Fréttatíminn - 23.10.2015, Blaðsíða 28
Auðvitað
þarf maður
að næra sig
á þessum
langa tíma
og ég tók
inn svokall-
að gel sem
inniheldur öll
helstu nær-
ingarefnin,
en maður vill
síður vera
að stoppa til
þess að fara
á klósettið og
slíkt. Maður
þarf bara að
gera sitt á
hjólinu
Það kom
aldrei til
greina
að hætta
Verkfræðingurinn Geir Ómarsson er nýkominn frá Hawaii þar
sem hann keppti í einni stærstu aflþraut heims, svokölluðum
járnkarli. Geir var á meðal 2400 keppanda í járnkarlinum og
vann sér þátttökurétt sjö vikum fyrir keppni. Hann segir hugar-
farið hafa farið með sig alla leið, en viðurkennir að þreytan
hafi sagt til sín á lokametrunum. Hann kláraði keppnina á rétt
rúmum tíu klukkustundum og var á meðal þeirra 600 efstu.
Rúmlega 2000 manns kláruðu keppnina svo árangurinn var
nokkuð góður hjá fertugum verkfræðingi. Meðal þeirra sem
kláruðu ekki var kokkurinn góðkunni Gordon Ramsay.
É g var alltaf í handbolta og fót-bolta í gamla daga og síðan hef ég nú alltaf verið að skokka,
svona öðru hvoru,“ segir Geir Óm-
arsson, fertugur verkfræðingur sem
keppti á dögunum í stærstu Ironman
keppni heims, á Hawaii, eða svoköll-
uðum járnkarli. „Ég hafði öðru hvoru
farið í maraþon, eins og gengur. Svo
fyrir fimm árum þá plataði vinur
minn mig til þess að fara í hálfan
járnkarl hérna heima,“ segir hann.
„Eftir það setti ég það á fimm til tíu
ára planið að taka heilan. Þessi vinur
minn er samt löngu hættur, en hann
er að byrja aftur,“ segir Geir.
Mikill hiti á Hawaii
Þríþrautin getur verið allskonar vega-
lengdir, en járnkarlinn er stærsta
keppnin þar sem lengstu vegalengd-
irnar eru farnar í hverri þraut. Geir
tók þátt í Ironman í Kaupmannahöfn
í lok ágúst og vann sér þátttökurétt-
inn til þess að keppa á mótinu sem
haldið var í Kona á Hawaii. „Þetta er
allt tekið í einni beit, með skipting-
um á milli greina,“ segir hann. „Þeir
hröðustu eru rúma 8 tíma að þessu
og þeir síðustu fá 17 tíma til þess að
klára. Ég var tíu tíma og tuttugu og
fimm mínútur,“ segir Geir. „Ég hafði
vonast til þess að fara hraðar. Ég var
í rauninni ennþá þreyttur eftir keppn-
ina í Kaupmannahöfn. Þeir sem eru
að þessu að atvinnu keppa í mesta
lagi þrisvar á ári, en keppnin í Dan-
mörku var bara sjö vikum áður, sem
er of stutt,“ segir hann.
„Þetta er dellusport eins
og annað og það er auðvelt
að missa sig í því að kaupa
dýrustu og flottustu hjólin og
hjálmana. Það er samt ekkert
mál að keppa í þríþraut á
fjallahjólinu sínu og synda
bara í venjulegri sundskýlu.
Það geta allir tekið þátt.“
Ljósmynd/Hari
Geir kemur í mark í Járnkarlinum í Kona á Hawaii. Gleðin
leynir sér ekki enda búinn að keppa í 10 klukkutíma.Framhald á næstu opnu
28 viðtal Helgin 23.-25. október 2015