Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 64
56 Lífsstíll 28. desember 2012 Áramótablað Þau standa við áramótaheitin A tli Fannar Bjarka son, fram­ kvæmda stjóri Bjartrar fram tíðar, segist yfirleitt ekki strengja nýársheit en hann gerði það þó í fyrra þegar hann hét sjálfum sér því að hreyfa sig meira. Hann segist aðeins hafa verið farinn að hreyfa sig meira en vanalega þegar hann strengdi nýársheitið í fyrra en hann ákvað að prófa að setja sér takmark og gá hvort hann gæti staðið við það. „Ég þurfti að ögra sjálfum mér á einhvern hátt og það var ágætt að miða við áramót til að sjá hvernig hafi gengið. Það var til að gera þetta markvissara og það gekk fullkomlega eftir.“ Hann segist hafa fengið óslökkvandi áhuga á að hreyfa sig og byrjaði að fara í Mjölni. Hann æfði fjórum sinnum í viku og segir að hollara mataræði hafi fylgt í kjölfarið. „Ég var mikill sófakarl áður; ég er það reyndar ennþá en núna hef ég betri afsökun til að liggja í sófanum af því að ég er í alvöru þreyttur en ekki bara latur. Ég hugsa að ég strengi næst nýársheit um að halda þessu áfram og ganga lengra í þessum málum. Ég var með eitt undir­ takmark í fyrra en það var að ná þeim styrk og sprengikrafti að geta troðið í körfu í löglegri hæð. Ég sé ekki fram á að ná því á þessu ári en ég ætla að reyna að ná því í staðinn á næsta ári. Ég er búinn að segja allt of mörgum frá því takmarki og er eiginlega að bugast undan pressunni en þetta er æskudraumur sem ég hyggst láta rætast á nýju ári. Ég hef tólf mánuði, hversu erfitt getur þetta verið?“ Vill geta troðið í körfu Atli Fannar Bjarkason „Ég hef tólf mánuði, hversu erfitt getur þetta verið? Þ óra Arnórsdóttir frétta­ maður segist oft setja niður nokkur markmið í byrjun hvers árs. „Þótt áramót séu í rauninni bara til í huga okk­ ar mannanna, tilbúin tímamót, þá eru þau tilvalin til að fara yfir það sem hefur verið gert vel og það sem betur má fara. Ég krota þetta í dagbókina sem ég held fyr­ ir krakkana, þau geta svo farið yfir það einhvern tímann eftir minn dag hvernig gekk að uppfylla markmiðin.“ Þóra segir að hingað til hafi það gengið ljómandi vel að fara eftir nýársheitunum. „Nema hinu árlega heiti um að koma skikki á fjölskyldumyndirnar, prenta út og setja í albúm með skipulegum hætti. Þau mál eru enn í ólestri þrátt fyrir margendurtekin nýárs­ heiti þar um.“ Hún segir að yfirleitt sé um persónuleg markmið að ræða og tekur fram að óþarfi sé að spenna bogann of hátt. „Maður á að setja sér hófleg markmið af því að þá er auðveldara að ná þeim og því fylgir alltaf góð tilfinning.“ Heitin verða þó ekki mörg í ár. „Ég held að ég strengi aðeins tvö nýársheit að þessu sinni. Það er annars vegar að fara til Katar og heimsækja þau Kristínu Soffíu og Ólaf Stefánsson handboltakappa sem er að fara að spila með þar­ lendu handboltaliði. Við Kristín erum gamlar vinkonur úr hand­ boltanum og við erum fleiri úr þeim hópi sem ætlum ekki að láta þetta tækifæri okkur úr greip­ um ganga. Við klúðruðum því að heimsækja þau til Spánar en nú mun ekkert stöðva okkur.“ Hitt lýtur að íþróttaiðkun: „Ég ætla að strengja sameiginlegt heit með badmintonmakkernum mín­ um, henni Auði Árnadóttur. Við ætlum að kafsigla eiginmenn okk­ ar á vellinum á nýju ári.“ Þóra Arnórsdóttir „Við ætlum að kafsigla eiginmenn okkar á vellinum á nýju ári. m y n d ir s ig tr y g g u r a r i Fer í ferð til Katar Hætti að borða franskar Rakel Garðarsdóttir ákvað um síð­ ustu áramót að hætta að borða franskar kartöflur. „Ég stóð við áramótaheitið og hef ekki fengið mér eina einustu franska kartöflu á árinu,“ segir Rakel við DV. „Ég er að hugsa mig um þessa dagana, hvaða heit ég geti tekist á við á nýju ári. Það verður að vera eitt­ hvað álíka viðráðanlegt!“ Langþráður draumur rættist Jón Gunnar Geirdal stóð við sitt áramótaheit frá síðasta ári sem var að fara út í langþráðan rekstur. „Ysland átti að verða að veruleika á árinu sem það og varð,“ segir Jón Gunnar en á vegum fyrirtækis­ ins hefur hann sinnt fjölda stórra viðburða á árinu. Fyrir næsta ár setur hann sér það einfalda mark­ mið að halda áfram að vinna við það sem hann elskar. „Sem er að vinna með skemmtilegu fólki að skemmtilegum verkefnum!“ Stóð við heitið í fyrsta sinn Gunnhildur Arna Gunnarsdótt­ ir, upplýsingafulltrúi Símans, stóð við sitt áramótaheit og var það í fyrsta sinn. „Fyrir árið 2012 ákvað ég að hætta að drekka svartan, göróttan sætuefnagosdrykk. Ég drakk hann í lítravís; svona rúman lítra á dag. Það tókst. Ég hef ekki oft strengt áramótaheit, hvað þá staðið við þau. Þetta er það fyrsta og ég er stolt af mér, svo stolt reyndar að ég ætla að strengja annað heit fyrir nýja árið. Nú ætla ég ekki að drekka fleiri en einn koffínkaffibolla á dag og snúa mér að koffínlausu kaffi þar fyrir utan – já, eða bara sleppa því.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.