Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 25
Annáll 25Áramótablað 28. desember 2012
2. maí
Gingrich gafst
upp
n Newt Gingrich, sem sóttist eftir
útnefningu Repúblikanaflokksins
fyrir forsetakosningarnar í Banda
ríkjunum í nóvember, tilkynnti að
hann drægi sig út úr baráttunni og
lýsti yfir stuðningi við Mitt Romney.
6. maí
Hollande sigraði
Sarkozy
n Francois
Hollande, fram
bjóðandi Sósíal
istaflokksins,
vann sigur í
frönsku forsetakosn
ingunum. Hann lagði sitjandi for
seta, Nicolas Sarkozy, að velli.
17. maí
Facebook
floppaði
n Facebook var sett á hlutabréfa
markað um miðjan maí en mikil
eftirvænting hafði skapast í kjölfar
kauphallarskráningarinnar. Eftir
spurn eftir bréfunum var þó ekki
eins mikil og vonast hafði verið til
og féllu bréfin í verði eftir stutta
stund á markaði.
26. maí
32 börn drepin
n Átökin í Sýrlandi héldu áfram
og seint í maímánuði biðu 32 börn
undir ára aldri bana þegar sýr
lenski stjórnarherinn gerði árás á
þorpið Houla. Sameinuðu þjóð
irnar vörpuðu sökinni á ríkisstjórn
Assads forseta en Assad sagði sjálfur
að hryðjuverkamenn hefðu framið
ódæðin.
Júní
2. júní
Mubarak
dæmdur
n Hosni Mubarak, fyrrverandi for
seti Egyptalands, var dæmdur í lífs
tíðarfangelsi. Mubarak var ákærður
fyrir að hafa fyrirskipað skotárásir á
mótmælendur í byltingunni á síð
asta ári þegar þúsundir óbreyttra
borgara létu lífið.
3. júní
Alvarlegt
flugslys
n Yfir 150 manns fórust þegar far
þegaflugvél hrapaði yfir Lagos, höf
uðborg Nígeríu, í byrjun júní. Vélin
brotlenti í fjölmennu íbúðahverfi
en skömmu áður en vélin skall til
jarðar hafði flugmaðurinn tilkynnt
um vélarbilun. Allir um borð, far
þegar og áhöfn, 153 talsins, fórust
auk ónefnds fjölda á jörðu niðri.
8.–23. júní
Borgarastyrjöld
í Sýrlandi
n Sameinuðu þjóð
irnar gáfu það út
að borgarastyrj
öld geisaði í Sýr
landi eftir að hafa
fengið upplýsingar
um fjöldamorð stjórn
arhersins í þorpinu Quebeir. Daginn
eftir, þann 9. júní, féllu 17 manns í
bardögum hersins við uppreisnar
menn í Dara‘a. Hillary Clinton, ut
anríkisráðherra Bandaríkjanna, sak
aði Rússa þann 12. júlí um að útvega
Sýrlendingum orrustuþyrlur. Og
þann 23. júní staðfestu Sýrlendingar
að þeir hefðu skotið niður tyrkneska
herflugvél. Spenna á milli landanna
jókst í kjölfarið.
17. júní
Ný ríkisstjórn í
Grikklandi
n Tilkynnt var um nýja samsteypu
stjórn hægriflokksins Nýs lýðræðis,
Sósíalistaflokksins og Lýðræðislega
vinstriflokksins Dimar, í Grikk
landi. Þar með var endi bundinn á
tveggja mánaða stjórnarkreppu í
Grikklandi. Antonis Samaras varð
forsætisráðherra.
24. júní
Morsi kjörinn
forseti
n Mohammed Morsi, forsetaefni
Bræðralags múslima, var kjörinn
forseti í Egyptalandi þegar hann
fékk rétt rúmlega 50 prósent at
kvæða.
Júlí
2.–19. júlí
Liðhlaupar á
hlaupum
n Ófriðurinn í Sýrlandi hélt
áfram fram eftir júlímánuði. 85
liðhlaupar úr sýrlenska hern
um flúðu yfir til Tyrklands í
byrjun mánaðarins. Bashar al
Assad forseti reyndi að draga úr
spennunni milli Sýrlands og Tyrk
lands í kjölfar þess að Sýrlendingar
skutu niður tyrkneska orrustu
þotu. Þann 11. júlí ákvað sýrlenski
sendiherrann í Írak að snúa baki
við Assad forseta og sagði af sér í
mótmælaskyni við stefnu forset
ans. Daginn eftir voru 200 manns
drepin í þorpinu Tremseh af
stjórnarhernum. Og þann 18. júlí
féll mágur Assads forseta í sjálfs
vígsárás í Damaskus.
7. júlí
Kosningar í Líbíu
n Líbíumenn gengu til kosninga í
fyrsta skipti eftir að Gaddafi, ein
ræðisherra landsins, var drepinn.
Um var að ræða bráðabirgðaþing
kosningar. Þetta voru fyrstu frjálsu
kosningarnar sem haldnar höfðu
verið í yfir 40 ár. Mahmoud Jibril,
leiðtogi uppreisnarmanna, varð í
kjölfarið bráðabirgðaforsætisráð
herra landsins.
