Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Qupperneq 54

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2012, Qupperneq 54
54 Fólk 26.–28. október 2012 Helgarblað Á afmælisdaginn sjálfan þá geri ég kröfu til þess inn- an heimilisins að ég fái pönnukökur í morgun- mat, eins og önnur afmælis- börn og aðra afmælisdaga, segir Guðmundur Steingríms- son sem verður fertugur á sunnu- daginn. Hann viðurkennir að hann verði fyrir miklum von- brigðum fái hann ekki pönnu- kökurnar sínar. Það verði alla- vega að koma eitthvað mun betra í staðinn ef það bregst. Heldur tónleika Á laugardagskvöldið ætlar Guð- mundur hins vegar að halda einkatónleika fyrir fjölskyldu og vini í tilefni afmælisins. „Út af því að ég á afmæli þá ætla ég að syngja. Ég ætla að vera með tón- leika og svo partí og óreglu á eft- ir. Svo á ég náttúrulega afmæli á miðnætti,“ bendir Guðmundur á og gerir ráð fyrir að þá nái fagn- aðurinn hámarki. „Ég veit alveg að það eru margir betri söngvarar en ég í mínum vinahópi en þeir fá ekkert að syngja fyrr en ég er búin að syngja.“ Guðmundur stefnir á að syngja lög sem hann hefur samið eða komið að því að semja í gegnum tíðina, enda hefur hann verið í ófáum hljómsveitunum. „Þetta er orðið svolítið æviskeið þegar maður lítur til baka,“ segir Guðmundur sem byrjaði í sinni fyrstu hljómsveit, Frumunum, þrettán ára. Hann gerir þó ekki ráð fyrir að taka lag með þeirri hljómsveit á laugardaginn. Þörf fyrir óreglu Honum þykir gaman að halda upp á afmælið sitt og er einstak- lega ánægður með tímasetn- inguna á afmælisdeginum. „Þessi tími í lok október, ég hef alltaf fundið að fólk hefur verið í þörf fyrir óreglu á þessum tíma. Á þessu ári eru búin að vera rosalega mörg fertugs- afmæli og þetta hef- ur tekið á. Það er búið að vera rosagaman en svo kom smá hlé í sumar, allavega í mínum vinahópi, en nú getum við byrjað aftur.“ Aldurinn leggst vel í Guðmund sem er aðeins farinn að fá grána í vöngum og kann því vel. Hann gerir fastlega ráð fyrir því að með gráu hárunum færist meiri virðuleiki yfir hann. „Ég vona að eftir fertugt þá komi svona meiri þungi í mann og ég mun gera kröfu um að fólk taki meira mark á mér og fagni þegar ég tala. Ég vona að þetta gerist eftir helgina,“ segir Guð- mundur. „Þetta verður gjör- breytt veröld,“ bætir hann við hlæj- andi við. PARTÍ OG ÓREGLA A ftur-systur, þær Hrafnhildur, Bára og Sigrún Hólm- geirsdætur, buðu gesti velkomna í nýja verslun sína að Laugavegi 39. Fjölmargir lögðu leið sína til þeirra systra og fögnuðu áfanganum með þeim. Fyrsta verslun þeirra systra var í Kaupmannahöfn og urðu þær fljótt vinsælar og þá sérstaklega fyrir umhverfi- svæna hugsun. Þær endurvinna föt úr gömlum efnum og fatnaði. Þær fluttust heim til Íslands og hafa síðan rekið verslun sína hér á landi. Þær munu einnig bjóða upp á tískuvarning frá erlendum hönnuðum. n kristjana@dv.is Stolt við nýju búðina Ein Aftur- systra, Bára Hólmgeirs- dóttir, við nýju búðina. n Fluttar í nýtt og glæsilegt húsnæði Hildur ein af áhrifa- mestu konum ársins Aftur-systur fögnuðu N ýtt Líf hefur að undanförnu valið konu ársins. Í ár var brugðið út af vananum og valdi ritstjórn blaðsins að þessu sinni áhrifamestu konurnar árið 2012. Þær eru kynntar í nýút- komnu blaði. Konurnar eru úr ólíkum geirum á ólíkum aldri og hafa skarað fram úr á sínu sviði, rutt brautina eða unnið eftirtektarverða sigra á árinu. Þær eru öðrum hvatning og fyrirmyndir. Í hópi þeirra áhrifakvenna er Hildur Lilliendahl femínisti. Henni er hrósað sérstaklega fyrir vask- lega framgöngu sína á árinu og fyr- ir að opna sig í viðtali í DV þar sem hún sagði frá þeirri reynslu sem hefur hvað mest mótað hana sem femínista – þegar henni var nauðg- að. Hildur sagði í viðtalinu mikil- vægt að ræða ofbeldið. „Það er það besta sem maður getur gert. Að ræða ofbeldið hefur gert mér kleift að komast yfir það. Mér leiðist tal um sálarmorð og sár sem aldrei gróa – mitt sár greri. Ef ég ber ein- hver ör á sálinni eftir þetta atvik, þá veit ég ekki af því.“ Þá eru í hópnum, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, úr Of Monsters and Men, fyrir ævintýralega gott gengi í tónlistarbransanum, Agnes Sig- urðardóttir, sem á árinu varð fyrst kvenna kjörin biskup, og Annie Mist Þórisdóttir, tvöfaldur heimsmeist- ari í crossfit. Sérstaklega er minnst á Þóru Arnórsdóttur sem minnti á að barnauppeldi væri ekki ástæða til að útiloka konur frá valdastöðum. Fjallað er um enn fleiri áhrifakonur í blaðinu. n n Hrósað fyrir að opna sig í DV Áhrifamikil á árinu Hildur Lilliendahl opnaði sig á árinu og sagði frá reynslu sem mótaði hana sem femínista. n Guðmundur Steingrímsson verður fertugur á sunnudaginn Vill fá pönnukökur Guðmundur gerir kröfu til þess innan heimilisins að hann fái pönnukökur á afmælisdaginn. Blæs til tónleika Guðmundur ætlar að bjóða vinum og vandamönnum upp á tón- leika með sjálfum sér í tilefni afmælisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.