Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 16
16 Annáll 28. desember 2012 Áramótablað
Nóvember
19. nóvember
Þrjú mál gegn
Berki og Annþóri
n Börkur Birgisson og Annþór Kristján
Karlsson voru leiddir inn í dómsal
hvor í sínu lagi í fylgd fjölda lög-
reglumanna þegar þrjú mál gegn
þeim og átta öðrum voru tekin til
meðferðar. Sakarefnin voru alvarleg
og vörðuðu sérstaklega hættulegar
líkamsárásir, fjárkúganir og frelsis-
sviptingar. Lögreglumennirnir sem
fylgdu Berki og Annþóri í salinn
fylgdust einnig náið með meðan á
þinghaldinu stóð. Börkur og Ann-
þór eiga langan og ofbeldisfullan
sakaferil að baki.
23. nóvember
Sveddi tönn í 22
ára fangelsi
n „Ég verð sýknaður.
Á ég að segja þér út
af hverju? Af því
að ég gerði ekki
neitt af mér,“ sagði
Sverrir Þór Gunnar-
son, einnig þekkt-
ur sem Sveddi tönn, í
samtali við DV úr fangelsinu sem
hann dvelur í í Brasilíu. Sverrir var
í undirrétti dæmdur til 22 ára fang-
elsisvistar fyrir að hafa skipulagt
smygl á rúmlega 50 þúsund e–töfl-
um. Sverrir er búinn að áfrýja mál-
inu og segist vera saklaus. „Ég þekki
fólkið á bak við þetta smygl en ég
vissi ekki að þetta smygl ætti sér
stað. Vinur minn, eða svona dóp-
sali í Amsterdam, sem selur mér
stundum kók því mér finnst svo
gott að fá mér kók – ég sagði hon-
um að ég væri að fara til Brasilíu og
spurði hvort hann þekkti ekki ein-
hverja gaura sem gætu reddað mér
góðu kóki. „Jú, jú,“ sagði hann.“
28. nóvember
Sakar lögmann
um sofandahátt
n Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveins-
son kemur við sögu í bókinni Ég
gefst aldrei upp þar sem Borghildur
Guðmundsdóttir lýsir reynslu sinni
af forræðisdeilu við bandarísk-
an barnsföður sinn en hún sakar
Svein Andra um að hafa sofnað á
fundi með sér, mæta illa undirbú-
inn í dómsal og senda sér smáskila-
boð með niðurstöðu Hæstarétt-
ar; að henni væri gert að snúa til
Bandaríkjanna með syni sína, níu
og fjögurra ára.
Desember
3. desember
Ólga vegna
ástkonu
n Tuttugu og sjö ára lögfræðinemi,
Sara Lind Guðbergsdóttir, var ráðinn
úr hópi fjölmargra umsækjanda í
eina af æðstu stöðum stéttarfélags-
ins VR í apríl síðastliðnum. Sara
Lind hafði á þessum tíma ekki lokið
lögfræðinámi sínu í Háskóla Íslands
og hafði takmarkaða starfsreynslu,
sem vitanlega er ekki óeðlilegt
þegar litið er til ungs aldurs henn-
ar og þeirrar staðreyndar að hún
hafði ekki lokið námi sínu. Um 400
umsækjendur sóttu um starfið sem
Sara Lind fékk og tvö önnur störf
hjá VR. DV hefur ekki upplýsingar
um hversu margir sóttu um hvert af
þessum þremur störfum en Stefán
Einar Stefánsson, formaður VR, stað-
festir þessa heildartölu í samtali við
DV. Nokkrum mánuðum síðar – í
nóvember – spurðist það út að Sara
Lind og Stefán Einar, sem kallar sig
viðskiptasiðfræðing, væru orðin
par. Það var Eiríkur Jónsson, blaða-
maður og bloggari, sem greindi frá
sambandi þeirra á bloggsíðu sinni.
3. desember
Fátækralisti í
Kópavogi
n Listi með nöfnum þeirra sem
þiggja fjárhagsaðstoð hjá Kópa-
vogsbæ er lagður fram í félags-
málanefnd bæjarins reglulega.
Á listanum er að finna nöfn allra
þeirra einstaklinga sem þurfa að
leita á náðir bæjarins þar sem það
getur ekki fengið fjárhagsaðstoð
frá ríkinu, svo sem bætur vegna
atvinnuleysis. Fáheyrt er að slík-
ir listar séu lagðir fram fyrir kjörna
fulltrúa en ákvarðanataka um
hverjir fá fjárhagsaðstoð er í hönd-
um starfsmanna bæjarins. Félags-
málanefndir sveitarfélaga taka hins
vegar áfrýjanir á synjun beiðna um
fjárhagsaðstoð upp á sínum fund-
um.
