Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 44
8 Völvuspá 2013 28. desember 2012 Áramótablað
maður sem springur út á móti þessu
og vekur alþjóðlega athygli.
n Guðmundur Guðmundsson,
Dagur Sigurðsson og Alfreð Gísla-
son hafa verið að gera
það gott með liðum
sem þeir stýra í
Þýskalandi. Vel-
gengni þeirra
heldur áfram með
þeirri undantekn-
ingu að völvan sér
Alfreð Gíslason snúa
aftur heim til Ísland af einhverjum
ástæðum.
Stelpurnar okkar
n Íslenska kvenna-
landsliðið í
knattspyrnu
keppir á EM í
Svíþjóð næsta
sumar. Liðið
kemur á óvart
með því að sýna
mikla hörku og
keppnisskap og kemst upp úr
riðlinum. Þetta markar nýtt skref
í velgengni íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu á árinu
sem verður nokkuð samfelld – mið-
að við höfðatölu.
n Völvan sér
knattspyrnumann
í svörtum og
hvítum búningi
hampa Íslands-
meistaratitlin-
um í knattspyrnu
karla í sumar. Tvö
lið koma til greina,
FH og KR, en það verða KR-ingar
sem endurheimta titilinn og hafa
önnur eins fagnaðarlæti ekki sést.
n Íslenska karla-
landsliðið lýkur
undankeppninni
fyrir HM í Bras-
ilíu. Hinn roskni
Lagerbeck veldur
vissum vonbrigð-
um þegar honum
tekst ekki að koma
liðinu áfram.
Eiður í stuði
n Eiður Smári Guðjohnsen hef-
ur blásið nýju lífi í feril sinn hjá
Cercle Brugge í Belg-
íu undanfarna
mánuði og stað-
ið sig vel. Hann
mun eiga gott
sumar og sýna
gamla takta á vell-
inum. Völvan sér
hann spila með íslenska
landsliðinu síðla árs.
Gylfi flýgur hátt
n Gylfi Sigurðsson hefur átt erfitt
uppdráttar hjá Tottenham eftir frá-
bært tímabil með Swansea í fyrra.
Hann á eftir að ná sér stórkostlega
á strik og verða einn af umtöluð-
ustu knattspyrnumönnum á Bret-
landseyjum.
Kolbeinn sest á bekk
n Kolbeinn Sigþórsson
hefur glímt við meiðsli
undanfarna mánuði
og lítið sem ekk-
ert spilað með Ajax í
Hollandi. Enginn efast
þó um hæfileika hans.
Völvan sér hann í skugg-
sjánni sitjandi á bekk. Kannski er
bekkurinn í almenningsgarði.
Alfreð slær í gegn
n Alfreð Finnbogason
hefur slegið í gegn
með Hereenveen í
Hollandi og er með-
al markahæstu
manna deildarinn-
ar. Hann fær gott til-
boð frá þekktu félags-
liði í Þýskalandi og fetar
þar í fótspor annars Íslendings sem
gerði garðinn frægan með þessu liði
á árum áður.
Draugagangur
vekur athygli
n Eitt af furðumál-
um nýs árs hlýtur
að teljast þegar
opinber stofnun
flytur út úr hús-
næði sínu vegna
draugagangs. Málið
er allt hið furðuleg-
asta en fær mikla athygli þjóðar-
innar. Í ljós kemur að svokallaður
ærsladraugur (poltergeist) hef-
ur gert starfsmönnum lífið
svo leitt að þeir neituðu
að mæta til vinnu. Yf-
irmenn gripu því til
þessa ráðs og sæta
verulegri gagnrýni
og verða sakaðir
um trú á hindur-
vitni og rugl.
Völvan sér ekki
betur en þessi
ríkisstofnun sé
úti á landi.
Ennþá
meir Geir
n Völvan
sér tvo Geira
stíga fram
í sviðsljósið á nýja árinu. Annar er
Geir Haarde sem öllum að óvör-
um verður ráðinn til starfa hjá RÚV
sem spyrill í sérstakri þáttaröð sem
sett verður á laggirnar. Í ljós kemur
að Hannes Hólmsteinn Gissurarson
er aðstoðarmaður Geirs og hægri
hönd. Viðmælendur þeirra í fyrsta
þættinum eru Baldur Hermannsson
og Hrafn Gunnlaugsson. Þátturinn
vekur mikla athygli og
ekki minni kátínu.
n Hinn Geirinn
er Geir Ólafs-
son söngv-
ari sem kemst
í sviðsljós-
ið þegar einkalíf
hans verður fréttaefni með nokk-
uð óvenjulegum hætti. Það verður
þegar persóna sem telur Geir hafa
svikið sig í tryggðum gerir opinber
samskipti þeirra og birtir tölvupósta
og twitter-skeyti sem sýna söngvar-
ann í nýju ljósi.
