Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Síða 39
er lítill svefn. Ég veit ekki hvað ég get sagt meir, ég vil ekki gera þetta lengur. Ég ætla allavega að taka mér pásu.“ Miklar útlitskröfur Eru útlitskröfurnar svona miklar? Þórhildur: „Það sem hefur sleg- ið mig mest eru þessar útlitskröfur um að þú þurfir að vera vaxin eins og 12 ára strákur. Fyrir tveimur árum kom fram á sjónarsviðið fyr- irsæta, Andrej Pejic, sem er ótrú- lega fallegur karlmaður. Hann er notaður sem fyrirsæta fyrir kven- föt. Ég var svo slegin, þegar hann var settur á pallana. Ég hugsaði með mér er þetta bara komið núna allan hringinn. Núna sér maður hversu ótrúlega óraunhæfar út- litskröfurnar eru. Það er enginn svona vaxinn. Sögusagnirnar um átraskanir. Þetta eru ekki ýkjur. Þetta er svona.“ Þóra Tómasdóttir: „Arnar Gauti, þú berð ábyrgð. Það er í þínum höndum að þessar stelpur sem fara frá Íslandi, hljóti ekki sömu örlög og þessar stelpur. Ég er rit- stjóri tímarits sem á sér 35 ára hefð á Íslandi. Það er mjög auðvelt fyrir mig að segja; Nei, ég ætla ekki að birta mynd af 14 ára fyrirsætu.“ Ásta: Á þetta líka við um aug- lýsingar? Þóra: „Já, ég get með einhverj- um hætti og hef gert það, vís- að auglýsingum út úr blaðinu. Ég geri það hiklaust ef ég sé að stelp- ur eru ungar. Það er rosalega auð- velt að bera ábyrgð. Það er auðvelt að segja, ég ætla ekki að taka þátt í þessu og senda 14 ára stelpur út í heim. Ég held að við getum gert betur – ég held við getum sagt. Nei, við ætlum ekki að klámvæða 12 ára stelpur. Hættum þessu kjaftæði.“ Ásta: Það verður að tala um kúnnana sem biðja um þetta, aug- lýsingastofurnar, foreldrana og ljósmyndarana. Það verða allir að taka sig saman, við berum allar ábyrgð. Verðum líka sem konur að hætta að gagnrýna hver aðra.“ Fýldir unglingar með of mikinn farða Gestur úti í sal: „Ekki kenna kon- um um þetta!“ Þóra Tómasdóttir: „Hérna situr okkar eftirsóttasta fyrirsæta á Ís- landi og hún getur ekki meir. Hún er bara komin með upp í kok af þessu. Hún er 18 ára, hvernig myndi 14 ára stelpu líða?“ Hrönn Sveinsdóttir: „Ég verð bara að segja það að ég fylgist ekkert með tískunni. En þegar ég skoða tískublöð, þá fer ég alltaf að hlæja. Þetta er alltaf eins. Þetta eru grindhoraðir unglingar með fýlu- svip, Maður er alltaf bara; Hvenær verður þetta þreytt? Alltaf sama í gangi. Unglingar með alltof mikið „make-up“ og fýlusvip. Á þetta að selja mér eitthvað? Matthildur, ertu hætt? Matthildur: „Ég geri verkefni sem ég hef áhuga á en ekki inn- an þessa dæmigerða bransa. Ég vel mér frekar verkefni í listræna geiranum sem henta mér og mínu áhugasviði.“ Ekkert mál að hækka aldurstakmark Er hugsanlegt að hækka aldurs- takmarkið? Arnar: „Fyrir mér er minnsta mál í heimi að hækka aldurinn í 15 ár, það er ekkert mál. Þetta er ekk- ert vandamál fyrir mig, því ég veit hvað við erum að hugsa mikið og vel um þær.“ Kolfinna: „Það ætti að hækka það frekar. Ég byrjaði að vinna 18 ára og fannst ég samt ekki tilbúin. Þessar ungu stúlkur fullorðnast of fljótt.“ n Lífsstíll 39Helgarblað 26.–28. október 2012 n Yngsta fyrirsætan 14 ára n Vinna oft langar tarnir, jafnvel 10 tíma í einu Skuggahliðar fyrirSætubranSanS Heitar umræður Í salnum var deilt á forsvarsmenn umboðsskrifstofa. Þóra Tómasdóttir ritstjóri Nýs Lífs sagði Arnar Gauta bera ábyrgð. „Það er í þínum höndum að þessar stelpur sem fara frá Íslandi, njóti ekki sömu örlaga og þessar stelpur.“ Fyrirsætur sem enda í skuld „Já, það er raunveruleikinn. Ef þú tekur að þér samning fyrir 8.000 dollara, þá vinnur þú upp í hann. Ef þú vinnur meira, þá kemur þú heim með pening. Ef þú vinnur minna, þá ertu í skuld. En það borgar enginn skuldina.“ Komin í pásu „Þetta er erfitt, þetta er mikil vinna og þetta er lítill svefn,“ segir Kolfinna sem ætlar að taka sér pásu á hátindi ferilsins. Andrej Pejic Karlfyrirsæta sem situr fyrir sem kvenfyrirsæta. „Núna sér maður hversu ótrúlega óraunhæfar útlitskröfurnar eru. Það er enginn svona vaxinn.“ Nadya Í heimildamyndinni Girl Model er fylgst með hinni 13 ára gömlu Nadyu sem er lofað gulli og grænum skógum og hún látin skrifa undir óraunhæfa samninga. Stúlkurnar sem um ræðir eru svo oftast sendar heim í skuld og svo verður einnig um Nadyu. „Mér var bara hótað Kolfinna Kolfinna gekk pallana hjá Marc sem notaði afar ungar fyrirsætur. Mikill þrýstingur var á tískuhúsin sem sýndu á New York Fashion Week að nota ekki fyrirsætur undir sextán ára aldri. Flestir tóku þrýstingnum sem var helst merkjan- legur frá samtökum fata- hönnuða í Bandaríkj- unum vel. En það gerði Marc Jacobs ekki, hann hefur sætt mikilli gagn- rýni fyrir að nota afar ungar stúlkur á pallana í ár. Þær yngstu voru 14 ára. Marc ver sig í New York Times og segir það hefta frelsi sitt til að skapa að nota fyrirsæt- ur eldri en 16 ára. Mikil fjölmiðlaumfjöllun hefur verið um framkomu Marc og til að bæta gráu ofan á svart hefur fyrir- sætan Hailey Hasbrook sagt fjölmiðlum frá því að flestar hafi þær ekki fengið borgað. Sjálf hafi hún unnið sleitulaust í 30 klukkustundir fyrir fatahönnuðinn en ekki fengið krónu borgaða. Fjölmiðlar hafa fjallað töluvert um að tísku- húsin hagnist á því að nota ungar fyrirsætur frá fátækum ríkjum frítt og geri það reynd- ar óspart. Marc Jacobs kemst ekki upp með að borga ekki fyrirsætum sínum þegar hann þarf að sýna í Frakklandi. Þar er einnig alfarið bannað að nota fyrirsætur sem eru yngri en 16 ára. Kolfinna gekk pallana hjá Marc Jacobs. Marc Jacobs gagnrýndur harðlega „Fyrir mig er minnsta mál í heimi að hækka aldurinn í 15 ár

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.