Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Side 23
Hef notað
helling af lyfjum
Nei, nei, það er ekki
komið á dagskrá
Jón Gnarr segist hafa notað ADHD-lyf. – Bein lína á DV.isGunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, þvertekur fyrir loforð. – DV
Einungis 15% á móti!
Spurningin
„Já, ég fór að sjá Dario Argento.“
Gunnar Theódór Eggertsson
30 ára rithöfundur
„Já, ég fór á íslenskar
stuttmyndir.“
Yrsa Þöll Gylfadóttir
30 ára rithöfundur
„Já, ég fór á Suspiria og eina aðra
mynd sem ég man ekki hvað
heitir.“
Hugi Þeyr Gunnarsson
20 ára nemi
„Já, ég fór á RIFF. Besta myndin
var Indiana Jones and the
Kingdom of the Crystal Skull.“
Haukur S. Magnússon
28 ára slefberi
„Því miður, en mig langaði alveg
rosalega.“
Gunnar Maris
26 ára rappari
Fórst þú á RIFF
í september?
Ö
ll höfum við heyrt talað um lyg-
ina og tölfræðina og öll höfum við
heyrt um Sjálfstæðisflokkinn og
Framsókn. Og ef eitthvað er að
marka þá tölfræði sem fulltrúar helm-
ingaskiptaveldisins halda fram, með
hinn hrærða skyrdreng, Bjarna Ben í
fylkingarbrjósti, má öllum ljóst vera,
að einungis 15% kosningabærra Ís-
lendinga eru á móti því að frumvarp
stjórnlagaráðs verði grundvöllur nýrrar
stjórnarskrár fyrir lýðveldið Íslands. Og
það sem meira er: Ekki lýgur tölfræðin.
Ja, ekki frekar en Mogginn.
Ef við skoðum kosningar í útlönd-
um, þ.e.a.s. kosningar sem segja má að
séu sambærilegar við þjóðaratkvæða-
greiðsluna sem við glímdum við í síð-
ustu viku, má ljóst vera að þátttakan hér
heima var meiri en gerist hjá nágranna-
þjóðum okkar. Hérna virðist vera afar
ríkur og almennur áhugi fyrir því að
skipta út gamalli stjórnarskrá fyrir nýja.
Og núna þurfa gáfnaljós einsog Vig-
dís Haugsdóttir og Birgir Ármanns-
son að láta ljós sitt skína. Þjófafélag
Framsóknar og glæpaklíka Sjálfstæðis-
flokksins ætla núna að sameinast um
að hundsa niðurstöður þjóðaratkvæða-
greiðslunnar. Við erum svo aumingja-
góð þjóð að við ley fum öllum þing-
heimi að tjá sig áður en við ákveðum að
afgreiða nýja stjórnarskrá. Og við erum
svo kurteis að við bjóðum bitlingaflokk-
um LÍÚ að beita málþófi, ef það mætti
nú verða til þess að afgreiðsla málsins
tefðist.
Barlómsbræðurnir, Sigmundur Dav-
íð Oddsson og Bjarni skyrdrengur hafa
náð að sannfæra marga Íslendinga um
það að Jóhanna og Steingrímur hafi
stundað mestu óstjórn sem þjóðin hef-
ur þolað. Þeim hefur enn og aftur tek-
ist að ljúga fólkið svo blindfullt að það
veit ekki hvað snýr upp og hvað snýr
niður. Þeim hefur tekist að sannfæra
kjósendur um að hér sé svo mikið at-
vinnuleysi að vart þekkist annað eins
í víðri veröld. En á sama tíma kynda
glæpaklíkur undir svartri atvinnustarf-
semi sem aldrei fyrr. Núna segja þeir
sem eitthvað vita, að ríkissjóður verði
af 100 milljörðum í formi skatta vegna
svartamarkaðsbrasks skattsvikara. Og
aumingjagæska okkar er slík að við
borgum þjófunum atvinnuleysisbætur
á meðan þeir stunda sitt siðlausa brask.
Reyndar er það svo að ríkisstjórn
Jóhönnu á þann einn kost að sam-
þykkja nýja stjórnarskrá, ef þetta fólk
hefur hug á að starfa í stjórn eftir kosn-
ingarnar í vor. Og við, sem höfum enn-
þá eitthvert vit í kollinum, erum viss
um að vinstristjórnin mun þá allavega
gera meira fyrir okkur en þeir þarna
með góðærisglýjuna í augunum; afæt-
ur auðvaldsins, sem einkum kunna að
ljúga og stela.
Skuggi Ránsins og græðginnar er
ennþá yfir okkar yndislegu þjóð. Við
eigum í þingsal fulltrúa vafninga, kúlu-
lána, kvótaþega, Samvinnutrygginga-
svindls, Sjóvárbrasks, krimmadeildar
Saga Capital og yfirleitt allra glæpafé-
laga sem þjóðin státar af. Okkur vantar
vítisengla og fulltrúa svartrar atvinnu-
starfsemi til að fullkomna flóruna. Það
fólk myndi nú aldeilis falla vel að hug-
sjónum stjórnarandstöðunnar.
Núna þjóðin getur grátið
svo geta allir barmað sér
og þjóðin getur líka látið
lygamerði stjórna hér.
Skammdegið Það var farið að dimma þegar þessi mynd var tekin úr turninum í Borgartúninu um sex leytið á fimmtudag. Skammdegið er farið að sækja í sig veðrið enda nálgast
nóvember óðfluga. mynd eyþór árnaSonMyndin
Umræða 23Helgarblað 26.–28. október 2012
Eðlilegar
gengisvarnir
Björgólfur Thor sver af sér stöðutöku. – DV
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
„Skuggi Ránsins og
græðginnar er ennþá
yfir okkar yndislegu þjóð.
Sjáðu meira
fyrir aðeins 790 kr. á mánuði *
Fáðu greinar í heild sinni á DV.is
og vefáskrift af prentútgáfu DV
* Verðið er 790 kr. fyrstu 3 mánuðina, en 1.790 kr. eftir það.