Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 47
Ánægður með broshrukkurnar
Viðtal 39Áramótablað 28. desember 2012
vill gamla fólkið elda matinn vel og
lengi. Mamma er ekkert sérstaklega
hrifin af mínum mat en ég veit að
hún er ánægð og stolt af því sem ég
er að gera.“
Kreppan bítur
Aðspurður segist Jóhannesi ekki
lítast nógu vel á árið 2013. „Sem at-
vinnurekandi er ég ekkert rosa-
lega spenntur. Það er ekki hægt að
sjá margt jákvætt framundan. Ekki
nema það komi eitthvað gott út úr
þessum kosningum. Það eina góða
er að við komumst ekki mikið neð-
ar,“ segir hann og bætir við að krepp-
an hafi vissulega haft áhrif á rekstur
hans. „Við fjölskyldan sluppum svo
sem enda áttum við svo lítinn pen-
ing og höfðum ekkert náð að fjár-
festa. En að sjálfsögðu kom krepp-
an við fyrirtækið okkar. Þar hafa öll
lán hækkað sem og verð á hráefnum.
Það er erfitt að reka fyrirtæki í dag.
Ég held samt að við Íslendingar höf-
um lært mikið af þessari kreppu og
gerum okkur flestir grein fyrir því
að tíminn fyrir kreppu var ekki góð-
ur. Ég trúi ekki að nokkur maður vilji
fara þangað aftur.“
Eins og barnsrass
Jói Fel er 45 ára. Hann segist ánægð-
ur með hækkandi aldur en viður-
kennir að útlitið sé aðeins farið
að láta á sjá. „Aldur breytir manni
eingöngu að því leytinu að mað-
ur þroskast, nýtur lífsins öðruvísi og
gerir hlutina á annan hátt. Vissulega
eru komnar hrukkur og annað sem
ég viðurkenni að fór taugarnar á mér
um tíma þegar ég leit í spegil, en í
dag finnst mér bara fyndið að skoða
gamlar myndir af mér. Ég leit út eins
og barnsrass í framan á 15 ára göml-
um myndum! Ég er bara ánægður
með mig eins og ég er enda eru þetta
aðallega broshrukkur.
Ég er að nálgast fimmtugt og finn
að ég kominn á seinni hálfleik. Hvert
ár sem líður er bara plús. Það er
guðsgjöf að fá að lifa árið af.“
Varðandi áramótaheit segist hann
aðeins ætla að strengja eitt slíkt. „Ég
strengi alltaf sama áramótaheitið
en það er að geta strengt það aftur
á næsta ári. Það er einfalt og gott.
Þegar maður er kominn á þennan
aldur og sér fólk í kringum sig veikj-
ast og falla frá er það það besta sem
maður getur gert; að óska sér næstu
áramóta heill heilsu.“ n
Ein stór fjölskylda Öll fjölskyldan er á kafi í einhvers
konar líkamsrækt. Elstu börnin eru að lyfta eins og Jói
og Unnur en sá yngsti æfir karate.
Minnti á mömmu Jói segist hafa fundið
þá einu réttu þegar hann hitti Unni. Hann
hafi heillast af því hversu mikil heimskona
hún væri.
Humarsúpa
n 1 kg humar í skel
n Cayenne-pipar
n 1 stk. laukur
n 1 stk. gulrót
n 1 stilkur sellerí
n 3 stk. hvítlauksrif
n 3 stk. lárviðarlauf
n 10 stk. svört piparkorn
n 1 l vatn
n 1 l kjúklingasoð
n Ca. 1 msk. humarkraftur
n 1 msk. tómatpúrra
n 2½ dl hvítvín
n 1 stilkur steinselja
n Salt
n 4 dl rjómi
Humarinn er tekinn úr skelinni
og hreinsaður og tekinn til hlið-
ar. Skeljarnar eru steiktar upp
úr smjöri og olíu. Brúnið skelj-
arnar vel og merjið í pottinum,
kryddið skeljarnar með cayenne-
pipar. Saxið svo niður lauk, gulrót
og sellerí og setjið saman við og
steikið áfram, merjið hvítlauk-
inn og setjið saman við ásamt
piparkornunum og steikið áfram.
Setjið þá vatn, soð, kraftinn og
vín saman við ásamt púrru, setj-
ið steinseljuna í eftir ca. 1–2 tíma.
Sjóðið við mjög vægan hita í ca.
2–5 tíma til að fá gott soð. Mjög
gott er að gera soðið daginn áður
og láta það standa yfir nótt með
öllu í pottinum. Sigtið svo soðið
og kremjið vel allan vökva úr
skeljunum.
Hitið soðið að suðu og setjið
rjómann saman við og saltið lítil-
lega. Látið suðuna koma upp og
sjóðið í ca. 2 mínútur.
Þykkið með smjörbollu sem
er blanda af smjöri og hveiti til
helminga. Setjið þá humarinn
saman við og slökkvið á suðunni.
Setjið súpuna í skálar og setjið
eina matskeið af léttþeyttum
rjóma yfir og stráið saxaðri
steinselju yfir. Berið fram með
góðu snittubrauði.
Villibráðarfillet
t.d. hreindýr eða hjartardýr
Kjötið er brúnað á pönnu og
kryddað með salti og pipar,
nokkrar timjangreinar eru steikt-
ar með. Kjötið er sett í eldfast mót
og eldað við 180°C í ca. 12 mín-
útur eða þar til kjarninn er kom-
inn í ca. 55°C, látið kjötið standa
í ca. 5–7 mínútur áður en það er
skorið.
Sósa
n ½ skalottlaukur
n Blandaðir sveppir
n 1 dl rauðvín
n 2 dl villibráðarsoð
n 1dl rjómi
n 1–2 tsk. gráðostur
n 1 tsk. rifsberjasulta
n Salt og pipar
n 1 msk. smjör
Nokkrir sveppir eru steiktir ásamt
lauk á pönnunni sem kjötið var
steikt á, 1 dl af rauðvíni er settur
saman við og soðið niður um
helming. Um það bil 2 dl villi-
bráðarsoð er sett saman við, þá
er rjóminn settur saman við.
Kryddið með salti og pipar, setjið
að síðustu sultu og gráðost saman
við. Setjið svo smjör í sósuna og
slökkvið undir. Borið fram með
steiktum kartöflum
Litlar pavlóvur
n 4 stk. eggjahvítur
n 250 gr sykur
n 1 tsk. edik
n ½ tsk. vanilla
n ½ tsk. salt
Allt er þeytt saman þar til blandan
er vel stíf, marengsinn er settur á
plötu með matskeið og bakaður
við 100°C í ca. 45 mínútur og þá er
ofninn látinn standa opinn í um
það bil 1 klukkustund, eða þar til
ofninn og marengsinn er orðin vel
kaldur.
Rjómakrem
n 2 dl rjómi
n 2 msk. flórsykur
n 1 tsk. vanilludropar
Léttþeytið rjómann og blandið
flórsykri og vanillu saman við.
Sósa
n Um það bil 100 gr blönduð ber
n 1 msk. sítrónudropar
n 1 msk. sykur
Setjið allt saman í matvinnsluvél
og maukið, en passið að mauka
ekki mikið.
Setjið marengsinn à disk, setjið
kremið yfir og skreytið með berj-
um. Setjið sósuna í kringum
marengsinn.
Hátíðaruppskriftir
Jóa Fel