Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 40
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-15 ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM MÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI Mósel Basel HavanaRoma Torino Með nýrri AquaClean tækni er nú hægt að hreinsa nánast alla bletti aðeins með vatni! Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu, léttvín, kaffi, te, meira að segja kúlupenna, nást á auðveldan hátt úr áklæðinu. Áklæði mæta á svæðið og hann sogast aftur inn í þessar klassísku viðjar.“ Enn einn kallinn með endurminningar Þegar þú talar um bókina þá segirðu alltaf að þetta sé lýsing á meðgöngu, getur þú sem femínisti notað þá líkingu? Veistu eitthvað hvernig það er að ganga með barn? „Nei, en mér fannst það ágætis leið til að lýsa þessu, en það er best ég hætti því. Svona gamlir femínistar eins og ég þurfa sífellt að vera í endurmenntun og nú er að skrá sig á nýtt námskeið. Ég hafði einmitt smá áhyggjur af því hvað það eru margir karlmenn að skrifa endurminningar sínar núna og hvað þetta er orðin vel mönnuð bókmenntagrein, til dæmis eru tvær eða þrjár bækur á þessari vertíð endurminningabækur miðaldra karla eins og ég er orðinn. En auðvitað heldur fólk áfram að skrifa æviminningar og hver mað- ur á víst bara eina ævi, og hjá sumum er hún karlkyns. En ég varð samt að finna mína leið, reyndi að gera þetta aðeins öðruvísi.“ Listamaðurinn sem þú gekkst með í þessa níu mánuði var ekki rithöfundurinn heldur myndlistarmaðurinn, eða hvað? „Ja, nú er að lesa bókina… Að vera ófæddur listamaður er dálítið eins og að vera inni í skápnum en vita samt ekkert hvað samkynhneigð er. Maður gat ekki útskýrt þetta fyrir neinum, en var að bögglast með þetta einn og það var ekki svo létt.“ Sambúð var frelsisskerðing andskot- ans Þú varst alltaf alveg einn, áttir aldrei neinar kærustur og leitaðir ekki einu sinni eftir því. Varstu hræddur við sambönd? „Já. Þegar maður er í svona erfiðu sambandi við sjálfan sig þá er ekkert pláss fyrir þriðju manneskj- una. Það var líka ákveðinn ótti í mér við að binda mig og algjört tabú í mínum augum að fara í sambúð. Það var frelsisskerðing and- skotans að fara að búa með konu sem gæti svo orðið ólétt og þá væri lífið bara búið! Ég var mjög hræddur við það.“ Hvaðan hafðirðu þessa fyrirmynd af hinu frjálsa listamannalífi? „Ég var eingyðistrúar og dýrkaði Marcel Duchamp, skrifa mikið um það í bókinni. Þessi franski myndlista- maður sem bjó mest í New York var stóra fyrirmyndin mín, ég lagðist í djúpar stúder- ingar á honum og bókin fjallar líka um þær. Hann var leiðtogi lífs míns. Svona framan af. Svo fékk ég nóg af honum, list hans er auðvitað mjög vitræn. Ungt fólk tekur gjarnan svona trú á eitthvað, hvort sem það er kommúnismi, anarkismi, dauðarokk eða í þessu tilfelli dadaískur konsept-snill- ingur með stærðfræðigáfu, og trúir á það eingöngu. Æskan er alltaf soldið fasísk hvað þetta varðar, þarf haldreipi í óreiðukennt líf sitt. En svo kemur að því að maður þroskast, vex upp úr þessu og leggur æskugoðið til hliðar, hættir vera einfaldur aðdáandi og fer að gera sína eigin hluti.“ Þú passaðir ekki inn í þær kreðsur sem þú varst í þarna í München, fílaðir ekki borgina, fannst þig ekki í náminu, hvers vegna fórstu ekki bara eitthvert annað? „Það er góð spurning, en mér bara datt það ekki í hug. Ég er svo skyldurækinn sérðu, var búinn að komast inn í skólann og leigja mér herbergi og það hvarflaði aldrei að mér að gefast upp. Ég hélt þetta út fram á vorið 1982 og þá bara fór ég heim og hóf minn feril upp á eigin spýtur, fór að mála og sýna.” Óttast viðbrögð barnanna „The rest is history“ eins og sagt er. Hall- grímur hélt sína fyrstu einkasýningu 1984, flutti til New York og síðan Parísar, var með goðsagnakennda pistla á Rás 2, gaf út sína fyrstu bók árið 1990 og er löngu orðinn einn virtasti rithöfundur og mynd- listamaður þjóðarinnar. Var erfitt að takast á við þennan unga týnda mann frá 1981? „Já, það var soldið erfitt, en létt líka, því það er að mörgu leyti auðveldara að skrifa um hluti sem maður hefur sjálfur upplifað, í stað þess að þurfa að skálda allt út í loftið. Erfið- leikarnir sneru þá mest að því hverju bar að sleppa og síðan hinu: Að horfast aftur í augu við þá hluti sem gerðust. Um suma kafla fékk ég þau komment frá yfirlesurum að þeir væru ekki nógu sannfærandi, þá hafði Það var frelsisskerðing andskotans að fara að búa með konu sem gæti svo orðið ólétt og þá væri lífið bara búið! Ég var mjög hræddur við það. 40 viðtal Helgin 23.-25. október 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.