Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 78

Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 78
Það er mikið af nýju efni í þessu hjá okkur og við rifjum upp gamla karaktera sem koma ljóslifandi úr sjónvarpinu. Mér sýnist þeir allir pluma sig vel á stóru sviði, enda eru þeir margir stórir og grófir. www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 SPENNANDI FURDUSAGA Skuggasaga – Arftakinn er fyrsta bók Ragnheiðar Eyjólfsdóttur, margslungin og spennandi furðusaga fyrir alla aldurshópa sem bar sigur úr býtum í samkeppninni um Íslensku barnabókaverðlaunin 2015. Metsölulisti Eymundsson BARNABÆKUR VIKA 42 1. Þ að er alltaf fiðringur fyrir frumsýningu,“ segir Rand- ver Þorláksson leikari um frumsýningu Spaugstof- unnar í Þjóðleikhúsinu á laugardag. „Við gubbum samt ekki neitt. Við erum hættir því,“ segir hann. „Það er góður andi í hópnum og hefur alltaf verið. Ég var í fríi frá hópnum í einhvern tíma en það var ekkert mál að finna taktinn aftur. Þetta er allt á harða disknum og svo höfum við aldrei hætt alveg að vinna saman,“ segir hann. „Við unnum þetta saman að miklu leyti en svo kláruðu strákarnir þetta. Þetta er ekki beint efni úr sjónvarpinu, heldur meira blanda af efni sem við höfum verið að nota og skrifum upp á nýtt ásamt alveg glænýju. Þetta er svona kabarett með mörgum atriðum. Þetta er upprifjun,“ segir Randver. „Þetta eru hátíðahöld. Eru ekki allir að halda upp á afmæli,“ segir hann. „Það er mikið af nýju efni í þessu hjá okkur og við rifjum upp gamla karaktera sem koma ljós- lifandi úr sjónvarpinu. Mér sýnist þeir allir pluma sig vel á stóru sviði, enda eru þeir margir stórir og grófir. Við erum vanir þessu og flestir okkar búnir að vera sem áratugum skiptir í þessu húsi. Ég byrjaði 1970 hjá Þjóðleikhús- inu en er í dag kominn á aldur, eins og sagt er,“ segir Randver. „Það er fínt og ég get einbeitt mér að öðru. Ég vatt mér í ferðamennskuna og er leiðsögumaður. Ég er búinn að vera í því á fullu. Svo hef ég sinnt óperunni vel sem er mitt uppáhald og í rauninni það skemmtilegasta sem ég veit,“ segir hann. „Tónlistin og óperuformið inni- ber allt sem maður vill sjá í leikhúsi. Þetta er „maximum“ form og ég hef fylgst með óperum lengi. Við frumsýn- um á laugardaginn og það er að seljast vel. Við verðum allavega fram að jólum og svo sjáum við til,“ segir Randver. „Svo veltur þetta bara á eftirspurn eins og venjan er. Það er bara svo mikið og gott starf og prógram í Þjóðleikhúsinu að það kemst auðvitað ekki allt fyrir. Við vonumst til að fá sem flesta af þeim sem höfðu gaman af þessu í sjónvarp- inu á sínum tíma,“ segir Randver. „Þessir þættir voru auðvitað með alveg svakalegt áhorf þegar best lét og þetta var fjölskylduþáttur. Okkar helstu fylgjendur eru nú líklega farnir að reskjast, en það er von til þess að þeir vilji koma og rifja þetta upp með okk- ur,“ segir hann. „Spurning hvort börn þess tíma séu ekki líka bara fullorðið fólk í dag og taki sín börn á sýninguna til þess að kynna þau fyrir okkur. Þetta verður ekkert bannað börnum. Við vorum nú dæmdir á sínum tíma fyrir guðlast og klám, en þetta er ekki of gróf sýning. Við höfum möguleika á því líka að bæta inn efni ef það er eitthvað merkilegt sem gerist í fréttum, svo það er von á einhverju nýju í einhverjum sýningum,“ segir Randver Þorláksson leikari. Yfir til þín, er frumsýnt í Þjóðleikhús- inu á laugardag. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is  Kópavogur Fjölbreytt dagsKrá í menningarhúsum Nóg að gera í haustfríinu Menningarhúsin í Kópavogi bjóða fjölbreytta dagskrá í haustfríi skólanna í bænum. Leikurinn hefst í Bókasafni Kópavogs morgun, laugardaginn 24. október, en þá verður boðið upp á brúðuleikhús klukkan 13 í Lindasafni og klukkan 15 í Hamraborg. Harry Potter maraþon fer fram í Hamraborg á mánudaginn 26. október og þriðjudaginn 27. október þegar sýndar verða fyrstu þrjár mynd- irnar um galdrastrákinn. Harry Potter og viskusteinninn verður sýnd klukkan 11 á mánudag, Harry Potter og leyniklefinn verður sýnd á þriðjudag klukkan 11 og Harry Potter og fanginn frá Azkaban verður sýnd á þriðjudag klukkan 14. Boðið verður upp á popp með bíóinu, að því er fram kemur í tilkynningu Kópavogs- bæjar. Gerðarsafn býður upp á ókeypis tveggja daga skúlptúr- námskeið fyrir 8-12 ára krakka. Námskeiðið fer fram í haustfríi skóla Kópavogsbæjar – mánudag- inn 26. október og þriðjudaginn 27. október klukkan 13-15. Linn Björklund myndlistarmaður leiðir námskeiðið. Gerðir verða skúlptúrar en námskeiðinu lýkur á sýningu á verkunum í Stúdíó Gerður á neðri hæð safnsins. Ókeypis er inn og allir velkomnir. Námskeiðið tekur um tvær klukkustundir hvorn dag. Í Náttúrufræðistofu Kópavogs verður smásjáin dregin fram dagana 24.-27. október og geta börn og fullorðnir skoðað dýr í smásjánni og fræðst nánar um þau.  leiKhús ný sýning spaugstoFunnar í ÞjóðleiKhúsinu Gubbum ekki fyrir sýningu Spaugstofan er fyrir löngu orðin stofnun í íslensku gríni og leiklistarlífi. Fyrir 30 árum mynduðu fimm kumpánar hóp sem tók að hittast reglulega og hafa í flimtingum flest milli himins og jarðar. Sumir kölluðu þá rugludalla, aðrir kölluðu þá snillinga, enn aðrir dóna, klámhunda og guðlastara. Sjálfir kölluðu þeir sig Spaugstofuna. Þetta samstarf reyndist í meira lagi vana- bindandi – og enn hefur þeim ekki tekist að hætta. Nú birtast þeir á Stóra sviði Þjóðleikhússins í sýningunni Yfir til þín, og hafa líklega aldrei verið ruglaðri. Að minnsta kosti er þeim ennþá ekkert heilagt. Randver Þorláksson segir grínið allt vera til staðar á harða diskinum. „Okkar helstu fylgjendur eru nú líklega farnir að reskjast, en það er von til þess að þeir vilji koma og rifja þetta upp með okkur,“ segir Randver en Spaugstofan er 30 ára. Ljósmynd/Hari 78 menning Helgin 23.-25. október 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.