Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Page 12
Janúar
11. janúar
Edda kærir Hjört
n Edda Sif Pálsdóttir,
íþróttafréttamaður
á RÚV, kærði Hjört
Júlíus Hjartarson
fyrir líkamsárás
eftir að hann hafði
veist að henni inni
á salerni Grand Hót-
els þar sem fyrr um kvöldið hafði
verið tilkynnt um val á íþrótta-
manni ársins. Farið var með Eddu
Sif á bráðamóttöku Landspítalans
þar sem hún fékk áverkavottorð.
Hjörtur Júlíus var rekinn skömm
síðar en ósætti var um það meðal
starfsmanna RÚV hvort reka ætti
hann strax. Edda Sif og Hjörtur
höfðu átt í óformlegu sambandi
áður en þetta gerðist en síðar í
mánuðinum sættust þau og var
kæran dregin til baka.
13. janúar
Iðnaðarsalts-
málið
n Það varð uppi fótur og fit þegar í
ljós kom að Ölgerðin hafði selt ótal
fyrirtækjum iðnaðarsalt um árabil
en samkvæmt Heilbrigðiseftirlitinu
er framleiðsla, dreifing og geymsla
efnisins þess eðlis að ekki má nota
það til manneldis. Saltið hafði með-
al annars verið selt Mjólkursam-
sölunni, ýmsum bakaríum, pítsu-
stöðum og kjötiðnaðarfyrirtækjum
og ætla má að nær allir Íslendingar
hafi einhvern tímann neytt þess.
Iðnaðarsaltsmálið vakti hörð við-
brögð. Jói Fel kallaði það „storm
í vatnsglasi“ og Vigdís Hauksdótt-
ir, þingkona Framsóknarflokksins,
sagði umræðuna um iðnaðarsaltið
vera „krataáróður.“
16. janúar
Hjördís tapaði
forræðisdeilunni
n Dómur féll í forræðisdeilu Hjör-
dísar Svan Aðalheiðardóttur og
Kims Laursen í Danmörku. Dæmdi
Landsréttur Laursen í vil og stað-
festi dóm undirréttar um að for-
eldrarnir hefðu sameiginlegt for-
ræði yfir börnunum en þau ættu
lögheimili hjá föður sínum.
Forræðisdeila þeirra Hjördísar og
Kims hófst í október 2010 þegar
Hjördís fór úr landi og kom til Ís-
lands með dætur þeirra þrjár, á
aldrinum þriggja til sjö ára. Stað-
festi Hæstiréttur Íslands dóm
Héraðsdóms Austurlands um að
Hjördísi bæri að fara aftur til Dan-
merkur með dæturnar og ljúka for-
sjármálinu þar.
20. janúar
Flutt inn á kenni-
tölu konunnar
n Að sögn lögmanns
kvennanna sem
leita réttar síns
gagnvart Jens
Kjartanssyni lýta-
lækni vegna PIP-
brjóstapúðanna
var félagið sem flutti
púðana inn skráð á kennitölu eig-
inkonu Jens. Jens kom púðunum
fyrir í brjóstum 440 kvenna hér á
landi á árunum 2000 til 2010 en
brjóstapúðarnir frá fyrirtækinu
PIP voru fylltir ólöglegu iðnaðar-
silíkoni. Málið var áberandi í fjöl-
miðlum í kringum áramótin.
25. janúar
Svipt forræði
yfir Ellu Dís
n Ragna Erlendsdóttir, móðir Ellu
Dísar, sakaði barnaverndaryfirvöld
á Íslandi og í Bretlandi um að vinna
saman að því að taka af henni börn-
in. Ragna flaug til Lundúna með
Ellu Dís og dætrum sínum í des-
ember en yfirvöld þar í landi sviptu
hana forræði yfir Ellu Dís í janúar.
„Við erum í stríði núna,“ sagði hún í
viðtali við DV.
25. janúar
Eiríkur kemst af
á ótrúlegan hátt
n Togarinn Hallgrím-
ur SI fórst við Nor-
egsstrendur. Aðeins
einn skipverjanna,
Eiríkur Ingi Jóhanns-
son, komst lífs af.
Þrír menn fórust í
slysinu, þeir Magnús
Daníelsson skipstjóri, Gísli Garðars-
son og Einar Gunnarsson. Eiríkur
hafði verið í ísköldum sjónum í um
þrjár og hálfa klukkustund þegar
honum var bjargað og sennilega
hefur það reynst honum vel að hafa
starfað sem tækniköfunarkennari
og hafa þar af leiðandi reynslu af
því að vera í köldum sjó. Ölduhæð-
in á svæðinu var um 15 til 18 metr-
ar. Eiríkur lýsti því hvernig hann
þurfti að horfa á eftir tveimur af
skipverjunum, góðum vinum sín-
um, hverfa í sjóinn.
