Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 61
 53Áramótablað 28. desember 2012 „Ég myrti 27“ fullyrti Norðmaðurinn Arnfinn Nesset. Um sumarið og haustið 1936 áttu sér stað mörg óútskýrð dauðsföll á hjúkrunarheimili í Orkdal í Syðri-Þrændalögum í Noregi sem var undir stjórn Arnfinns. Arnfinn viðurkenndi við yfirheyrslur að hafa fyrirkomið 27 vistmönnum, en dró játningarnar síðar til baka. Hann hélt fram sakleysi sínu meðan réttarhöld yfir honum stóðu en var þegar upp var staðið dæmdur fyrir 22 morð og fékk 21 árs dóm. Talið er að hann hafi jafnvel myrt allt að 138 manns. n Ástfangin sem unglingar n Endurnýjuð ást varð öðru þeirra að bana Barin til Bana „Hnúarn- ir voru eins og hann hefði lent í slag, skrám- aðir, bólgnir og fleiðraðir Á starsaga Roberts og Shirley McGill fékk hörmulegan endi í júlí 2009. Þann 14. júlí fagnaði Robert 55 ára afmæli sínu um borð í lúx- ussnekkjunni Elation og með hon- um í för var Shirley sem hafði fagn- að sínu 55 ára afmæli sex dögum fyrr. Robert og Shirley höfðu verið par í menntaskóla áratugum fyrr en síðan höfðu þau hvort haldið sína leið. Áratugum síðar endur- nýjuðu þau kynnin eftir að hafa hnotið um hvort annað á sam- skiptasíðu á internetinu og þenn- an örlagaríka dag er Elation var á leið frá Cabo San Lucas í Mexíkó á heimleið til Bandaríkjanna heyrðu farþegar mikil háreysti úr klefa hjónanna. Barin til bana Skömmu síðar sáu aðrir farþegar er nokkrir úr áhöfn skipsins – öryggis- verðir og sjúkraliðar – komu aðvíf- andi og fóru inn í klefa hjónanna. Þar fannst Shirley liðið lík inni á baðherbergi en eiginmann hennar var hvergi að sjá. En ekki leið á löngu þar til hann fannst þar sem hann ráfaði um á einu efri þilfaranna reykjandi vindil. Robert var hnepptur í varð- hald um borð og líki Shirley var komið fyrir í líkgeymslu skipsins. Skipstjóri Elation hafði síðan sam- band við bandarísku alríkislög- regluna, FBI. Lífið er ráðgáta Áður en alríkislögreglan kom um borð fullyrti Robert að eiginkona hans væri ekki heil heilsu og má segja að hann hafi vitað það manna best, enda nýbúinn að berja hana til bana með berum hnefunum. En síðar viðurkenndi hann að hann hefði banað henni. Aðspurður um ástæðuna sagði hann: „Ég veit það ekki, lífið er ráðgáta.“ Reyndar rannsakar FBI sjaldan morðmál sem varða það sem kall- ast getur heimilisofbeldi en þar sem Elation var statt á alþjóðlegri siglingaleið var stofnuninni gert viðvart um atvikið. Þegar Robert var yfirheyrður var hann stressaður mjög og „hnúarnir voru eins og hann hefði lent í slag, skrámaðir, bólgnir og fleiðraðir,“ sagði fulltrúi FBI, Keith Slotter. Í San Diego var Robert McGill leiddur frá borði í járnum og ákærð- ur fyrir morð, en farþegaskipið hélt áfram för sinni. „Þau þjást núna“ Við vitnaleiðslur þráttaði Robert við verjanda sinn því hann vildi fá að lesa yfirlýsingu, en fjölskyldumeð- limir sátu snöktandi í dómsalnum. „Þau þjást núna. Mér finnst það slæmt. Ég tel að þau þjáist og þarfn- ist að heyra frá mér,“ sagði hann. Hvað hann átti við lá ekki ljóst fyrir og ekki urðu næstu orð hans til að skýra það frekar: „Það mun bæta fjárhagslegum byrðum ofan á sárs- aukann og hryllinginn sem ég hef valdið þessari fjölskyldu. Hvað sem því líður þá samdi Robert við ákæruvaldið, enda stóð hann frammi fyrir því að fá lífstíðar- dóm sem afplánast skyldi í alríkis- fangelsi án möguleika á reynslu- lausn. Tveimur árum, nákvæmlega, eftir að hann myrti eiginkonu sína játaði hann sig sekan um mann- dráp. Hvað olli því að hann barði eig- inkonu sína og æskuást til bana er ekkert vitað. n Leiddur frá borði Robert sagði í kjölfar morðsins að eiginkona hans væri ekki við góða heilsu. Á góðri stundu Robert og Shirley höfðu verið saman á menntaskólaárum sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.