Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 30
30 Annáll 28. desember 2012 Áramótablað
Skrítnustu myndir
ársins 2012
Þær voru hverjar aðrar skrítnari fregnirnar á árinu. Fréttir um fljúgandi ketti og keyrandi
hunda fóru um heiminn, en uppgötvanir í dýraríkinu vöktu einnig athygli. DV tók saman
nokkrar skrítnar fréttir og myndir af erlendum vettvangi.
„Nú flýgur hann!“
„Hálfur köttur, hálft vélmenni,“ var lýsing listamannsins
Barts Jansen á listaverkinu sínu Orvillecopter, sem hann
sýndi á KunstRAI-listahátíðinni í Amsterdam í júní. Jansen
varð hryggur þegar kötturinn hans, Orville, varð fyrir bíl og
dó. Hann ákvað því að heiðra minningu kattarins með því að
breyta honum í þyrlu.
„Nú flýgur hann með fuglunum,“ sagði listamaðurinn eftir að
hafa komið hreyflum fyrir á uppstoppuðum Orville: „Hærra
kemst hann ekki!“ Fyrst um sinn var Orville óstöðugur í flugi
sínu og því kom listamaðurinn fyrir öflugri hreyflum, og sagði
það vera afmælisgjöf til kattarins sáluga. Mynd Reuters
Minnsta froskdýr veraldar
Í janúar römbuðu vísindamenn á nýja froskategund. Froskurinn Paedocypris
progenetica er minnsti froskur veraldar, að meðaltali er hann 7,7 millímetra
langur. Kvikindið fannst Papúa Nýju-Gíneu. „Mér finnst það ótrúlegt að menn
séu sífellt að finna minni og minni tegundir,“ sagði froskdýrafræðingurinn
Robin Moore í tilefni fundarins. „Dýrin eru að aðlagast til þess að fylla vist-
stöðu sem ekkert annað dýr hefur.“ Mynd National Geographic
Byggðu hraðbraut í kringum húsið
„Við getum ekki bara látið hann fá hvað sem hann vill, það er ómögulegt,“ sagði
frændi andabóndans Luo Baogen sem átti svokallað „naglahús“ í Kína. Frændinn
var starfsmaður bæjarins, en hugtakið nær yfir hús sem standa enn eftir að öll
nærliggjandi hús hafa verið rifin til að rýma fyrir öðru mannvirki, þar sem eigandi
þess vill ekki selja það. Luo þrjóskaðist við þegar öll önnur hús í grennd höfðu verið
rifin og húsið stóð í raun á miðri hraðbraut.
Luo vildi ekki selja húsið sitt þar sem stjórnvöld buðu of lítið í það – hann hefði
tapað á sölunni enda var hann nýbúinn að gera það upp og var það að andvirði tólf
milljóna eftir það. Hann gaf sig þó á endanum. „Allt í lag. Ég skal flytja,“ sagði Luo í
byrjun desember og tók þar með 5,2 milljóna króna boði stjórnvalda. Mynd Reuters
Skrýtnasti limur veraldar
Lucy Cook fór á vegum National Geographic til
Tasmaníu í Ástralíu til þess að fjalla um maurígulinn,
smávaxið spendýr sem lifir einkum á maurum og er
þakið broddum. Getnaðarlimur dýrsins varð umfjöll-
unarefni hennar í júlí enda er hann með endemum
einkennilegur.
„Þessi ótrúlegi limur er með fjóra mismunandi hausa
og lítur út eins og þumallaus hönd með örstutta
fingur. Eða einhvers konar einkennilegt afbrigði af
sjávaranemónu. Hann er allavega ekki í líkingu við
neinn getnaðarlim sem ég hef séð. Sem betur fer,“
sagði Cook. Mynd National Geographic
Hvuttarnir keyrðu um
„Það er hægt að kenna hvuttum ný brögð,“
var boðskapur samtakanna SPCA, en
félagsmenn samtakanna í Nýja-Sjálandi
tóku sig til í lok nóvember og kenndu
þremur hundum í hundaathvarfi sínu
að aka bíl. Þjálfunin fór þannig fram að
hundunum var fyrst kennt að skipta um gír
og beygja í sérhönnuðu æfingasæti.
Alls kenndu samtökin þremur hundum
að keyra, en þeir fengu síðar að spreyta
sig á sérútbúinni bifreið á æfingabraut
í Auckland á Nýja-Sjálandi. Ekki stóð til
að hundarnir ækju um í umferðinni en
uppátækið var fyrst og fremst til þess að
sýna fram á að hundar sem fyrirfinnast í
athvörfum séu vel færir um að læra nýja
hluti. Samtökin voru því með þessu að
hvetja fólk til þess að taka að sér í hunda
sem þau höfðu undir höndum. Á myndinni
sést hvar hinn tíu mánaða Porter situr í
ökusætinu, en hann var áður flækings-
hundur. Mynd SPCA