27. janúar
Rannsaka
rasistasíðu
n Frumstæð ís-
lensk vefsíða með
hatursáróðri gegn
kynþáttum og nafn-
greindum einstak-
lingum var tekin til
skoðunar hjá lögreglu.
Á síðunni er veist með svívirðing-
um að fólki, bæði lifandi og látnu.
Sá sem skráður er fyrir henni er
bandarískur karlmaður og yfirlýstur
rasisti sem virðist eiga íslenska vini
er aðhyllast sömu skoðanir.
31. janúar
Fórnarlömbum
mansals hjálpað
n „Það hafa mál um það bil fimmt-
án einstaklinga, sem hugsanlega
eru fórnarlömb mansals, komið
inn á borð til okkar, en þeir hafa í
raun og veru spannað allan skal-
ann,“ sagði Hildur Jónsdóttir í viðtali
við DV en Hildur er sérfræðingur
í jafnréttismálum í forsætisráðu-
neytinu og formaður Sérfræði- og
samhæfingarteymis gegn mansali.
Lýsti Hildur því hve erfið mansals-
mál væru í rannsókn og torsótt að
koma lögum yfir gerendur.
31. janúar
Hvellur við
Hverfisgötu
n Lögreglan rýmdi
hús við Hverfis-
götu hjá skrif-
stofum ríkissak-
sóknara eftir að
sprengjuhvellur
heyrðist við götuna.
Sprengjusveitir lög-
reglunnar og Landhelgisgæslunn-
ar mættu á vettvang og eyðilögðu
grunsamlegan kassa sem virtist
innihalda leifar af sprengiefni. Síð-
ar kom í ljós að maður að nafni Val-
entínus Vagnsson hafði komið hvell-
hettu fyrir í mótmælaskyni. Í viðtali
við DV sagðist hann hyggja á for-
setaframboð og nú undirbýr hann
framboð undir merkjum svokallaðs
Sprengiflokks.
Febrúar
2. febrúar
Sviptingar í
Kópavogi
n Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar-
flokkur og Y-listi Kópavogsbúa
náðu samkomulagi um mynd-
un nýs meirihluta í bæjarstjórn
Kópavogs. Skömmu áður hafði
meirihlutinn í bæjarstjórninni
fallið þegar Hjálmar Hjálmarsson,
bæjarfulltrúi Næstbesta flokksins,
lýsti því yfir að hann væri hættur í
meirihlutasamstarfinu. Ástæðan
var ágreiningur vegna uppsagnar
Guðrúnar Pálsdóttur bæjarstjóra. Í
kjölfarið tók Ármann Kr. Ólafsson við
sem bæjarstjóri Kópavogs, næst-
fjölmennasta sveitarfélags landsins.
(2. eða 3. febrúar – greint frá
morðinu 7. febrúar)
Manndráp í
Hafnarfirði
n Hlífar Vatnar Stefáns-
son, 23 ára, myrti Þóru
Eyjalín Gísladóttur,
35 ára unnustu sína,
í svefnherbergi á
heimili sínu við
Skúlaskeið í Hafnar-
firði. Hlífar veittist að
Þóru með hníf og stakk hana ítrek-
að í andlit og líkama auk þess að
skera hana á háls. Gekk ein stungan
inn í vinstra lunga hennar og
leiddi það ásamt öðrum áverkum
til dauða hennar. Hlífar játaði sök
og var í júlí dæmdur í Héraðsdómi
Reykjaness til 16 ára fangelsisvistar.
13. febrúar
Ný gögn í Vafn-
ingsmálinu
n DV birti gögn sem sýna að Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, hafi skrifað undir fölsuð
skjöl í febrúar árið 2008 í Vafn-
ingsmálinu svokallaða. Umboð-
in sem Bjarni Benediktsson, þá-
verandi stjórnarformaður BNT og
N1, fékk til að veðsetja hlutabréf-
in í eignarhaldsfélaginu Vafningi
voru send til Glitnis þann 11. febr-
úar 2008. Þetta kom fram í afriti af
faxi með umboðunum sem Gunnar
Gunnarsson, lögmaður Milestone,
n Þetta stóð upp úr árið 2012 n Glæpir og skandalar ársins n Síbrotamenn í fangelsi og strokufangi af Litla-Hrauni
Brjóstapúðar og glæpir
Innlendur fréttaannáll 2012
12 Annáll 28. desember 2012 Áramótablað