Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2011, Side 29
Viðtal | 29Helgarblað 14.–16. október 2011
Sakbitinn skuldari
árið 1994. Við vorum sundur í rúmt ár
en tókum saman aftur á breyttum for-
sendum. Okkur fannst við vera orðin
það þroskuð að við gætum hætt öllu
djammi og það hefur gengið ljómandi
vel hjá okkur síðan,“ segir Ellen einlæg.
Berst fyrir hönd unga fólksins
Fjölskyldan er mjög náin og eins og
áður sagði búa þau öll undir sama
þaki og barnabörnin fjögur líka. Þrátt
fyrir mikla nálægð kemur þeim öllum
vel saman. „Þetta hefur bara gengið
ótrúlega vel hjá okkur. Þær virða al-
veg okkar einkalíf líka og það er alls
ekki þannig að barnabörnin séu alltaf
hjá okkur. Ég þarf oft að biðja um að
fá að passa þau,“ segir Ellen hlæjandi.
Dæturnar Sigríður, Elísabet og Elín
hafa erft sönghæfileika móður sinnar
og þær hafa sungið mikið saman. „Við
fórum í sumar í söngferð til Bandaríkj-
anna. Þær buðu mér í afmælisgjöf. Það
var rosalega gaman og ég er alveg ótrú-
lega stolt af því sem þær eru að gera.
Þær eru núna þrjár með band og flytja
frumsamið efni og það er nóg að gera
hjá þeim. Þær eru til dæmis að spila á
nokkrum stöðum um helgina í sam-
bandi við Airwaves,“ segir Ellen stolt
af sínum.
Baráttu sína við bankana og stjórn-
völd segist hún einmitt ekki hvað síst
vera að há fyrir börnin sín og unga
fólkið í landinu.
„Þetta er ólíðandi ástand. Ég er að
gera þetta fyrir hönd unga fólksins,
kynslóðanna sem eiga eftir að taka
við. Kannski er auðveldara fyrir mig að
gera þetta því ég er ekki með ung börn
en mér finnst ég verða að gera þetta
og það hvetur mann að þurfa ekki að
horfa upp á ungt fólk lenda í þessu. Að
vera berjast í bökkum og eiga ekki fyr-
ir einhverjum fáránlegum lánum sem
bankarnir hafa ákveðið að eigi að vera
svona. Það er kannski kominn tími til
að við fáum að ákveða eitthvað með
fjármálastofnunum. Þetta þurfi ekki að
vera einhliða, allir þurfi að vera sáttir.
Fluttu til að spara
Ellen þekkir skuldafangelsi af eigin
raun. Árið 2006 ákvað fjölskylda henn-
ar að flytja úr 90 fermetra íbúð í Graf-
arvogi yfir í aðeins stærri hæð í Hlíð-
unum. Staðsetningin hentaði þeim
betur og þau sáu fram á að geta sparað
í leiðinni. „Þegar við keyptum hérna
töldum við okkur vera að fjárfesta. Við
vorum í rauninni ekki að breyta miklu
nema aðallega hvað varðar umhverfi.
Við töldum okkur getað sparað með
þessu. Við þyrftum bara einn bíl í stað
tveggja áður. Við vinnum mest hérna í
kringum bæinn og svo er bílskúr sem
við gátum nýtt sem vinnuaðstöðu.
Nokkuð sem við höfðum áður verið að
leigja. Þetta hentaði okkur mjög vel og
líka stráknum okkar sem var í Ísaks-
skóla þá. Hann er ofvirkur og þurfti að
vera í litlu og vernduðu umhverfi og
það var ekki boðið upp á það annars
staðar fyrir hann.“
Eftir hrun breyttist hins vegar allt.
Húsnæðislánið hækkaði upp úr öllu
valdi og bílalánið sem tekið var á er-
lendu gengi varð himinhátt. „Ég er
með svona stökkbreytt lán. Það er
verðtryggt lán á þessari íbúð sem ég
bý í,“ segir Ellen og horfir í kringum
sig. Hún er komin með nóg af ástand-
inu. Svo annt er henni um málefnið að
hún stofnaði síðuna Hættum að borga
á Facebook þar sem hún hvetur fólk til
þess hreinlega að hætta að borga. Við-
tökurnar hafa verið góðar. „Við þurfum
að byrja einhvers staðar. Stækka þetta
svo upp. Ég held að fólki eigi eftir að
missa vitið ef við förum ekki að snúa
þessu ferli við.“
Sama um veraldlega hluti
Hún segir fólk ekki hafa neinu að tapa
og er ekki hrædd við þær afleiðingar
sem kunna að verða ef hún hættir
að standa skil á lánunum. „Nei, ég er
miklu hræddari við hitt, hvað muni
gerast ef þetta heldur svona áfram.
