Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 20
20 Annáll 28. desember 2012 Áramótablað
Lífeyrissjóðirnir
töpuðu 480 millj-
örðum
n Í febrúar kom
úttektarskýrsla
Landssamtaka
lífeyrissjóðanna.
Var upplýst í
skýrslunni að ís
lenskir lífeyris
sjóðir hefðu
tapað 480 millj
örðum króna vegna efnahagshruns
ins. Jafngildir það því að hver þeirra
250 þúsund Íslendinga sem eiga
réttindi í sjóðunum tapi um tveim
ur milljónum króna. Það samsvarar
iðgjöldum meðallaunamanns í heil
tólf ár.
Þrátt fyrir þetta og harða gagn
rýni sem birtist í skýrslunni um
lífeyrissjóðina sitja fjórir af fimm
framkvæmdastjórum þeirra sjóða
sem mestum peningum töpuðu enn
við stjórnvölinn. Þeir eru Haukur Haf-
steinsson, Árni Guðmundsson, Gunnar
Baldvinsson, og Ólafur Sigurðsson. Sá
fimmti tók við árið 2009, Guðmundur
Þ. Þórhallsson hjá Lífeyrissjóði versl
unarmanna, en hann hafði áður
starfað í 12 ár hjá sjóðnum, meðal
annars sem forstöðumaður eigna
stýringar sjóðsins.
Watson kaupir
Actavis
n DV greindi frá því í lok febrúar að
bandaríska lyfjafyrirtækið Watson
væri í viðræðum um kaup á Actavis.
Var Björgólfur Thor Björgólfsson, fjár
festir og þáver
andi eigandi
Acta vis spurður
um söluna í
skýrslu töku fyrir
Héraðsdómi
Reykjavíkur í febr
úar. Var um að
ræða skýrslu töku
vegna skuldamáls
aflandsfélags hans, BeeTeeBee Ltd.
gegn Róbert Wessmann, fyrrverandi
forstjóra Actavis. Vildi hann lítið
ræða um viðræður sem þá stóðu á
milli Watson og Actavis. Í lok apríl
var síðan tilkynnt að Watson hefði
gengið frá kaupunum á Actavis og
hljóðaði kaupverðið upp á 700 millj
arða króna.
Ofsagróði við
Afríkustrendur
n DV sagði frá því
í apríl að Sam
herji ætti tvö
eignarhaldsfélög
á Kýpur. Þau fé
lög, Fidelity Bond
Investments
Ltd. og Miginato
Holdings Ltd.,
eiga eignir upp
á átta milljarða
króna og vildi Þorsteinn Már Baldvins-
son, forstjóri Samherja ekki upplýsa
hvernig félögin eignuðust þann hlut.
Greindi DV frá því að rannsókn
eftirlitsaðila á meintum brotum Sam
herja á lögum um gjaldeyrismál væru
umfangsmeiri en komið hefði fram í
fjölmiðlum og teygði anga sína með
al annars til dótturfélaga á Kýpur.
Í maí birti DV síðan frétt um að
á milli 30 og 40 prósent af tæplega
420 milljóna evra, um 65 milljarða
króna, heildarveltu Samherja sé til
komin vegna veiða fyrirtækisins við
strendur NorðurAfríku. Samherji á
og rekur sjö verksmiðjutogara og tvö
þjónustuskip í gegnum fyrir tækið
Kötlu Seafood á Kanaríeyjum sem
fyrirtækið gerir út undan ströndum
Marokkó, Máritaníu og Vestur
Sahara. Eignarhald á þessari útgerð
Samherja er í gegnum aflandsfélagið
Fidelity Bond Investments Limited
sem skráð er í skattaskjólinu Kýpur
eins og DV greindi frá í apríl.
Þyngstu dómar
hrunsins
n Í júní voru þeir
Jón Þorsteinn Jóns-
son, fyrrverandi
stjórnarformaður
Byrs, og Ragnar Z.