5. desember
Jón Ásgeir
stýrir Iceland
n Jón Ásgeir Jóhannesson, fjárfestir
og fyrrverandi aðaleigandi Baugs,
stýrir Iceland-keðjunni á Íslandi á
bak við tjöldin. Þetta kemur fram í
tölvupósti frá Jóni Ásgeiri til starfs-
manns Iceland-búðanna, Guð-
rúnar Þórsdóttur, eiginkonu föður
hans sem var annar stjórnarmanna
rekstrarfélags Iceland, og Einars
Þórs Sverrissonar lögmanns, sem
dagsettir eru 5. og 6. október síðast-
liðinn. Í allri umfjöllun um Iceland-
keðjuna er faðir Jóns Ásgeirs,
Jóhannes Jónsson, sagður vera
eigandi Iceland-keðjunnar og hef-
ur Jón Ásgeir ekki verið bendlaður
við verslanirnar opinberlega með
beinum hætti. Meðal annars sagði
Jóhannes á Beinni línu DV að Jón
Ásgeir kæmi ekki að rekstri Iceland:
„Jón kemur ekki að rekstri Iceland.“
5. desember
Gunnari
bolað burt
n Gunnar Þorsteinsson, sem oftast er
kenndur við Krossinn, var rekinn
úr stjórn áfangaheimilisins Kross-
götum. „Ég vil ekkert tjá mig um
þetta mál,“ sagði hann aðspurður
um málið. Það var Gunnar sem setti
Krossgötur á laggirnar fyrir 25 árum
og hefur verið, þar til nú, formað-
ur stjórnar áfangaheimilisins frá
upphafi. Ástæðuna má samkvæmt
heimildum DV rekja til aðalfundar
Krossins sem haldinn var í maí síð-
astliðnum.
6. desember
Dómsmorðið
á Sigurþóri
n Hæstiréttur leiðrétti dóm yfir
Sigurþóri Arnarssyni sem sat í fang-
elsi í eitt og hálft ár fyrir morð sem
framið var á skemmtistaðnum Veg-
as árið 1997. Sigurþór var sýknað-
ur í Héraðsdómi Reykjavíkur á sín-
um tíma en sakfelldur í Hæstarétti
árið 1998 án þess þó að vitni væru
leidd fram eða skýrsla tekin af hon-
um. Var hann dæmdur í tveggja ára
og þriggja mánaða fangelsi og sat
inni í átján mánuði. Sigurþór fór
með málið fyrir Mannréttindadóm-
stól Evrópu sem komst að þeirri
niðurstöðu árið 2003 að reglur um
réttláta málsmeðferð hefðu verið
brotnar.
17. desember
Matthías Máni
flúði af Hrauninu
n Matthías Máni Erlingsson strauk úr
afplánun af fangelsinu
Litla-Hrauni. Lög-
reglan lýsti eftir
honum og fljót-
lega hófst um-
fangsmikil leit að
honum. Lögreglu-
menn, fangaverðir
og björgunarsveitarmenn tóku þátt
í leitinni. Matthías Máni var dæmd-
ur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til
manndráps um miðjan september.
Hann réðst á fyrrverandi stjúpmóð-
ur sína og barði hana meðal annars
með kertastjaka. Matthías Máni gaf
sig fram við lögreglu á aðfangadags-
morgun.
20. desember
Annþór og
Börkur dæmdir
n Síbrotamennirnir Annþór Krist-
ján Karlsson og Börkur Birgisson voru
dæmdir í sjö og sex ára fangelsi í
héraðsdómi. Átta aðrir voru ákærð-
ir í sama máli og var Jón Ólafur Ró-
bertsson dæmdur til tveggja ára
fangelsisvistar, Kaj Anton A. Larsen
fékk átján mánaða fangelsisdóm og
var sviptur ökuréttindum ævilangt,
Sigmundur Geir Helgason fékk átján
mánaða fangelsisdóm, Sindri Krist-
jánsson fékk átján mánaða fang-
elsisdóm, Smári Valgeirsson fékk
tveggja ára fangelsisdóm, Viggó
Emil Berglindarson fékk tveggja ára
fangelsisdóm, Viktor Hrafn Einars-
son fékk 18 mánaða fangelsisdóm
og Þórbergur Ísak Þóroddsson fékk 15
mánaða fangelsisdóm. Mennirn-
ir voru ákærðir fyrir sérstaklega
hættulegar líkamsárásir, tilraunir til
fjárkúgunar, ólögmæta nauðung og
frelsissviptingu.
Vinnur með pabba sínum Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson er einn af stjórnendum Iceland-matvöruverslunarinnar. Allt þar til DV greindi frá afskiptum hans við hlutafjáraukn-
ingu í félaginu hafði því verið haldið fram að Jón Ásgeir hefði enga að komu að versluninni. Jóhannes Jónsson, faðir Jóns Ásgeirs, hefur verið andlit verslunarinnar.