Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 10
GRÍPUR MEIRA EN ATHYGLINA HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is Verð frá aðeins 2.290.000 kr. Þér á eftir að líka vel við ŠKODA Fabia. Glæsileg hönnunin nær niður í minnstu smáatriði og gerir aksturinn skemmtilegri hvert sem þú ferð. Það er engin tilviljun að ŠKODA Fabia skyldi vera valinn bíll ársins af WhatCar? og hljóta Red Dot hönnunarverðlaunin 2015. Komdu og prófaðu nýjan ŠKODA Fabia. Hlökkum til að sjá þig. Fabia – nýi verðlaunagripurinn frá ŠKODA Ellefu hundruð síðna stríðsárabók Páls Baldvins Páll Baldvin Baldvinsson hefur varið síðustu þremur árum í að skrifa sögu stríðsáranna á Íslandi. Hann lagði upp með að bókin yrði 500 síður en hún tvöfaldaðist að umfangi og vel það enda um- fjöllunarefnin allt frá barnaverndarmálum til svínaræktar – og allt þar á milli. É g byrjaði að vinna að þessu fyrir rúmum þremur árum en þetta er gömul hugmynd sem ég hafði rætt við Jóhann Pál fyrir löngu, að búa til stríðsára- sögu,“ segir Páll Baldvin Baldvins- son, bókmenntafræðingur og lands- kunnur gagnrýnandi. Páll Baldvin hefur látið lítið fyrir sér fara síðan hann hætti sem bóka- gagnrýnandi hér á Fréttatímanum fyrir þremur árum. Hann hefur set- ið við skriftir og í næsta mánuði er afrakstur vinnu hans væntanlegur í verslanir; ellefu hundruð blaðsíðna stórvirki um stríðsárin á Íslandi. Bókin nefnist Stríðsárin 1938-1945. Vildi stækka sviðið „Það hefur mikið verið skrifað um þennan tíma en hugmyndin var að reyna að finna einhvern víðari fókus en verið hefur í þeim ritum sem hafa komið út – eftir Gunnar M. Magnúss, Tómas Þór Tómasson og Þór Whitehead. Ég vildi stækka aðeins sviðið og ekki fjalla bara um tímann frá hernámi að stríðslokum. Þess vegna nær bókin frá ársbyrjun 1938 fram til áramóta 1945,“ segir Páll. „Ástæðan er fyrst og fremst sú að þá var íslenskt samfélag þegar komið í algjöra öng og í raun orðið gjaldfall á íslenska ríkinu og farið að lokast fyrir alla markaði. Erlend ríki voru farin að ásælast mjög hér aðstöðu. Þeir aðilar sem verða ráð- andi næstu árin í stjórnmálum og listalífi eru allir komnir fram og það var upplagt að hafa þennan inngang að þessu verki, árin 38 og 39,“ segir Páll. Allt frá barnaverndarmálum til svínaræktar Mikil heimildavinna liggur að baki skrifunum. Páll segir að til að hafa sem trúverðugasta stemn- ingu í verkinu hafi hann reynt að nota sem mest af samtímaheim- ildum, blöð, tímarit og endurminn- ingar. Bókin er sömuleiðis ríkulega skreytt af myndum sem Páll sótti á Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Þjóð- minjasafnið og einkasöfn. Sumar þeirra hafa aldrei komið fyrir sjónir almennings áður. „Þessi vinna var svoleiðis að það var alveg hægt að halda áfram enda- laust. Þegar þú ert kominn með allt undir, frá barnaverndarmálum og yfir í svínarækt og allt þar á milli. Ég hef ekki tölu á öllum greinum og myndum í bókinni en hún átti að verða 500 síður en endaði í kringum 1.100 síður.“ Tímabil sem er partur af lífi mínu Hefur þessi tími verið þér lengi hugleikinn? „Já, eigandi foreldra sem voru um tvítugt árið 1944 þá er þetta tímabil partur af minnisbanka manns og lífi. Ég var byrjaður að skoða það talsvert áður en að þessu verkefni kom,“ segir Páll sem liggur ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn: „Hvernig stendur á því að það var svona mikil þöggun um ein- staka hluti og hvers vegna er alltaf talað um það sama? Hvaða hags- munum þjónar það að tala alltaf um að nokkrar stelpur hafi sofið hjá erlendum hermönnum og sumar gifst þeim? Af hverju er það lykilat- riðið? Hvað er verið að breiða yfir? Af hverju breytist ástandið, eins og það var kallað, frá því að vera hug- tak um þá ótrúlegu veltu sem var í samfélaginu yfir í að ná um stelpur sem skemmtu sér með dátum?“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Páll Baldvin Baldvinsson hefur varið síðustu þremur árum í að skrifa sögu stríðsáranna á Íslandi. Bók hans, 1.100 síðna verk, kemur út í nóvember. Ljósmynd/ Hari 10 fréttaviðtal Helgin 23.-25. október 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.