Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 69
Hið fullkomna
léttvíns-snakk
Margir þekkja það að fá sér rauðvín
og osta. Samsetning sem hefur
verið vinsæl um allan heim svo
öldum skiptir. Í dag er svokallað
snakk með léttvíni mjög fjölbreytt
og misjafnt eftir víntegundum, og
bjór. Hér eru hugmyndir að góðum
bakka sem hentar með rauðvíni,
hvítvíni og bjór.
Chorizo pylsa.
Prosciutto skinka.
Primadonna ostur.
Mildur geitaostur.
Chili-sultu uppskrift:
1 stk rautt chili
200 g frosin rauð paprika
2 hvítlauksgeirar
80 g tómatar í dós
150 g sykur
25 ml hvítvínsedik
Aðferð:
1. Setjið allt í pott og sjóðið í 30 mín
2. Maukið með töfrasprota
Uppskriftir frá
Vínbúðinni og Hagkaup
Maríneraðar ólífur
400 g blandaðar ólífur
5 msk. fersk bergminta, söxuð
1 haus fennel, skorinn í þunnar
sneiðar
1 stk. appelsína, safi og börkur
Þessar ólífur er frábært að bera
fram á hlaðborði, sem meðlæti,
eða hafa á miðju borði þar sem
allir ná til. Best er að hafa 3-4
tegundir af ólífum og velja þær
sem að ykkur þykja bestar. Blandið
ólífum, bergmintu og fennel saman
í skál. Raspið appelsínubörk yfir og
kreistið appelsínusafa yfir. Blandið
öllu vel saman.
Regína Ósk og Örn Árna sameina krafta sína á ný
við undirleik Jónasar Þóris á jólahlaðborði Hótel Sögu í Súlnasal.
Regína Ósk og Örn hafa heillað gesti í Súlnasal undanfarin ár.
Hinn eini sanni Siggi Hlö þeytir skífum fram á nótt.
Ekki missa af girnilegum jólakræsingum og frábærri skemmtun á Hótel Sögu.
Föstud. 20.11 Laugard. 21.11
Föstud. 27.11 Laugard. 28.11
Föstud. 04.12 Laugard. 05.12
Föstud. 11.12 Laugard. 12.12
Jólahlaðborð í Súlnasal. Verð kr. 10.500 á mann.
Bókaðu þinn hóp á hotelsaga@hotelsaga.is eða í síma 525 9930
www.hotelsaga.is