Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 2
Geir tilkynnir bullur
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ,
hefur sent inn tilkynningu til UEFA,
Knattspyrnusambands Evrópu, vegna
hegðunar stuðningsmanna Manchester
City á leik liðsins í meistaradeild Evrópu
í gærkvöld. Stuðningsmennirnir bauluðu
þegar meistaradeildarlagið hljómaði.
Tilkynning Geirs hefur vakið mikla athygli
– um hana hefur verið meðal annars
verið fjallað á vef Telegraph, Daily Mail,
Mirror og Independent. Í tilkynningu
Geirs til UEFA kemur fram að stuðnings-
menn City-liðsins hafi baulað þegar
svokallað meistaradeildarlag hljómaði.
Lagið er útsetning Tony Britten á verki
Handel, Presturinn Zadok. Forsvars-
menn City hafa ekki tjáð sig um málið
en fastlega er búist við að liðið verji sína
menn. RÚV greindi frá.
Eins og komið hefur fram í fréttum
reyndist viðtal Fréttatímans við rit-
höfundinn Evu Magnúsdóttur í síð-
asta tölublaði vera byggt á blekkingu
og biður Fréttatíminn lesendur sína
velvirðingar á því. Eva Magnúsdóttir
er dulnefni og þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir hefur ekki tekist að fá fram
hvaða höfundur leynist á bak við það.
Útgefandi Forlagsins, Jóhann Páll
Valdimarsson, hefur beðist afsökunar
á blekkingunni og sagði þá meðal
annars: „Það er mér bæði ljúft og
skylt að biðja blaðið og lesendur þess
velvirðingar. Þetta var sannarlega
ekki illa meint en vissulega mjög van-
hugsað að upplýsa ekki blaðamann-
inn um að um dulnefni væri að ræða.
Það var alfarið ákvörðun mín og raun-
verulegs höfundar að standa svona að
málum og á því biðst ég afsökunar.“
Upp hefur sprottið lífleg umræða
um það hver hinn raunverulegi höf-
undur sé og á Smartlandinu á mbl.is
var fullyrt að það væri rithöfundurinn
Steinar Bragi. Hann ber það þó af sér.
„Ég er ekki Eva. Þótt Marta Smarta
sé eflaust sæmilega læs er ég ekki
Eva. Þótt sjálfur páfinn lýsti Evu á
hendur mér myndi það engu breyta,
ég er ekki Eva. Hins vegar hef ég
skrifað bækur undir höfundarnafn-
inu Steinunn Sigurðardóttir í mörg
ár!“ segir hann í svari við fyrirspurn
Fréttatímans.
Jóhann Páll segist bundinn trúnaði
við höfundinn og geti því ekki ljóstr-
að upp hver hann sé, en hefur þó ekki
mótmælt þeirri fullyrðingu að Steinar
Bragi leynist á bak við dulnefnið.
Í Kiljunni á RÚV var því velt upp á
miðvikudagskvöldið að bókin væri
samstarf fleiri en eins höfundar, en
það hefur hvorki verið staðfest né því
neitað. - fb
Bókmenntir Steinar Bragi Sver evu af Sér
„Ég er ekki Eva“
2 fréttir Helgin 23.-25. október 2015
„Þótt sjálfur
páfinn lýsti Evu
á hendur mér
myndi það engu
breyta, ég er
ekki Eva,“ segir
Steinar Bragi.
Sorgardagur í Svíþjóð
Tveir létust í árás sem gerð var í
Kronan-skólanum í Trollhättan í Svíþjóð
í gærmorgun, fimmtudag, kennari og
nemandi. Tveir eru þungt haldnir eftir
árásina, en árásarmaðurinn var skotinn
af lögreglu og lést af sárum sínum. Að
sögn lögreglu var árásarmaðurinn 21 árs,
búsettur í Trollhättan. Hann kom í skólann
vopnaður sverði með grímu fyrir andliti og
réðst á kennara og nemendur. Húsleit er
nú gerð á heimili hans. Stefan Löfven, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, fór til Trollhättan
til að kynna sér aðstæður. Hann sagði
eftir árásina að þetta væri sorgardagur
og sagðist hugsa til fórnarlambanna og
ættingja þeirra.
6,5 milljónir Toyotabíla
innkallaður
Bílarisinn Toyota kallar nú inn einar 6,5
milljónir bifreiða um heim allan eftir að ör-
yggisvandamál kom upp í gluggaopnurum.
Var þá hætta á að eldur kviknaði. Þetta er í
fjórða sinn sem bílframleiðandinn japanski
hefur þurft að kalla inn bifreiðar vegna
sama gluggavanda. Bilunin felst í því að
hluti tækjabúnaðarins sem opnar og lokar
gluggum bifreiðanna var ekki nægilega
olíuborinn, sem gæti skapað núning og
ofhitnað, og mögulega kveikt í út frá sér.
Slæm staða Century
Aluminium
Í nýrri greiningu vefsíðunnar Seeking
Alpha er Century Aluminum, móðurfyrir-
tæki Norðuráls, spáð miklum erfiðleikum
og í versta falli gjaldþroti. Seeking Alpha
dregur þessa ályktun út frá því að gróði
fyrirtækisins frá 2014 inn í 2015 hafi verið
vegna sérstakrar Midwest álagningar,
sem á að hafa hækkað óvenjulega mikið
í þetta eina skipti og sé ekki breyta til
langs tíma sem má reiða sig á í verðmati á
fyrirtækinu.
