Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 62
54 Annáll 28. desember 2012 Áramótablað
L
íklega eru fá fyrirbæri í seinni
tíð íslenskari en Menn-
ingarnótt. Vanir listamenn
jafnt sem viðvaningar undir-
búa sig allt árið og spretta síðan
allir upp í einu á þessu listaflóði síð-
sumarsins þar sem enginn veit hvað
hann á að skoða og óhjákvæmilega
endar þetta með allsherjarfylleríi og
flugeldasýningu. Flest gleymist fljótt
og oftast er það flugeldasýningin sem
er rædd í þynnkunni daginn eftir, en í
þetta sinn átti sér stað heimsviðburð-
ur á Menningarnótt.
Á meðan Eyjapeyjar punguðu út
stórfé til að fá Boyzone-gaurinn til að
syngja lagið úr Notting Hill á þjóð-
hátíð og Árni Johnsen skopaðist á
mbl.is í auglýsingaskyni fyrir Vífil-
fell, styrkti Reykjavík sig í sessi sem
menningarhöfuðborg jafnt sem eig-
inleg höfuðborg landsins. Við feng-
um jú stórstjörnuna Russell Crowe
til að syngja fyrir okkur. Og það óum-
beðinn.
Stjörnur um hábjartan dag
Hvað um það þó að Crowe sé í raun
þekktur fyrir allt annað en að syngja.
Ég er af þeirri kynslóð sem man enn
eftir því þegar Tíminn birti stórfrétt
um að Sylvester Stallone væri á leið
til landsins, og lá Tímanum svo á að
segja frá að hann athugaði ekki hvort
þetta væri eingöngu yfirskyn til að
beina athyglinni frá því að íslensk-
um börnum yrði smyglað úr landi
í miðri forræðisdeilu, sem reyndist
og vera raunin. Tækifærið til að sjá
vöðvastælta Hollywood-stjörnu um
hábjartan dag er ekki eitthvað sem
maður lætur sér svo glatt úr greip-
um ganga. Burtséð frá því hvort hann
kann að syngja eða ekki.
Áður en að flóðinu kemur
Miklar sögur höfðu þegar borist af
því þegar Crowe dúkkaði upp í æf-
ingasal Mjölnis og þótti bera sig karl-
mannlega að. Ef til vill var það svona
sem sögurnar af Gretti Ásmundar-
syni byrjuðu, löngu áður en þær voru
festar á skinn. Crowe var þó ekki hér
staddur til þess að leika Gretti í vænt-
anlegri bíómynd (því miður), efni-
viðurinn er ekki sóttur í Íslendinga-
sögurnar heldur í helgisögur annars
ættbálks og fer hann með hlutverk
sjálfs Nóa í flóðinu mikla. Og líklega
er ekki seinna vænna að fara að festa
söguna á filmu, þar sem allt stefn-
ir í að Grænlandsjökull muni bráðna
og mestallt mannkyn drukkna eina
ferðina enn áður en öldin er liðin,
hvort sem það er vegna guðlegrar
íhlutunar eða eigin heimsku.
Kyntákn kynslóðanna
En við skulum, í bili, einbeita okkur
að gleðilegri tíðindum. Í þetta sinn
var heimsókn Hollywood-vöðvafjalls-
ins ekki misskilningur ættaður úr
flokksblaði framsóknarmanna, held-
ur þóttu öruggar heimildir fyrir því að
Crowe væri kominn til landsins. Mik-
ill stjörnufans fylgdi honum, Jennifer
Connelly sem fyrst allra kvenna kom
minni kynslóð karlmanna til þegar
hún álpaðist um völundarhús 15 ára
gömul á flótta undan David Bowie
fyrir næstum 30 árum, og Emma
Watson sem líklegast hafði sömu áhrif
á aðra kynslóð drengja þegar hún sást
hjálpa Harry Potter að ráða niðurlög-
um enska sjúklingsins.
Stiller og Cruise
Stjörnur hafa sést svo víða á Íslandi
á björtum sumarnóttum í ár að varla
telst til stórtíðinda lengur, en á með-
an Tom Cruise deildi við fyrrverandi
eiginkonu sína símleiðis úr hlíðunum
utan við Akureyri og fór í taugarnar á
norðlenskum bændum, og Ben Stiller
varð hvers manns hugljúfi á Austfjörð-
um fengu Reykjavíkingar nú, sér að
endurgjaldslausu og án þess að þurfa
að loka miðbænum þegar honum datt
í hug að fara að versla, að berja sjálfan
Russell Crowe augum.