20. júlí
Skotárás á Bat-
man-sýningu
n Tólf létust og 58 særðust þegar
James Holmes hóf skothríð í kvik
myndahúsi í borginni
Aurora í Colorado.
Verið var að sýna
nýjustu Batman
myndina, The Dark
Knight Rises, þegar
ódæðið var framið.
Holmes var handtekinn
stuttu síðar en hann hafði sankað
að sér skotvopnum í nokkurn tíma
áður en hann lét til skarar skríða.
Mikil umræða skapaðist um skot
vopnalöggjöf í Bandaríkjunum í
kjölfarið.
27. júlí
Ólympíuleikarnir
settir í London
n Ólympíuleikarnir voru settir með
pomp og prakt í Lundúnum seint í
júlímánuði að viðstöddum 80 þús
und áhorfendum á Ólympíuleik
vanginum. Setningarathöfnin þótti
heppnast einkar vel en henni var
stýrt af breska leikstjóranum Danny
Boyle. Sundkappinn Michael
Phelps varð sigursælasti þátt
takandi Ólympíuleikanna frá upp
hafi en hann vann til 19 verðlauna
á leikunum.
Ágúst
1.–31. ágúst
Vargöldin hélt
áfram
Kofi Annan, fyrrverandi aðalritari
Sameinuðu þjóðanna, hætti sem
sérstakur erindreki Sameinuðu
þjóðanna og Arababandalagsins
gagnvart Sýrlandi í byrjun mánað
arins. Ástæðan var sú að hann
talaði fyrir daufum eyrum yfir
valda í Sýrlandi. Á sama tíma hélt
ófriðurinn áfram. Riyad Farid Jijab,
forsætisráðherra Sýrlands, og tve
ir aðrir ráðherrar flúðu landið og
lýstu yfir stuðningi við uppreisn
armenn. Um miðjan mánuðinn
ákvað öryggisráð Sameinuðu þjóð
anna að eftirliti á vegum ráðsins
í Sýrlandi yrði hætt og nokkrum
dögum síðar hótaði Barack Obama
Bandaríkjaforseti hernaðaraðgerð
um ef Sýrlendingar hreyfðu við
kjarnorkuvopnum sínum. Þann 26.
ágúst fundust fjöldagrafir í Darayja
í útjaðri Damaskus.
5. ágúst
Skotárás
í sikhahofi
n Sex biðu bana þegar maður hóf
skothríð í sikhahofi í Wisconsin í
Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn,
Wade Michael Page, var skotinn til
bana af lögreglu en hann tengdist
samtökum hvítra kynþáttahatara.
16. ágúst
Assange
fékk hæli
n Stjórnvöld í Ekvador ákváðu að
veita Julian Assange, stofnanda
Wikileaks, pólitískt hæli í landinu.
Í kjölfarið hótuðu bresk stjórnvöld
því að Assange yrði handtekinn ef
hann yfirgæfi sendiráð Ekvador
í Lundúnum. Ástæðan var sú að
sænsk lögregluyfirvöld vildu yfir
heyra hann vegna ásakana um kyn
ferðisbrot.
17. ágúst
Meðlimir Pussy
Riot dæmdir
n Þrjár stúlkur úr rússnesku pönk
sveitinni Pussy Riot voru dæmdar í
tveggja ára fangelsi. Dóminn fengu
þær vegna pönkmessu sem þær
héldu í kapellu rússnesku rétttrún
aðarkirkjunnar í Moskvu í febrú
ar. Stúlkurnar vöktu mikla athygli
og nutu stuðnings fjölda fólks um
allan heim.
29. ágúst
Ótti vegna
fellibyls
n Fellibylurinn Ísak reið yfir suður
strönd Bandaríkjanna, nákvæm
lega sjö árum eftir að fellibylurinn
Katrín olli miklu manntjóni í New
Orleans og nágrenni. Sem betur fer
var Ísak ekki jafn öflugur og Katrín
og olli ekki teljandi tjóni.
September
1.–5. september
Fjöldaflótti í
Sýrlandi
n Stjórnarandstæðingar í Sýrlandi
hertóku herflugstöð í Deir elZo
ur fyrsta dag mánaðarins og námu
á brott vopn og skothylki. Þann 4.
september tilkynntu Sameinuðu
þjóðirnar að yfir 100 þúsund
hefðu flúið Sýrland í ágúst. Þann
5. september sendu yfirvöld í Íran
bandamönnum sínum í Sýrlandi,
stjórnarhernum, vopn og annan
herbúnað.
n Árið einkenndist af áframhaldandi ólgu í Mið-Austurlöndum n Náttúruhamfarir tóku sinn skerf en voru minna áberandi en árin á undan
2012: Ár ólgu og ófriðar
Sprenging Öflug sprengja sprakk í miðborg Beirút í Líbanon þann 19. október síðastliðinn. Tveir létust og fjölmargir særðust, þar á meðal
þessi kona sem naut aðstoðar góðhjartaðs vegfaranda. Mynd ReuteRS
Heimatilbúin sprengja Uppreisnarmenn í
Frelsisher Sýrlands nota teygjubyssu til að skjóta
heimatilbúnum sprengjum í átt að stjórnarher-
mönnum í borginni Aleppo. Mynd ReuteRS