Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Síða 52
52 Fólk 26.–28. október 2012 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
26.–28. október
Föstudagur26
okt
Laugardagur27
okt
Sunnudagur28
okt
Ásgeir Trausti og
Snorri Helgason
Ásgeir Trausti heldur sína
fyrstu tónleika á Akranesi
á föstudag en með honum
í för verður tónlistarmað-
urinn Snorri Helgason. Þeir koma
fram ásamt hljómsveit en hana skipa
Guðmundur Kristinn Jónsson, Sigurður
Guðmundsson og Þorsteinn Einarsson
úr Hjálmum, trommarinn Kristinn Snær
Agnarsson, Styrmir Hauksson og vinur
Ásgeirs, Júlíus Aðalsteinn Róbertsson.
Gamla Kaupfélagið Kl. 22.00
Hrekkjavaka á Þýska barnum
Stærsta hrekkjavökupartí síðari ára
verður haldið á laugardaginn en þá verður
Þýska barnum breytt í algjört draugahús
um kvöldið. Staðurinn verður skreyttur
hátt og lágt og Adrian Lux mun þeyta
skífum ásamt Dj Óla Geir og Sindra BM.
Þýski barinn Kl. 23.59
Bastarðar í Borg-
arleikhúsinu
Bastarðar er
saga um brotna
fjölskyldu; föður,
börn hans og maka
þeirra. Eftir margra
ára sambandsleysi berst
systkinunum boð um að vera viðstödd
giftingu föðurins. Þegar þau átta sig á
að brúðurin er æskuást elsta bróðurins
upphefst miskunnarlaus og ofsafengin
barátta. Verkið verður frumsýnt á
laugadaginn en leikstjóri er Gísli Örn
Garðarsson og leikmyndahönnuður er
Börkur Jónsson.
Borgarleikhúsið Kl. 20.00
Minningartónleikar
Óperusöngvarinn Sigurður Demetz
Franzson (Vincenzo Maria Demetz) hefði
orðið 100 ára 11. október í ár hefði hann
lifað. Af því tilefni verður efnt til minn-
ingartónleika þar sem fram koma Kristján
Jóhannsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir
og karlakórinn Fóstbræður auk fjölda
annarra söngvara og tónlistarmanna.
Norðurljós í Hörpu Kl. 16.00
Hinn fullkomni jafningi
Frumsýning á leikritinu Hinn fullkomni
jafningi eftir Felix Bergsson. Verkið, sem
upphaflega var sett upp árið 1998, fjallar
um um fimm menn sem taka mismun-
andi á samkynhneigð sinni. Þeir tengjast
allir innbyrðis á einn eða annan hátt en
samskipti þeirra endurspegla ekki aðeins
reynslu samkynhneigðra af ástinni, held-
ur fela í sér sammannlega reynslu. Ástin
er góð, ástin er vond, ástin er mjúk, ástin
er hörð, ástin er heit, ástin er köld, ástin er
ljúf, ástin er grimm.
Norðurpóllinn Kl. 20.00
„Ég er feitabolla“
É
g er byrjaður í feitabolluleik-
fimi,“ segir hagfræðingurinn
og pistlahöfundurinn Ólafur
Arnarson. Hann hóf átakið
þann 2. október síðastliðinn og var
þá í hörmulega ástandi, að eigin
sögn. „Ég var orðinn 138,4 kíló og
það var bara fullmikið,“ segir hann
og er alveg ófeiminn við opinbera
þyngdina fyrir alþjóð. Enda hyggst
hann skrifa ítarlega um átakið og ár-
angurinn á veðmiðli sínum timarim.
is undir liðnum Fat-fit, en það er
nafnið á æfingaprógramminu sem
hann notast við. Ólafur nýtur í átak-
inu handleiðslu Jóns Þorbjörnsson-
ar, sem hann kallar Fat-fit-leiðtog-
ann. Nú þegar aðeins þrjár vikur eru
síðan Ólafur byrjaði í hinni svoköll-
uðu feitabolluleikfimi er hann bú-
inn að missa um sjö kíló.
