Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Side 48
48 | Lífsstíll 2.–4. september 2011 Helgarblað
Þrjár vörur sem gera kraftaverk. Eat Control,
Ultra Loss Shake og Active fat burner
— Þessi pakki hjálpar þér að ná undraverðum
árangri á aðeins 21 dögum.
Fæst í Sportlíf í Glæsibæ
og á www.sportlif.is
Pink it pakkatilboð
d
v
e
h
f.
2
01
1
aðeins fyrir konur
Læknir
mælir með
maga-
minnkun
Læknirinn dr. Oz, sem er
þekktur úr sjónvarpi í Banda-
ríkjunum, er sannfærður um
að okkur takist að ná tökum
á offituvandanum á næstu
áratugum. „Það er mun auð-
veldara að lækna offitu en
krabbamein,“ segir stjörnu-
læknirinn sem vill sjá fleiri of
feita einstaklinga fara í maga-
minnkunaraðgerð. „Við fram-
kvæmum líklega aðeins 1%
af þeim magaminnkunarað-
gerðum sem við þyrftum að
framkvæma. Ef þú ert 50 ára
og 50 kílóum of þungur hef-
urðu sömu lífslíkur og krabba-
meinssjúklingur. Myndirðu
láta skera krabbann í burtu?
Auðvitað! Ef þér tekst ekki að
léttast skaltu tala við skurð-
lækni,“ segir Oz, en bætir við
að auðvitað þurfi að skoða
hvert tilfelli fyrir sig.
Góðir grannar
bæta heilsuna
Að sögn vísindamanna við
háskólann í Missouri getum
við bætt heilsuna með því að
treysta nágrönnunum. Eileen
Bjornstrom, prófessor í félags-
fræði, rannsakaði fjölda fjöl-
skyldna í Los Angeles. Í ljós
kom að eftir því sem fólk er
ríkara því síður treystir það ná-
grönnum sínum. Einnig kom
í ljós að þeir sem treystu ná-
grönnum sínum best mældust
heilsuhraustari en þeir sem
tortryggja nágrannann. Einnig
þegar breytur eins og mennt-
un, tekjur og aldur voru teknar
með í reikninginn.
Heppin hertogaynja
K
ate Middleton, her-
togaynjan af Cam-
bridge, og systir henn-
ar Pippa eru á meðal
þeirra útvöldu sem
hafa fengið nýja „töfra“-and-
litskremið frá Lancome sent
heim í pósti. Eftirspurnin eftir
kreminu er svo mikil að nú eru
þúsundir óþolinmóðra við-
skiptavina komnir á biðlista.
Önnur bresk stjarna sem held-
ur þarf ekki að bíða í röð og
berjast um þær krukkur sem
berast í verslanir er leikkonan
unga Emma Watson enda er
leikkonan andlit Lancome.
Talsmaður Lancome hefur
staðfest að Kate og Pippa hafi
fengið kremið þar sem þær
séu hluti af „tryggustu við-
skiptavinum fyrirtækisins“ en
stutt er síðan Kate sást end-
urnýja Lancome-birgðirnar í
verslunarferð rétt fyrir brúð-
kaupið.
Kremið inniheldur LR 2412
sem í daglegu tali nefnist „feg-
urðarsameindin“ en mólekúlið
er talið svo öflugt að með til-
komu þess muni þörfin fyrir
bótox-sprautur snarminnka.
Samkvæmt lítilli könnun Lan-
come hafa tryggir viðskiptavin-
ir fyrirtækisins það mikla trú á
kreminu að önnur hver kona,
sem ætlaði að láta flikka upp
á sig með lýtaaðgerð, hefur nú
ákveðið að bíða og sjá til þar til
hún hefur prófað Visionnaire.
n Kate og Pippa fengu nýjasta krem Lancome sent heim
n Prevention.com hefur valið þá sjónvarpsþætti sem hafa hvað jákvæðust áhrif á lífið
Sjónvarp jákvætt fyrir heilsuna
H
eilsuvefsíðan prevent-
ion.com hefur val-
ið þá sjónvarpsþætti
sem hafa hvað jákvæð-
ust áhrif á líf okkar. Talsmenn
síðunnar tilnefndu þætti, allt
frá raunveruleikaþáttum sem
snúast um að koma þátttak-
endum í fantagott form, yfir
í dramatískar þáttaraðir sem
fjalla um flókin læknisfræði-
leg hugtök og fyndna grínþætti
sem stinga að okkur sniðugum
ráðum inn á milli hláturskasta.
Sigurvegarinn er þátturinn
Hot in Cleveland. Aðalstjarn-
an, Valerie Bertinelli, hefur
grennst mikið upp á síðkastið
auk þess sem hin eldhressa 89
ára Betty White stelur reglu-
lega senunni. Vinsæli þáttur-
inn Grey’s Anatomy var val-
inn sem besta læknadramað
en þátturinn þykir taka á erfið-
um læknisfræðilegum vanda-
málum á raunsæjan hátt.
Þátturinn Parenthood hlaut
verðlaun fyrir góða umfjöll-
un um einhverfu en í þætt-
inum takast Adam og Krist-
ina Braverman á við lífið eftir
að hafa fengið að vita að son-
ur þeirra sé með einhverfu.
Lögguþátturinn Rizzoli and
Isles fékk verðlaun fyrir snið-
ugheit en í þættinum er leyni-
löggan Rizzoli alltaf með góð
heilsuráð á takteinunum sem
hún skýtur að samstarfsfólki
sínu en karakterinn barðist við
offitu á sínum yngri árum. All-
ir þessir þættir eru sýndir í ís-
lensku sjónvarpi svo nú er um
að gera að byrja að horfa og
læra.
Hinar útvöldu Syst-
urnar þurfa ekki að bíða
í röð eins og við hin.
Töfrakremið Kremið
er talið virka svo vel að
aðgerðir eins og bótox-
sprautur muni fljótlega
heyra sögunni til.
Grey’s Anatomy Þátturinn þykir
hafa jákvæð áhrif á heilsu fólks.