Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Síða 22
misnotað aðstöðu mína hjá Lands
björg. Hvernig ætti ég að geta þvegið
peninga í gegnum Landsbjörg? Þetta
er absúrd. Þetta mál tengist Lands
björg ekki neitt en samt er búið að
draga félagið inn í þetta. Ég er valinn
sem skotmark af því að ég er í við
kvæmu starfi hjá þessum félaga
samtökum,“ sagði Guðmundur Örn í
samtali við DV.
Í myndbandinu er meðal annars
spiluð hljóðupptaka þar sem Guð
mundur Örn ræðir um fjármagns
flutninga upp á tugi milljóna
króna við annan mann og talað
um persónulegan hagnað þeirra af
flutningunum. Hljóðupptakan var
gerð, án vitundar Guðmundar, af þá
verandi viðskiptafélaga hans, löngu
áður en hann hóf störf hjá Lands
björg í maí árið 2012.
Óráðsíða hjá Eir
n Í nóvember
greindu fjölmiðlar
frá óráðsíu í rekstri
hjúkrunarheimilis
ins Eirar. „Þetta var
viðskiptamódel
sem gekk ekki
upp. Það lá undir
rekstraráætlun
sem átti að vera
í lagi en var það
bara ekki,“ sagði Sigurður Rúnar Sigur-
jónsson, framkvæmdastjóri hjúkr
unarheimilisins Eirar, aðspurður
um slæma stöðu félagsins í samtali
við DV.
Eir skuldar um átta milljarða
króna og er með neikvæða eigin
fjárstöðu. Um tveir milljarðar af
skuldum Eirar eru við íbúa í íbúðum
Eirar sem eiga að fá endurgreiðslu
á búseturéttinum í fasteignunum
að leigu tíma loknum. Þetta þýðir í
reynd að Eir getur ekki í dag staðið
við skuldbindingar sínar gagnvart
viðskiptavinum sínum, eldri borgur
unum sem fjárfest hafa í búseturétti
í íbúðum Eirar.
Því var einnig haldið fram að Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri og stjórnarfor
maður Eirar, hafi leynt stjórn félags
ins upplýsingum um slæma fjár
hagsstöðu hjúkrunarheimilisins árið
2011. „Ég hef ekki vísvitandi leynt
upplýsingum, þvert á móti lagði ég
áherslu á það þá mánuði sem ég
var framkvæmdastjóri að upplýsa
stjórnina um rekstur félagsins, með
al annars viðamiklar hagræðingar
aðgerðir og ráðstöfun íbúða. En
ég var ekki að leyna neinu,“ sagði
Vilhjálmur í viðtali við DV.
Fjölmiðlar héldu síðan áfram að
segja fréttir af óráðsíu í rekstri Eirar.
DV greindi frá því að Séra Sigurður
Helgi Guðmundsson, þáverandi fram
kvæmdastjóri Eirar, hafi látið hjúkr
unarheimilið greiða fyrir utan
landsferð dóttur sinnar, Vilborgar,
og fjölskyldu hennar í ágúst 2011.
Reikningurinn nam 200 þúsund
krónum. Um var að ræða kaup á
gjafakorti hjá Icelandair sem notað
var til kaupa á farmiðum til Spánar.
Síðar kom í ljós að Eir hafði gefið
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni 100 þúsund
króna gjafabréf þegar Vilhjálmur
gifti sig. Síðar tilkynnti Vilhjálmur að
hann myndi endurgreiða umrædda
gjöf.
DeCode selt fyrir
rúma 50 milljarða
n Nú í desember
var grein frá því
að Íslensk erfða
greining (deCode)
hefði verið selt til
bandaríska líf
tækni og lyfja
framleiðslufyrir
tækisins Amgen
fyrir 415 milljónir
Bandaríkjadala,
eða um 52 milljarða íslenskra króna.
Greindi DV frá því að deCode hefði
skilað samtals 60 milljarða króna
tapi frá 1997 til ársloka 2011. Því
nam tap félagsins síðastliðin fimmt
án ár hærri upphæð en kaupverðið
sem Amgen reiddi fram. Á um
ræddu tímabili hefur Íslensk erfða
greining skipt nokkrum sinnum um
eigendur í endurfjármögnun. DV
hafði reyndar heyrt að hægt væri
að fá hærri upphæð fyrir fyrirtækið
en 415 milljónir dala, allt upp í einn
milljarð dala.
Umdeild lán
Sameinaða
n Í nóvember
sagði DV frá því
að Sameinaði
lífeyrissjóðurinn
hefði veitt hjón
unum Sævari
Jónssyni,
fyrr verandi
knattspyrnu
manni og
eiganda
Leonard, og Helgu Daníelsdóttur
100 milljón króna lán. Voru lánin
veitt út á 500 fermetra óbyggt hús
við Mosprýði í Garðabæ eftir ís
lenska bankahrunið 2008. Á þessum
tíma voru hjónin í miklum fjárhags
vandræðum: Sævar var lýstur gjald
þrota árið 2009 – ekkert fékkst upp í
312 milljóna kröfur í bú hans þegar
skiptum lauk fyrr á árinu – og Sævar
færði úra og skartgripafyrirtækið
yfir á Helgu í aðdraganda gjald
þrotsins. Bróðir Sævars starfar sem
skrifstofustjóri Sameinaða lífeyris
sjóðsins og er jafnframt staðgengill
framkvæmdastjóra.
Í desember greindi DV síðan frá
skýrslu innri endurskoðanda Sam
einaða lífeyrissjóðsins. Í henni er
lánveitingin til hjónanna Sævars
og Helgu harðlega gagnrýnd. Davíð
Arnar Einarsson, endurskoðandi hjá
Grant Thornton, vann skýrsluna
fyrir lífeyrissjóðinn.
Niðurstaðan sem Davíð komst
að, í sérstökum undirkafla skýrsl
unnar um fjárfestingarstefnu sjóðs
ins, er að lánið til Sævars og Helgu
hafi verið brot á lánareglum sjóðs
ins: „Við viljum benda á að farið sé
að settum reglum sjóðsins varðandi
lánveitingar.“
Fjármálaeftirlitið tilkynnti síðan
í desember að athugun hefði verið
gerð á láni sem Sameinaði lífeyris
sjóðurinn veitti Kristjáni Erni Sig-
urðssyni, framkvæmdastjóra sjóðs
ins. Var um að ræða vaxtalaust lán
frá sjóðnum til fimm mánaða sem
Kristjáni Erni var veitt til að kaupa
bifreið, sem hann hafði haft til
afnota, af lífeyrissjóðnum. Fjármála
eftirlitið gagnrýndi þessi viðskipti
í athugun sem gerð var opinber á
heimasíðu sjóðsins. Um þetta lán
fjallaði DV einnig líkt og aðrir fjöl
miðlar. n
22 Annáll 28. desember 2012 Áramótablað
Ævintýri Kára Ævintýri Kára Stefánsson-
ar í deCode heldur áfram eftir endurfjár-
mögnun félagsins í gegnum bandaríska
lyfjafyrirtækið Amgen. DeCode var orðið
fjárþurfi og þurfti nýtt hlutafé sem kemur
frá Bandaríkjunum – söluverðið var ríflega
50 milljarðar króna sem gerir deCode kleift
að halda áfram rannsóknum sínum næstu
árin.