Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 22
B Blaðaauglýsingar Samtaka um Betri spítala á betri stað hafa vakið athygli að undanförnu en þar segja nafngreindir einstaklingar, sem jafnframt kosta auglýsingarnar, að sterk rök bendi til þess að ódýrara, fljótlegra og betra verði að byggja nýjan Landspítala frá grunni á besta mögulega stað, fremur en byggja við og endurnýja gamla spítalann við Hringbraut. Skorað er á alþingi og ríkisstjórn að láta gera nýtt staðarval með opnum og faglegum hætti. Í hópi þeirra sem senda áskorunina eru margir heil- brigðisstarfsmenn en meðal þess sem þeir telja að skoða þurfi er stofnkostnaður og rekstrarkostnaður „bútasaum- aðs“ spítala annars vegar og nýs spítala á „betri stað“ hins vegar, áhrif hækkandi lóða- verðs í miðbænum, umferðar- þungi og nauðsynleg umferð- armannvirki, byggingartími, ferðatími og ferðakostnaður notenda spítalans eftir staðsetningum og hversu aðgengilegir bráðaflutningar eru með sjúkrabílum og þyrlum. Fyrir liggur þingsályktun frá því í fyrra þar sem Alþingi fól ríkisstjórninni að byggja upp spítalann við Hringbraut og eftir þeirri ályktun vinnur heilbrigðisráðherra. Ráðherrann fól fyrr á árinu Nýjum Landspítala ehf. að hefj- ast handa við undirbúninginn. Áskorenda- hópurinn sem vill mat á staðarvalinu bend- ir hins vegar á að margt vinnist með því að byggður verði nýr spítali á „besta mögulega“ stað. Það sé fjárhagslega hagkvæmt því selja megi núverandi eignir sem losna, þörf fyrir umferðarmannvirki verði minni og árlegur kostnaður lægri. Þá verði fljótlegra að byggja á nýju svæði. Góðir stækkunarmöguleikar séu enn fremur gríðarlega verðmætir þar sem notendum spítalans muni stórfjölga á næstu áratugum og fyrirséð að spítalinn þurfi að stækka mikið. Þó búið sé að eyða 3-4 milljörð- um króna í undirbúning fyrir spítala við Hring- braut margborgi sig að byggja nýjan spítala frá grunni á besta mögulega stað og hluti undir- búningsins nýtist þar. Þeir sem vilja spítalann burt frá Hringbraut benda á að hagkvæmast sé að byggja nýjan spítala frá grunni, nálægt búsetumiðju höfuðborgarsvæðisins og nálægt stórum umferðaræðum. Svæðið kringum Víf- ilsstaði hefur verið nefnt í því sambandi. Þótt fyrir liggi þingsályktun um byggingu nýs spítala við Hringbraut hefur komið fram hjá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætis- ráðherra að til lengri tíma litið væri skynsam- legt að byggja nýjan spítala annars staðar en þar. Nýta mætti söluandvirði húsnæðis Land- spítalans við Hringbraut til að reisa nýjan spítala. Mat forsætisráðherra var að fá mætti meira en 21 milljarð króna fyrir húsin. Um staðsetninguna eru, og hafa lengi verið, skiptar skoðanir, hvort heldur er hjá almenn- ingi eða sérfræðingum. Fram hefur komið hjá Ásdísi Hlökk Theódórsdóttur, forstjóra Skipulagsstofnunar, að staðsetning spítal- ans við Hringbraut falli best að aðalskipulagi Reykjavíkur og markmiðum þess um þéttingu byggðar, auk nálægðar við háskólana tvo. Bygging nýs spítala hefur lengi verið í um- ræðunni enda endurnýjunar þörf. Starfsemi Landspítalans er á nærri tuttugu stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Það er óhagkvæmt rekstrarlega og óhagræði bæði fyrir sjúk- linga og starfsfólk. Athyglisverð er hins veg- ar niðurstaða könnunar meðal 800 íslenskra lækna um staðsetningu nýs Landspítala, sem Ríkisútvarpið greindi frá í mars síðastliðn- um. Þar kom fram að innan við 20% þeirra eru sáttir við að nýr spítali verði byggður á lóð þess gamla við Hringbraut. Hins vegar vilja 44% sérfræðilækna nýja spítalann ekki á þeim stað. Styrmir Gunnarsson, fyrrver- andi ritstjóri, vek að þessum niðurstöðum í pistli og sagði það vera mikið umhugsunar- efni að svo lítill stuðningur væri meðal lækna við staðsetningu nýs spítala við Hringbraut. Jafnframt er augljóst, sagði hann, að við Víf- ilsstaði er miklu meira svigrúm til uppbygg- ingar spítala til lengri framtíðar. Þar vitnaði hann meðal annars í Hróðmar Helgason, sér- fræðing í hjartaskurðlækningum barna, sem sagði staðsetninguna við Hringbraut í besta falli vafasama og benti á Vífilsstaði. „Sennilega er tímabært,“ sagði Styrmir í mars síðastliðnum, „að ítarlegri umræður fari fram um staðsetningu spítalans en fram hafa farið til þessa.“ Undir það skal tekið. Staðsetning nýs Landspítala Hringbraut eða „besti staður“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk- uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39 kuldaleg og spennandi Hvít sem mjöll er önnur bókin í finnska þríleiknum um Mjallhvíti – áhrifarík bók um stelpu sem á sér leyndardómsfulla fortíð. „Kuldaleg spenna … kraftmikil unglingabók.“ ÁM / MORGUNBLAÐIÐ 22 viðhorf Helgin 23.-25. október 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.