Guðjónsson, fyrr
verandi sparisjóðs
stjóri, dæmdir í
fjögurra og hálfs
árs fangelsi fyrir
umboðssvik í Hæstarétti Íslands.
Mál Styrmis Bragasonar, fyrrverandi
forstjóra MP banka, var síðan sent
aftur í hérað. Snéri Hæstiréttur þar
með við dómi héraðsdóms.
Þá greindi DV frá því í nóvember
að Jón Þorsteinn hefði flutt mörg
hundruð milljónir króna í erlendum
gjaldeyri frá Íslandi, bæði á árinu
2011 og 2012. Nokkrum dögum síð
ar í nóvember sagði DV frá því að
þeir Jón Þorsteinn Jónsson og Ragnar
Z. Guðjónsson, sem hófu afplánun á
Kvíabryggju á Snæfellsnesi í haust,
byggju þar í einbýlishúsi með gufu
baði á fangelsislóðinni. Húsið, sem
er 180 fermetrar, var upphaflega
byggt sem heimili fyrir forstöðu
mann Kvíabryggju en því var breytt í
vistarverur fyrir fanga fyrir nokkrum
árum. Í húsinu er fullbúið eldhús,
sem íbúar hússins hafa aðgang að,
auk þess sem þeir hafa aðgang að
internetinu og farsímum sínum
allan sólarhringinn. Deila þeir Jón
Þorsteinn og Ragnar Z. húsinu með
öðrum fanga, Jóni Sverri Bragasyni,
sem dæmdur var fyrir barnaníð
gegn einhverfum dreng árið 2010.
Milljarðar
Bakkabræðra
n Í lok júní greindi DV frá því
að bræðurnir
Lýður og Ágúst
Guðmundssynir,
fyrrverandi
aðal eigendur
eignarhalds
félagsins Exista,
hefðu fengið
samtals tæp
lega 8,9 milljarða
króna arð út úr
félaginu á árunum fyrir hrun. Arð
greiðslurnar voru vegna bókfærðs
hagnaðar Exista á árunum 2005 til
2007.
Bræðurnir, sem yfirleitt eru
kenndir við matvælaframleiðslu
fyrirtækið Bakkavör sem þeir stofn
uðu á níunda áratugnum, voru í
júní að reyna að kaupa Bakkavör af
núverandi eigendum þess, Arion
banka og nokkrum lífeyrissjóðum.
Bræðurnir misstu yfirráð sín yfir
Bakkavör í kjölfar efnahagshrunsins
árið 2008 en stýra því enn sem for
stjóri og stjórnarformaður.
Bræðurnir eiga um 25 prósenta
hlut í Bakkavör en áhugi þeirra stóð
hins vegar til að þess að kaupa allt
hlutafé félagsins fyrir alls 16 millj
arða króna. Kom fram að þeir hygð
ust fjármagna viðskiptin með reiðu
fé en ekki með lánsfé frá bönkum.
Skúli kærði Pálma
fyrir njósnir
n Í júlí var greint
frá því að lög
reglunni á höf
uðborgarsvæð
inu hefði borist
kæra og beiðni
um opin bera
rannsókn vegna
meintra brota
Pálma Haralds-
sonar, Iceland
Express ehf., Björns Vilbergs Jóns-
sonar og annarra ótilgreindra starfs
manna Iceland Express ehf. gegn
WOW air. Kæran varðaði meintar
njósnir Pálma og Iceland Express
um rekstur WOW air.
Síðar á árinu var greint frá því að
WOW air undir forystu Skúla hefði
keypt Iceland Express af Pálma
Haraldssyni.
Afskriftarkóngar
komnir á fullt
n Í ágúst var greint frá því að
byggingarfélag Gunnars og Gylfa
eða Bygg væri komið í stórsókn en
fyrirtækið er með áform um að reisa
alls 400 íbúðir í Lundi í Kópavogi
sem og 150 íbúðir í Sjálandshverfinu
Eftir álar hrunsins
Viðskiptafréttannáll DV árið 2012