Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Page 13
Vill skaðabætur frá landsbankamönnum Fréttir 13Helgarblað 26.–28. október 2012 n Útgerðarmaður tapaði á fjórða hundrað milljónum á afleiðuviðskiptum n Bankinn vill taka húsið af honum nýjaður hafi áðurnefnt viðtal birst við Arnar Jónsson í Morgunblaðinu þar sem hann ræddi um óhjákvæmilega leiðréttingu á gengi krónunnar. Því hafi ekki verið hagstætt fyrir viðskipta- vini Landsbankans að vera með stöðu með krónunni á þessum tíma þar sem gengi hennar gagnvart öðrum gjald- miðlum var dæmt til að lækka. Inntakið í málarekstri Dynjanda, og sú forsenda sem málið byggir hvað helst á, er að Aðalbjörn hafi ekki endurnýjað viðskiptasamninginn þann 24. mars og því hefði tapið átt að vera miklu minna af viðskiptunum en raun varð. Tapið nálgast 300 milljónir Í stefnunni er rakið hvernig jena- samningurinn hafi fallið á gjalddaga þann 11. apríl 2006 og að tap Aðal- björns af viðskiptunum við bankann hafi þá numið nærri 300 milljónum króna. Þá óskaði bankinn eftir aukn- um tryggingum vegna viðskiptanna en hann hafði tekið veð í bankareikn- ingi með 125 milljóna króna inni- stæðu, fasteign Aðalbjörns á Laugar- ásvegi og í annarri í Kringlunni til tryggingar á greiðslu vegna viðskipt- anna. Í lok apríl var viðskiptasamningi Dynjanda við Landsbanka Íslands lokað og var félagið þá í mínus upp á rúmlega 290 milljónir króna. Hvorki gekk né rak í viðræðum Dynjanda og Landsbanka Íslands um uppgjör á skuldinni næstu tvö árin. Landsbanki Íslands ætlaði svo að höfða fimm dómsmál gegn Dynjanda um vorið 2008. Bankinn ákvað hins vegar að fella niður þau dómsmál degi áður en stefnur í málinu voru þingfest- ar. Greiddi bankinn einnig málskostn- að fyrir Dynjanda, samkvæmt stefn- unni. Þessi niðurstaða bendir til að Landsbanki Íslands hafi, af einhverj- um ástæðum, ekki viljað halda mál- inu til streitu á þessum tíma. Hugsan- legt er að umtal um málið hefði getað skaðað hagsmuni bankans. Þessi staða breyttist hins vegar þegar Lands- banki Íslands hrundi í október 2008 og skilanefnd og slitastjórn tóku bú hans yfir og vinna nú að uppgjöri þess. Ekkert heyrðist frá bankanum fyrr en árið 2010 þegar Landsbanki Íslands þingfesti tvær stefnur gegn Dynjanda. Bæði málin töpuðust í héraði og annað einnig í Hæstarétti Íslands í mars 2012. Samkvæmt þeim dómi var Dynjanda gert að greiða Landsbanka Íslands ríflega 370 millj- ónir japanskra jena. Í þeim dómi kemur fram að ekki hafi verið sýnt fram á að Landsbanki Íslands „hafi vanrækt upplýsingagjöf er samn- ingurinn var gerður þannig að til skaðabótaskyldu leiði“. Þá var held- ur ekki fallist á það, líkt og Aðalbjörn taldi, að gjaldmiðlaskiptasamningur Aðalbjörns og bankans frá því í lok apríl 2006 væri ógildur í ljósi þess að útgerðarmaðurinn hefði ekki staðfest hann skriflega. Samningaviðræður Dynjanda við slitastjórn Landsbanka Íslands gengu ekki eftir í kjölfar þess dóms og yfir- tók slitastjórnin innistæður Dynjanda í bankanum – rúmlega 125 milljónir króna – og gerði fjárnám í fasteign- um Aðalbjörns á Laugarásvegi og í Kringlunni. Aðalbjörn á því á hættu að missa nær allar eignir sínar út af af- leiðuviðskiptunum. Tjón vegna vanrækslu Aðalkrafa Aðalbjörns í málinu byggir á því að hann hafi orðið fyrir tjóni vegna þess að þeir þrír starfsmenn Lands- bankans sem hann stefnir hafi „virt að vettugi skyldur sínar“ gagnvart hon- um sem fram komu í samningi bank- ans um skulda- og áhættustýringu og að þeir ættu því að bera bótaábyrgð í málinu. Þá telur Aðalbjörn að þre- menningarnir hafi vanrækt upplýs- inga- og ráðgjafarskyldur sínar þegar gerður var gjaldmiðlaskiptasamningur fyrir hann í japönskum jenum og hann framlengdur án samþykkis. Einnig er byggt á því að farið hafi verið út fyrir þann fjárfestingarramma sem mark- aður var í samningnum við Aðalbjörn þegar tekin var áhætta fyrir meira en 100 milljónir króna auk þess sem slík- ur samningur í erlendri mynt hafi verið „í hróplegu ósamræmi við spár“ grein- ingardeildar bankans sem taldi lækkun á gengi krónunnar afar líklega. Fyrirtaka verður í málinu í næstu viku. n Lögmaður Aðalbjörns Anna Linda Bjarnadóttir er lögmaður Aðalbjörns í málinu. Útgerðarmaður stendur í ströngu Aðalbjörn Jóakims- son útgerðarmaður hefur farið frá því að vera verulega vel stæður yfir í að eiga á hættu að missa húsið sitt. Allt vegna áhættusamra afleiðuviðskipta við Landsbankann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.