Gamli góði Villi eirir engu
n Eirarmál-
ið kemst aftur
í fréttir á nýju
ári þegar ljóst
verður að fjár-
málum hjúkr-
unarheimilis-
ins verður ekki
bjargað. Völvan sér
Vilhjálm Vilhjálmsson – gamla góða
Villa – öskuvondan á sjónvarps-
skjánum. Þar er Villi ótrúlega opin-
skár um allskyns baktjaldamakk og
spillingu og eirir engu. Hann bendl-
ar fyrrum vini og samherja við ýmis
vafasöm tilþrif í stjórn Eirar og völv-
an sér Magnús L. Sveinsson, Svein
Magnússon son hans, og fleiri mjög
vandræðalega á svip vegna þessa
máls. Alfreð Þorsteinsson bregður
einnig fyrir á hlaupum í bakgrunni.
Í kjölfarið birtast sérlega opin-
ská viðtöl við Villa um feril hans í
stjórnmálum og við þau brot sem
þar birtast fer hrollur um marga
fyrrum samstarfsmenn hans. Völvan
sér Villa hverfa af sjónarsviðinu eftir
þetta og kveðst hann ætla að skrifa
ævisögu sína. Setur þá ugg að mörg-
um því ljóst er að Villi á langa hnífa
í sinni ermi.
Logi Bergmann
berst við fortíð sína
n Völvan sér Loga
Bergmann í vand-
ræðalegri stöðu
á nýja árinu. Eitt
fórnarlamb anna
í bók sem Logi
skrifaði um hrekki
stígur fram og seg-
ir sína hlið á málinu
og sú er ekki eins fyndin og útgáfa
Loga. Í kjölfarið verður bók Loga –
kölluð Eineltishandbókin – tekin
úr sölu og hann á í mesta basli við
að hreinsa ímynd sína sem hvers
manns hugljúfi í kjölfarið.
Fortíðin finnur Jafet
n Jafet Ólafsson fyrrverandi verð-
bréfamógúll, sjónvarpsstjóri og
eigandi Verðbréfastofunnar kemst
í fréttir á nýju ári með heldur nei-
kvæðum formerkjum. Hulunni
verður svipt af skuggalegu jarða-
braski og veðsetningum fyrir
austan fjall þar sem
Jafet og fé-
lagi
hans Finnur Ingólfsson héldu í
þræðina bakvið tjöldin. Völvan
sér þessa umfjöllun tengjast frétt-
um af nýjum veitingastað í miðbæ
Reykjavíkur þar sem þeir félagar
vilja festa fé eins og fleiri fyrrum
hrunvíkingar.
Siðfræðingur í bobba
n Völvan sér Stefán
Einar Stefánsson
siðfræðing og
formann VR
í afar vand-
ræðaleg-
um málum á
nýju ári. Harla
vafasöm sam-
skipti hans við nem-
anda í Háskólanum í Reykjavík þar
sem Stefán fékkst við kennslu, koma
fram í dagsljósið. Völvan sér stól
formannsins verða töluvert valtan í
framhaldinu og hann berst sem ljón
fyrir sínu lífi í embætti.
Viltu nammi væna?
n Völvan sér
nýtt mál tengt
vændiskaupum
og blíðubraski
fljóta upp á yf-
irborðið á nýju
ári. Þar verður
tekist á um þan-
þol nýrra laga um
blíðubrask af ýmsu
tagi og verða átök um stöðu kaup-
enda og seljenda. Eins og margir
vita gera nýlega samþykkt lög kaup á
vændi refsiverð og þess vegna verð-
ur eðlilega sterkt kastljós á þeim
sem kærðir verða fyrir kaup og hart
deilt um nafnleynd og opinberar
upplýsingar í þessu máli.
Fiskur um hrygg Samherja
n Völvan sér nokkrar breytingar á
eignarhaldi íslenskra fyrirtækja á
nýju ári. Sjávarútvegsfyrirtæki halda
áfram að renna
saman, selja
kvóta og stór-
ir eignarhlut-
ar skipta um
eigendur.
Dótturfyrirtækj-
um Samherja og
tengdum félög-
um vex enn fiskur um
hrygg og völd og ítök Þorsteins Más
Baldvinssonar aukast enn frá því
sem nú er og þykir mörgum nóg um.
Völvan sér Þorstein Má ofsareið-
an í ræðustól þegar í ljós kemur að
ný ríkisstjórn hyggst ekki breyta
áformum fyrri stjórnar um inn-
heimtu veiðileyfagjalds þrátt fyr-
ir að Sjálfstæðismenn sitji þar við
völd.
Völvan sér mikið umtal um
áhrif kvótakerfisins á byggðaþró-
un í þessu samhengi og meðalstór
útgerðarmaður á Snæfellsnesi sem
selur allan kvóta á brott neyðist til
þess að flytja úr plássinu um tíma
vegna hótana.
Jakob Frímann
M. Davíðsson
n Völvan sér Jakob Frímann í frétt-
um þegar vís-
indalega verð-
ur sannað
að hann
er afkom-
andi Davíðs
Stefánsson-
ar skálds frá
Fagraskógi
sem mun hafa
verið afi hans í móðurætt. Mun
þá margur segja: hvað sagði ég
ekki.