Stjarna með grátt skegg
Það reyndist rétt sem sagt hafði verið
frá í útvarpsfréttum. Í portinu á bak við
stað sem heitir Bar 11 en er ekki leng-
ur á Laugavegi 11 heldur á Hverfis-
götu 18 steig Russell Crowe á svið
ásamt vini sínum sem enginn man
nafnið á, en var þó ekki ósvipaður í
útliti. Í raun var enginn leið að segja
til um hvor þeirra væri Hollywood-
stjarnan, Crowe var vissulega stæltur
eins og fréttir höfðu sagt til um en
kvikmyndaandlitið hulið síðu, gráu
skeggi. Í raun leit hann helst út eins
og aldraður mótorhjólagaur, líklega
er það einmitt svona sem nýnasistinn
úr Romper Stomper, myndinni sem
færði honum heimsfrægð, myndi líta
út 20 árum síðar.
Útihátíð í 101
Crowe er, eins og flest frægt fólk, mun
smávaxnari í raunveruleikanum en
hann lítur út fyrir að vera á breiðtjaldi.
Í kvikmyndinni LA Confidential lék
hann lögregluþjón sem átti að vera
hávaxnari en aðrir, og til að koma sér
inn í hlutverkið leigði hann sér pínu-
litla íbúð svo honum fyndist hann vera
risi. Sviðið bætir ávallt nokkrum sentí-
metrum við jafnvel minnstu menn, og
hinn meðalhái Crowe tók sig ágætlega
út bak við míkrófóninn. Leikar gátu
hafist og íslenskir menningarunnend-
ur lyftu glösum á loft eins og þeir væru
staddir, tja, á útihátíð í Eyjum.
En hvar er Connelly?
Það var ekki fyrr en komið var fram í
þriðja lag að það rann upp fyrir fólki
að þó allir kannist við Russell Crowe
getur enginn nefnt lag með hon-
um. Hann er jú, þrátt fyrir allt, þekkt-
ur fyrir annað. Eitthvað virtist áhorf-
endur ókyrrast við þessa uppgötvun.
Þegar búið var að berja hann augum
var eins og enginn vissi hvað ætti til
bragðs að taka. Flutningur Crowe á lítt
þekktu en annars ágætu Springsteen-
lagi, þar sem gítarleikari hans reyndi
að fá fólk til að syngja með, mætti litl-
um skilningi. „Nema Jennifer Conn-
elly birtist hér á sviði,“ var eins og fólk
væri að segja, „er ég farinn.“
Pönkast á Kárahnjúkavirkjun
Connelly lét ekki sjá sig, en þess í stað
birtist kona sem eitt sinn hafði mikil
áhrif á unglingsstráka, en átti það til
að rugla þá í ríminu. Þegar Patti Smith
birtist framan á sinni fyrstu plötu árið
1975 þótti hún helst til karlmann-
leg að sjá, horfandi hrokafull nið-
ur á myndavélina klædd í gallabuxur
og skyrtu með jakkann hangandi yfir
öxlina. Patti hafði sín áhrif á pönkið
jafnt sem jafnréttisbaráttuna og var
reyndar fyrsti tónlistarmaðurinn til
að semja lag gegn Kárahnjúkavirkjun,
sem hún flutti á stórkostlegum tón-
leikum á NASA árið 2005.
Betri en flugeldasýning
Hennar þekktasta lag er þó Because
the Night, sem hún samdi ásamt áð-
urnefndum Springsteen, og ekki var
annað að sjá en það lifnaði talsvert
yfir áhorfendum þegar það var flutt.
Hér er jú kominn stjarna sem gerir
það sem hún gerir best og gerir betur
en flestir. Því miður fengum við ekki
að heyra meira frá Patti í bili, Crowe
tók aftur við og flutti lag eftir Johnny
Cash, og var kominn með salinn á sitt
band. Tónleikunum lauk, það leið að
flugeldasýningunni sem aldrei þessu
vant yrði ekki það sem fólk talaði um í
þynnkunni daginn eftir. n
valurgunnars@gmail.com
n Patti Smith og Russell Crowe gerðu allt vitlaust á Menningarnótt n Ben Stiller féll vel
í kramið n Tom Cruise tók á taugarnar n Jennifer Connelly var heimilisleg á Nesinu
Stjörnufans á
Fróni árið 2012
Russell og Patti á sviði
Í raun leit hann helst út eins
og aldraður mótorhjólagaur,
líklega er það einmitt svona
sem nýnasistinn úr Romper
Stomper, myndinni sem færði
honum heimsfrægð, myndi
líta út 20 árum síðar.
Ljúfurinn hann Ben
Stiller Varð hvers
manns hugljúfi á Aust-
fjörðum á meðan Tom
Cruise fór í taugarnar á
norðlenskum bændum.
Hrun Tom Cruise á Íslandi
Tom Cruise deildi við fyrrverandi
eiginkonu sína símleiðis úr
hlíðunum utan við Akureyri
og fann sinn botn í lífinu hér á
Íslandi.
Stórleikkona í sundlaugar-
rennibraut Mikill stjörnufans
fylgdi Crowe, þeirra á meðal
Jennifer Connelly. Jennifer bjó á
Seltjarnarnesi þar sem hún hélt
upp á afmæli sonar síns og fór í
sund í Neslauginni þar sem hún
skellti sér í rennibrautina.