Þetta fjármálakerfi er byggt upp á kap-
ítalisma og það er greinilegt að það er
enginn pólitískur vilji til að snúa þessu
ferli við. Valdið er bara hjá fólkinu. Það
er það sem er að gerast út um allan
heim núna. Fólk er að rísa upp á frið-
samlegan hátt og það er kannski það
sem er að fara gerast núna í Frakk-
landi, Bandaríkjunum, Spáni, Íslandi
og í miklu fleiri löndum. Fólkið er búið
að fá nóg.“
Ellen er sama um veraldlega hluti.
„Mér er í raun alveg sama. Þetta eru
bara einhverjir hlutir og ég er ekkert
rosalega spennt fyrir því að eiga mik-
ið en það væri gott ef það væri búið að
hagræða húsnæðiskerfinu á Íslandi
því það er til svo mikið af öllu. Það er
rosalega mikið af tómu húsnæði. Ég er
svo hissa á því að stjórnmálamenn hafi
horft framhjá þessu. Það eru marg-
ir sem hafa þurft að yfirgefa húsin sín
eftir að bankarnir eða íbúðalánasjóður
tóku þau þær og íbúðir standa tómar
en samt er fólk á götunni. Það er eitt-
hvað mikið að í þessu kerfi.“
Foreldrarnir hafa ekki
tíma fyrir börnin
Ellen segist hafa verið búin að sjá fyrir
hrun að eitthvað væri ekki eins og það
átti að vera þó hún hafi ekki kveikt á því
nákvæmlega hvað væri rangt. „Ég man
þegar strákurinn minn byrjaði í skóla
2003, þá 6 ára, þá átti hann að byrja í
Borgarskóla sem var á bak við þar sem
við bjuggum. Þar voru litlir kofar not-
aðir við skólann því það voru ekki til
nægir peningar til að byggja skólann
nógu hratt. En á sama tíma hafði ný
Bónusverslun nýlega risið í Spöng-
inni og Hagkaupsverslun kom nokkr-
um vikum seinna og bílastæði og allt.
Ég man alltaf að litli strákurinn minn
sagði, af hverju fáum við ekki þessa
menn til að byggja skólann okkar?
Auðvitað vissi maður að það var eitt-
hvað mikið að. Þarna var þetta byrj-
að. Peningar útrásarvíkinganna farnir
að segja sitt. Þetta byrjaði mjög fallega
örugglega, hugsunin á bak við Bónus
og allt það en svo bara, því miður, tók
græðgin völdin.“
Henni finnst áherslur í samfélaginu
vera kolrangar. „Horfum bara á það að
á Íslandi er mesta rítalínnotkun barna
í öllum heiminum. Og hvað segir það
manni? Jú, börnin þurfa að vera öguð
og passa inn í einhvern kassa í skólan-
um og foreldrarnir hafa aldrei tíma til
þess að vera með þeim vegna þess að
þeir þurfa að vinna svo mikið til þess að
ná endum saman. Ef þetta væri þann-
ig að fólk gæti unnið aðeins minna
og það væru jafnari laun þá hefði fólk
meiri tíma til þess að hugsa um börn-
in sín. Það er ekki eins og fólk vilji
ekki hugsa um börnin sín, það hefur
bara ekki tækifæri til þess vegna þess
að neyslusamfélagið er orðið svo „ag-
ressívt.“ Þetta sýnir að það er eitthvað
mikið að,“ segir Ellen en málefnið er
henni afar hugleikið enda er hún sjálf
foreldri ofvirks barns. „Ég á sjálf strák
sem er ofvirkur og með athyglisbrest.
Það var mjög erfitt að fá stuðning fyrir
hann en ég var bara svo heppin að ég
ræð mér sjálf í vinnunni minni þann-
ig að ég gat fylgt honum í skólann og
verið með honum. Ellen hefur sungið
á fjölda tónleika til styrktar nýju hús-
næði fyrir Barna- og unglingageðdeild
Landspítalans. „Ég er búin að syngja
í tíu ár til að safna fyrir nýju húsnæði
fyrir BUGL og það er loksins komið
núna. Nú eru áttatíu börn á biðlista
um að komast þar inn sem er auðvitað
alltof mikið meðan bankarnir hagnast
og hagnast. Það er öllu svo misskipt í
þessu samfélagi,“ segir hún alvarleg.
Yfirmaður SP sagði henni
að taka strætó
Í haust ákváðu þau Eyþór að taka ráðin
í sínar eigi hendur og hætta að borga
af lánunum, bæði húsnæðisláninu og
bílaláninu. Bílalánið var gengistengt,
tekið hjá SP Fjármögnun á sínum tíma.
