Fréttatíminn - 23.10.2015, Síða 10
GRÍPUR MEIRA EN ATHYGLINA
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is
Verð frá aðeins
2.290.000 kr.
Þér á eftir að líka vel við ŠKODA Fabia. Glæsileg hönnunin nær niður í minnstu smáatriði og gerir aksturinn
skemmtilegri hvert sem þú ferð. Það er engin tilviljun að ŠKODA Fabia skyldi vera valinn bíll ársins af WhatCar?
og hljóta Red Dot hönnunarverðlaunin 2015. Komdu og prófaðu nýjan ŠKODA Fabia. Hlökkum til að sjá þig.
Fabia – nýi verðlaunagripurinn frá ŠKODA
Ellefu hundruð síðna
stríðsárabók Páls Baldvins
Páll Baldvin Baldvinsson hefur varið síðustu þremur árum í að skrifa sögu stríðsáranna á Íslandi.
Hann lagði upp með að bókin yrði 500 síður en hún tvöfaldaðist að umfangi og vel það enda um-
fjöllunarefnin allt frá barnaverndarmálum til svínaræktar – og allt þar á milli.
É g byrjaði að vinna að þessu fyrir rúmum þremur árum en þetta er gömul hugmynd
sem ég hafði rætt við Jóhann Pál
fyrir löngu, að búa til stríðsára-
sögu,“ segir Páll Baldvin Baldvins-
son, bókmenntafræðingur og lands-
kunnur gagnrýnandi.
Páll Baldvin hefur látið lítið fyrir
sér fara síðan hann hætti sem bóka-
gagnrýnandi hér á Fréttatímanum
fyrir þremur árum. Hann hefur set-
ið við skriftir og í næsta mánuði er
afrakstur vinnu hans væntanlegur í
verslanir; ellefu hundruð blaðsíðna
stórvirki um stríðsárin á Íslandi.
Bókin nefnist Stríðsárin 1938-1945.
Vildi stækka sviðið
„Það hefur mikið verið skrifað
um þennan tíma en hugmyndin var
að reyna að finna einhvern víðari
fókus en verið hefur í þeim ritum
sem hafa komið út – eftir Gunnar
M. Magnúss, Tómas Þór Tómasson
og Þór Whitehead. Ég vildi stækka
aðeins sviðið og ekki fjalla bara um
tímann frá hernámi að stríðslokum.
Þess vegna nær bókin frá ársbyrjun
1938 fram til áramóta 1945,“ segir
Páll.
„Ástæðan er fyrst og fremst sú
að þá var íslenskt samfélag þegar
komið í algjöra öng og í raun orðið
gjaldfall á íslenska ríkinu og farið
að lokast fyrir alla markaði. Erlend
ríki voru farin að ásælast mjög hér
aðstöðu. Þeir aðilar sem verða ráð-
andi næstu árin í stjórnmálum og
listalífi eru allir komnir fram og það
var upplagt að hafa þennan inngang
að þessu verki, árin 38 og 39,“ segir
Páll.
Allt frá barnaverndarmálum
til svínaræktar
Mikil heimildavinna liggur að
baki skrifunum. Páll segir að til
að hafa sem trúverðugasta stemn-
ingu í verkinu hafi hann reynt að
nota sem mest af samtímaheim-
ildum, blöð, tímarit og endurminn-
ingar. Bókin er sömuleiðis ríkulega
skreytt af myndum sem Páll sótti á
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Þjóð-
minjasafnið og einkasöfn. Sumar
þeirra hafa aldrei komið fyrir sjónir
almennings áður.
„Þessi vinna var svoleiðis að það
var alveg hægt að halda áfram enda-
laust. Þegar þú ert kominn með allt
undir, frá barnaverndarmálum og
yfir í svínarækt og allt þar á milli.
Ég hef ekki tölu á öllum greinum
og myndum í bókinni en hún átti að
verða 500 síður en endaði í kringum
1.100 síður.“
Tímabil sem er partur af lífi
mínu
Hefur þessi tími verið þér lengi
hugleikinn?
„Já, eigandi foreldra sem voru um
tvítugt árið 1944 þá er þetta tímabil
partur af minnisbanka manns og
lífi. Ég var byrjaður að skoða það
talsvert áður en að þessu verkefni
kom,“ segir Páll sem liggur ekki
á skoðunum sínum frekar en fyrri
daginn:
„Hvernig stendur á því að það
var svona mikil þöggun um ein-
staka hluti og hvers vegna er alltaf
talað um það sama? Hvaða hags-
munum þjónar það að tala alltaf um
að nokkrar stelpur hafi sofið hjá
erlendum hermönnum og sumar
gifst þeim? Af hverju er það lykilat-
riðið? Hvað er verið að breiða yfir?
Af hverju breytist ástandið, eins og
það var kallað, frá því að vera hug-
tak um þá ótrúlegu veltu sem var í
samfélaginu yfir í að ná um stelpur
sem skemmtu sér með dátum?“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Páll Baldvin Baldvinsson hefur varið síðustu þremur árum í að skrifa sögu
stríðsáranna á Íslandi. Bók hans, 1.100 síðna verk, kemur út í nóvember. Ljósmynd/
Hari
10 fréttaviðtal Helgin 23.-25. október 2015