Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 76
Tónleikar TexTasmiður almúgans læTur Til sín Taka
Sálfræðingar og geðlækn-
ar koma í tíma til mín
Hljómsveitin Thin Jim sendi á dögunum frá sér lagið Ást úr steini sem er samið af þeim Mar-
gréti Eir, söngkonu sveitarinnar, og Jökli Jörgensen bassaleikara, sem semur tónlist og texta
sveitarinnar. Jökull er mikill Reykvíkingur og er annt um borgina og er textinn tileinkaður
Reykjavíkurborg. Honum finnst mikil neikvæðni í borginni þessa dagana. Mikið um mótmæli
og fólk er ósátt við ráðamenn borgarinnar. Jökull ákvað að þetta væri besti tíminn til að
koma með mjúkan og róandi tón inn í höfuðborgina. Reykjavík ber með sér mikinn þokka og í
leiðindum og hversdagsleikanum gleymist það gjarna.
J ökull Jörgensen, bassaleik-ari og lagahöfundur Thin Jim, er rakari. Hann hefur
klippt og rakað Reykvíkinga um
árabil á Rakarastofu almúgans
sem hann rekur á Laugaveg-
inum. Hann segir starf rakarans
oft vera eins og sáluhjálp. „Það
er auðvitað mikil neikvæðni allt í
kringum okkur. Maður þarf ekki
annað en að opna Facebook þar
sem neikvæðnin er mjög ráðandi,
og Íslendingar eru fóðraðir af nei-
kvæðni alla daga,“ segir hann.
„Það gleymist oft að líta á það
sem jákvætt er. Ég var orðinn
svo leiður á þessari neikvæðni
og fór að hugsa til þess þegar ég
var lítill gutti, áhyggjulaus heima
hjá mér. Þá var hlustað á óskalög
sjúklinga og sjómanna og þá voru
þessi rómantísku lög sem voru
sungin. Lögin sem Elly og Villi
sungu ásamt fleirum sem voru
alltaf smá halló, en svo fallega
saklaus. Mig langaði að gera
eitthvað sem væri afturhvarf til
þessara laga,“ segir hann. „Gefa
borginni smá séns. Þetta er góð
borg og mig langaði að benda á
það sem er svo gott og fallegt.
Ég er búinn að vera með rak-
arastofuna á Laugaveginum í 30
ár í ár,“ segir Jökull. „Í gegnum
tíðina hafa geðlæknar og sálfræð-
ingar komið í tíma til mín,“ segir
hann og hlær. „Frægir geðlæknar
koma kannski tvær vikur í röð í
stólinn. Það er auðvelt fyrir sæmi-
lega greindan mann að finna púls-
inn í samfélaginu með því að reka
rakarastofu. Ég gæti skrifað heilu
bækurnar um það sem gerist í
götunni. Um daginn kom til mín
maður sem fannst ég full fínn í
tauinu fyrir að kalla mig rakara
almúgans,“ segir hann. „Ég sagði
honum að það væri ekkert göfugt
við fátækt, en ekki við ríkidæmi
heldur. Almúgamaður er huglægt
ástand og spurning um hjarta-
lag,“ segir Jökull.
Thin Jim er hljómsveit Jökuls
og Margrétar Eirar söngkonu,
sem einnig er sambýliskona
hans. Sveitin er alltaf að og segir
Jökull svona verkefni vera skuld-
bindingu. „Þetta er eins og hvert
annað barn og svona verkefni er
hugsað sem lífvera sem maður
hefur alið af sér, og það verður
alltaf til,“ segir hann. „Þetta er
vettvangur fyrir mína sköpun og
okkar. Þetta lag er það fyrsta sem
við Margrét semjum saman, og
bara það fyrsta sem hún semur
yfir höfuð. Sem segir manni að
það er aldrei of seint. Það er alltaf
von,“ segir hann. „Sem er einmitt
inntakið í textanum. Það er alltaf
von. Þetta er lag vonarinnar.
Mér finnst oft vanta rómantík og
skáldskap í textum í dag og við
verðum að hafa þessa hluti uppi
við til þess að hafa svigrúm fyrir
ímyndunaraflið,“ segir Jökull
Jörgensen, tónlistarmaður og
rakari almúgans.
Thin Jim heldur tónleika á Ró-
senberg laugardaginn 31. október
og mun frumflytja nýja lagið, Ást
úr steini, ásamt fleira af nýju efni
í bland við önnur lög sveitarinnar
og annarra.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Jökull Jörgensen og
Margrét Eir sömdu
saman lagið Ást
úr steini. Þau búa
saman og stíga
einnig á stokk
saman með hljóm-
sveitinni Thin Jim.
Ljósmynd/Hari
SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
360°
SNÚNINGUR
FARTÖLVA,
STANDUR OG
SPJALDTÖLVA
QHD+IPSFJÖLSNERTISKJÁR MEÐ178° SJÓNARHORNI
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
2
DAGA
TILBOÐ
VERÐ ÁÐUR 1
99.900
4BLS
BÆKLINGURSTÚTFULLUR AF ÖLLUM HEITUSTU TÖLVU-GRÆJUNUM
YOGA 3 PRO
Sú allra flottasta frá L
enovo
og ein glæsilegasta fa
rtölvan
í dag QHD+ IPS fjölsn
ertiskjá
sem hægt er að snúa
360° og
mögnuðu JBL Waves
Audio!
169.900
Sími: 5 700 900 - prooptik.is
Skráðu þig í netklúbbinn okkar á prooptik.is og
þú færð 25% afslátt af linsum í öllum verslunum Prooptik
25% afsláttur af linsum
í netklúbbnum okkar!
Söngskólinn í Reykjavík
Næsta 7 vikna námskeið vetrarins
hefst 26. október 2015 og lýkur 11. desember.
Einnig er hægt að fá einkatíma í söng - fjöldi tíma samkomulag
SÖNGNÁMSKEIÐ
Nánari upplýsingar
www.songskolinn.is / ☎ 552-7366
Allir geta fundið eitthvað fræðandi og skemmtilegt við sitt hæfi!
• Fyrir fólk á öllum aldri:
Sem undirbúningur fyrir frekara söngnám
eða tómstundagaman fyrir söngáhugafólk
• Kennslutímar: Morguntímar / Síðdegistímar / Kvöldtímar
• Söngtækni: Raddbeiting / Túlkun / Einsöngur / Raddaður söngur
• Tónmennt: Tónfræði / Tónheyrnarþjálfun / Nótnalestur
76 menning Helgin 23.-25. október 2015