Icelandair í forgangi
Fyrirkomulag Isavia á úthlutun afgreiðslu-
tíma fyrir flugfélög á Keflavíkurflugvelli
hindrar samkeppni og Icelandair nýtur
samkeppnisforskots hjá Isavia. Þetta
kemur fram í nýju áliti Samkeppniseftir-
litsins, sem vill að innanríkisráðuneytið
og Samgöngustofa grípi til aðgerða vegna
þessa. Almenningur hafi hag af því að virk
samkeppni verði sett í forgang.
u m síðustu helgi leituðu tvær mann-eskjur til okkar eftir að hafa verið byrlað lyf í drykk á skemmtistað,“
segir Anna Bentína Hermansen, starfsmaður
hjá Stígamótum. „Önnur þeirra hafði verið
á skemmtistað í Reykjavík þar sem hún datt
niður, missti allan mátt og varð alveg stjörf.
Hún hafði ekki drukkið mikið áður en þetta
átti sér stað og sem betur fer var kærastinn
með henni þegar þetta gerðist því hann
hringdi í neyðarlínuna um leið,“ segir Anna
Bentína sem blöskrar viðbrögð neyðarlínunn-
ar. „Kærastanum var sagt að fara bara með
stúlkuna heim og láta hana æla. Mér finnst
mjög alvarlegt að fólk fái svona viðbrögð því
hvað sem er hefði getað verið að hrjá stúlk-
una, jafnvel heilablóðfall.“
Mikilvægt að tilkynna glæpinn
Anna Bentína furðar sig á viðbrögðum neyð-
arlínunnar við lyfjabyrlan og reyndar líka á
móttöku hjúkrunarfræðings á bráðamóttöku
Landspítalans. „Önnur stúlka sem kom til
okkar hafði farið á bráðamóttökuna eftir að
hafa verið byrlað lyf á skemmtistað þar sem
hún talaði við hjúkrunarfræðing. Hjúkrunar-
fræðingurinn sagði stúlkunni að þar sem
ekki hefði verið um nauðgun að ræða að þá
yrði ekki tekin skimun á blóðsýni. Það finnst
mér líka mjög alvarlegt því þetta er ekkert
nema nauðgunartilraun.“
„Hlutverk okkar á Stígamótum er að segja
frá reynslu fólks til að upplýsa samfélagið
og reyna að hafa áhrif til batnaðar. Okkur
finnst þetta mjög alvarlegt mál,“ segir Anna
Bentína. Hún segir erfitt að meta það hvort
nauðgunartilraunir á borð við þessar séu
að aukast. „Tvær manneskjur hafi komið til
Stígamóta þessa einu helgi en líklegast séu
þær sem hafi lent í þessu miklu fleiri. Þegar
við skimum eftir þessu og gerum komu-
skýrslu við fólk þá er ein spurningin; „hvers
konar ofbeldi hefur þú orðið fyrir“ og þá
heyrir þetta undir nauðgunartilraun. Við
þurfum í raun að bæta þetta kerfi og setja
nýjan flokk inn í komuskýrsluna því við erum
að heyra meira af þessu,“ segir Anna Bentína
sem ítrekar mikilvægi þess að tilkynna glæp-
inn til lögreglu.
Bráðamóttaka sér ekki aukningu
„Við sjáum ekki aukningu í þessum málum
hjá okkur,“ segir Guðný Helga Herberts-
dóttir, deildarstjóri Samskiptadeildar Land-
spítalans. „Ef grunsemdir eru fyrir því að ein-
staklingi hafi verið byrlað lyf og hann kemur
á neyðarmóttöku innan 2 sólarhringa eru
teknar blóðprufur en lyfin eru fljót að hverfa
úr blóðinu. Blóðið er svo skimað. Einstakling-
ar sem leita til neyðarmóttöku ráða því sjálfir
hvort haft er samband við lögreglu. Í þeim
tilvikum sem einstaklingar eru undir 18 ára
aldri er það gert í samráði við forráðarmenn.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Stígamót nauðgunarlyf á SkemmtiStöðum í reykjavík
Tveimur konum
byrlað lyf í drykk
Tvær konur leituðu til Stígamóta síðastliðna helgi eftir að hafa verið byrlað lyf í drykk á
skemmtistöðum í Reykjavík. Stígamót furða sig á viðbrögðum neyðarmóttöku sem sögðu
viðkomandi „að fara heim og æla“. Stígamót ítreka mikilvægi þess að tilkynna lögreglu um
lyfjabyrlan sem flokkist undir tilraun til nauðgunar. Starfsmenn bráðamóttöku sjá ekki aukningu
á þessum málum.
Tvær konur leituðu til Stígamóta um liðna helgi eftir að hafa verið byrlað lyf í drykk á skemmtistað.
... sem bet-
ur fer var
kærastinn
með henni
þegar þetta
gerðist
því hann
hringdi í
neyðar-
línuna um
leið.