„Við vorum ekki nógu sátt við það
hvernig þeir túlkuðu lækkunina á lán-
inu. Við erum í rétti því til þess að þeir
geti tekið bílinn þá verður að höfða
dómsmál, þeir eru samt alltaf að reyna
að taka bílinn. Ég hafði samband við
þá til að reyna að semja við þá. Þá sagði
yfirmaður SP við mig að ég ætti að taka
strætó, ég ætti ekki að vera á bíl ef ég
hefði ekki efni á því að borga af bíln-
um mínum. Svo sagði hann við mig að
þeir væru ekki félagsmálastofnun og
endaði svo með einhverju því fárán-
legasta sem ég hef heyrt, sagði að ef
Júdas hefði fjárfest með peningunum
sínum þá væri fjölskylda hans sú rík-
asta í heimi í dag. Svona hugsar þetta
fólk.“
Ellen segist þó finna til ákveðinn-
ar sektarkenndar. „Ég viðurkenni al-
veg að ég tók þátt í þessari vitleysu á
vissu tímabili. Það er búið að búa til
úr heiminum einhvers konar neyslu-
heim og það er búið að gera okkur öll
að svona fíkniefnaneytendum í neysl-
unni, við verðum alltaf að fá meira og
meira. Þannig er kapítalisminn. Það
er alveg sama hvert þú horfir, það er
alltaf verið að segja þér að þú verð-
ir að fá meira, þú verðir að gera þetta
og þú verðir að fá hitt. Meira, meira og
meira. Það er bara alltof mikið af öllu
og með þessu erum við að eyðileggja
okkur sjálf og jörðina. Ég man rétt fyr-
ir hrunið þá fékk ég kort frá B&L um
að ég ætti að skipta um bíl. Ég keypti
minn 2005. Það voru svo hagstæð er-
lend lán í boði að ég yrði að skipta um,“
segir hún hlæjandi.
Sakbitinn skuldari
„Ég er búin að vera svona sakbit-
inn skuldari. Ég hef verið að hugsa
af hverju ég sé komin í þessa stöðu,
þetta var allt í lagi eins og þetta var.
Við bjuggum í lítilli blokkaríbúð og ég
skuldaði ekki neitt svo allt í einu var ég
farin að taka þátt í þessu með því að
flytja í annað húsnæði sem reyndar
hentaði okkur vel. Ég tók lán til að taka
í gegn, mjög lítið lán og við reyndum
að gera þetta allt sjálf. Samt á einhvern
ótrúlegan hátt er maður sakbitinn.
Eins og maður hafi gert eitthvað rangt
þegar það er ekki þannig.“
Hún segist vera orðin langþreytt á
ástandinu og nú sé kominn tími til að
rísa upp. Það ætlar samstöðuhópur
sem kallar sig 15. október að gera,
einmitt þann 15. október. „Við fólk-
ið í landinu, bara venjulegir borgarar
sem hafa fengið nóg, ætlum að hittast
á götum úti og hefja þær hnattrænu
breytingar sem við viljum sjá. Þetta er
að gerast út um allan heim. Gjallar-
horn verður látið ganga manna á milli
og margir geta tjáð sig. Við munum
mótmæla friðsamlega, ræða saman
og skipuleggja okkur þar til við náum
þeim fram. Það eru engin ein samtök
sem standa að þessu heldur bara fólk-
ið í landinu. Við höfum fengið nóg.
Þetta er kúgun, við viljum lýðræði og
frelsi. Við viljum breyta þessu hagkerfi
því það er raunverulega verið að kúga
okkur. Það er kominn tími til að sam-
einast og tími fyrir þá að hlusta.“
Þóra Einarsdóttir · Finnur Bjarnason · Garðar thór CortEs
ÁGúst ólaFsson · siGrún hjÁlmtýsdóttir · jóhann smÁri sævarsson
hulda Björk Garðarsdóttir · auður Gunnarsdóttir · siGríður ósk kristjÁnsdóttir
snorri Wium · valGErður Guðnadóttir · kolBEinn jón kEtilsson · viðar Gunnarsson
kór oG hljómsvEit íslEnsku ópErunnar
lýsinG: pÁll raGnarsson · BrúðuGErð: BErnd oGrodnik
BúninGar: Filippía i. Elísdóttir · lEikmynd: axEl hallkEll jóhannEsson
lEikstjóri: ÁGústa skúladóttir · hljómsvEitarstjóri: daníEl Bjarnason
FRUMSÝNT Í HÖRPU 22. OKTÓBER 2011 – örfá sæti Sunnudaginn 13. nóvember kl. 20 – aUKaSÝNiNg
Laugardaginn 29. október kl. 20 – uppselt Laugardaginn 19. nóvember kl. 20 – örfá sæti
Laugardaginn 5. nóvember kl. 20 – uppselt Sunnudaginn 20. nóvember kl. 16 – örfá sæti
Laugardaginn 12. nóvember kl. 20 – uppselt Laugardaginn 25. nóvember kl. 20 – uppselt
WAMozart
F
a
B
r
i k
a
n
Á móti
kerfinu
Ellen berst
við kerfið og
vill kapítalis-
mann burt.
Baráttuna
háir hún ekki
hvað síst
fyrir börnin
sín og þær
kynslóðir
sem eiga
eftir að vaxa
úr grasi.
„Þá sagði yfirmaður
SP við mig að ég
ætti að taka strætó, ég
ætti ekki að vera á bíl ef
ég hefði ekki efni á því að
borga af bílnum mínum.