetta?“ Björn Þorri Vikt-
orsson bendir á að þegar greiðsluseðill er
greiddur sé krafan dauð og fallin niður.
ekki gera
ekki neitt
Að sögn Björns
Þorra og
Helga Hjörvar
ættu lánþegar
að skora á
bankann að
hefja endurút-
reikning.
Góðan dag.
Í ljósi nýfallins dóms Hæstaréttar nr. 464/2012, og í samræmi við það fordæmi sem dómurinn gefur hvað varðar endurútreikning gengistryggðra lána, fer ég þess á leit við XXX að hafist verði handa við endurútreikning gengistryggðs bílaláns/bílasamnings/fasteignaláns sem undirritaður tók í erlendri mynt XX-XX-20XX.
Um er að ræða samning/lán nr. XXXXXXXX.
Í ljósi þess að staðið hefur verið í skilum með allar greiðslur frá lántökudegi geri ég þá kröfu að ráð-ist verði tafarlaust í endurútreikning lánsins. Þá óska ég eftir upplýsingum um það hvenær búast megi við því að endurútreikningi á láni/samningi mínum ljúki.
Vinsamlega staðfestið móttöku þessa bréfs og að því hafi verið vísað til þar til bærra aðila.
Virðingarfyllst,
Jón Jónsson
Kt. XXXXX-XXXX
*birt án ábyrgðAr