Kominn út úr skápnum
„Ég var að springa. En þetta er allt í
áttina og ég er að setja pressu á sjálf-
an mig. Þetta á að vera skemmtileg-
asti efnisflokkurinn á tímaríminu,“
segir Ólafur hlæjandi. „Ég er feita-
bolla. Þegar maður er kominn svona
út í horn eins og ég, þá er ekki um
annað að ræða en að koma út úr
skápnum sem feitabolla. Ég þyrfti
að vera 230 sentimetrar á hæð til
að vera í kjörþyngd og það er út-
séð með að ég nái þeirri hæð.“ Eftir
að hafa áttað sig á þeirri staðreynd
ákvað Ólafur að grípa í taumana og
hefur nú hreyft sig á nánast hverjum
degi síðan átakið hófst um síðustu
mánaðamót. Jón Fat-fit-leiðtogi hef-
ur meðal annars dregið Ólaf með sér
í göngutúra um Grafarvoginn og nú
um helgina ætla þeir ganga saman á
Úlfarsfellið. „Mér hrýs hugur við að
ganga svona upp í móti, það er al-
veg hrikalega óþægileg tilhugsun,“
viðurkennir hann blákalt.
Dökkt súkkulaði er lösturinn
Ólafur hyggur á allsherjarlífsstíls-
breytingu en er þó ekki alveg kom-
inn á það mataræði sem hann ætl-
ar sér að vera á. Hann ákvað að byrja
á kolvetnissnauðu fæði til að koma
brennslunni í gang og það hefur
gengið eftir, að hans sögn. Það
er þó einn löstur sem hann hef-
ur ekki náð að venja sig af og
það er dökkt súkkulaði. „Ég fór
aðeins að maula svoleiðis til að
bæta mér upp nammileysið.
Þetta er svo svakaleg breyting
hjá manni eins og mér sem úð-
aði í sig sælgæti og öllu því
sem hann gat hugsað sér.“ Ólafi
finnst hann hafa hætt að léttast
eftir að hann fór að gæða sér á
dökka súkkulaðinu milli mála og
sættir sig ekki við það. „Nú stend
því frammi fyrir því að neita mér
um fína dökka súkkulaðið líka.
Ég verð að gera það. Þetta er
harkan sex.“
Fékk sér gjarnan bjór
Þá hefur Ólafur ekki bragðað
áfengi síðan átakið hófst og
það veldur honum eiginlega
áhyggjum hvað hann saknar þess
lítið að sulla í bjór. „Maður var
alltof mikið að sulla í þessu. Fá
sér vín með matnum, fá sér bjór
og svona við hvaða tækifæri sem
var og jafnvel þó það væri ekkert
tækifæri þá var alltaf góð ástæða
til að fá sér bjór.“ En nú er hann
alveg hættur. „Ég meira að segja
fór í smurbrauðsboð þar sem var
boðið upp á brennivín og bjór og
var alveg búinn að ákveða að ég
myndi fá mér brennivínið þó ég
sleppti bjórnum. En þegar til kom
þá hafði ég lést svo mikið dag-
ana á undan að ég tímdi ekki að
fá mér brennivínið heldur,“ segir
Ólafur sem snerti ekki á brauðinu í
veislunni heldur.
Spænskur nautabani
Ólafur gerir sér grein fyrir því að
hann á mikið verkefni fyrir hönd-
um og setur því pressu á sjálfan sig
með því að skrifa opinberlega um
átakið og leyfa almenningi að fylgj-
ast með. „Ef ég fer út af strikinu og
fer að þyngjast þá mun komast upp
um mig. Ég
er annars
alvarlega að pæla í að kalla þetta
„operation“ nautabaninn. Og
stefna á að verða eins og spænskur
nautabani næsta sumar,“ segir
Ólafur léttur í lund. „Það þýðir ekk-
ert annað en að hafa gaman af því
að taka á alvarlegu vandamálun-
um.“ n solrun@dv.is
n Ólafur Arnarson er byrjaður í feitabolluleikfimi n Búinn að missa sjö kíló
Kominn í átak Ólafur Arnarson
var orðinn rúm 138 kíló þegar hann
byrjaði í feitabolluleikfimi um
síðustu mánaðamót.
Fyrsta æfingin
„Ég var að spr-
inga,“ segir Ólafur
um ástandið á sér.