Fréttatíminn - 23.10.2015, Síða 6
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16
RÝMUM
TIL FYRIR
NÝJA TÍMA
VEGNA BREYTINGA Á VERSLUN
OKKAR Í FAXAFENI BJÓÐUM VIÐ
SÝNINGAREINTÖK OG ELDRI
GERÐIR AF ÝMSUM VÖRUM
MEÐ 20–50% AFSLÆTTI.
…… NÚ ER TÆKIFÆRIÐ ……
STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR
SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL.
Þjóðfundar-
fyrirkomulagið
virkaði mjög
vel og tryggði
þátttöku allra.
Nóbelssýning í
Þjóðarbókhlöðunni
Sýning í Þjóðarbókhlöðunni í tilefni þess að
60 ár eru liðin frá því að Halldór Laxness
hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels verður
opnuð næstkomandi þriðjudag, 27. október,
klukkan 17. Sýningin er í samstarfi Gljúfra-
steins – húss skáldsins, RÚV og Lands-
bókasafns Íslands - Háskólabókasafns. Á
sýningunni gefur að líta margvísleg skjöl úr
skjalasafni Halldórs Laxness sem varðveitt er
í Þjóðarbókhlöðunni, muni frá Gljúfrasteini
og Nóbelsverðlaunin sjálf sem eru í vörslu
Seðlabanka Íslands. Þá hefur RÚV unnið
sérstakan vef sem tileinkaður er Nóbelsverð-
launum Halldórs Laxness. Vefurinn verður
aðgengilegur á snertiskjá á sýningunni.
Sýningin stendur fram í mars 2016.
Alvogen verðlaunað
í Madríd
Lyfjafyrirtækið Alvogen vann til
verðlauna á alþjóðlegri lyfjasýningu
í Madríd í síðustu viku. Það var
alþjóðlega fagtímaritið Generics
Bulletin sem stóð fyrir verðlaun-
unum. Alvogen fékk fjórar til-
nefningar af 13 sem í boði voru og
hlaut verðlaun fyrir Fyrirtæki ársins
í Evrópu fyrir uppbyggingu sína í
Mið- og Austur Evrópu, meðal annars
fyrir markaðssetningu á fjölmörgum
líftæknilyfjum. Alvogen hefur vaxið
hratt á helstu mörkuðum á svæðinu
og þá sérstaklega í Rússlandi þar
sem fyrirtækið keypti nýlega fimm
hormónalyf af lyfjafyrirtækinu Bayer.
Rjúpnaveiðin hafin
Rjúpnaveiðin er hafin þetta haustið. Veiðidagar rjúpu
verða tólf og skiptast á fjórar helgar á tímabilinu
23. október til 15. nóvember 2015, þ.e. frá og með
deginum í dag, föstudaginn 23. október, til sunnudags
25. október. Síðan föstudaginn 30. október til
sunnudags 1. nóvember. Þá föstudaginn 6. nóvember
til sunnudags 8. nóvember og loks föstudaginn 13.
nóvember til sunnudags 15. nóvember. Náttúrufræði-
stofnun Íslands metur veiðiþol rjúpnastofnsins 54
þúsund rjúpur. Sölubann á rjúpum er í gildi. Megin-
stefna stjórnvalda er að nýting rjúpnastofnsins skuli
vera sjálfbær og að rjúpnaveiðimenn stundi hóflega
veiði til eigin nota, að því er fram kemur á vef um-
hverfis- og auðlindaráðuneytisins. Heildarveiði rjúpu
hefur minnkað töluvert á undanförnum árum. Eru
veiðimenn hvattir til að veiða ekki fleiri rjúpur en hver
og einn þarf. Veiðiverndarsvæði er áfram á SV-landi.
Menningarmála-
ráðherra Dana
með fyrirlestur
Í ár eru liðin 100 ár frá því að
danska var fyrst kennd við Háskóla
Íslands. Af því tilefni flytur Bertel
Haarder, menningarmálaráðherra
Danmerkur, fyrirlestur á vegum
Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í
erlendum tungumálum við Háskóla
Íslands. Fyrirlesturinn, sem ber
heitið „Sprog og kultur skal binde
os sammen – før, nu og i fremtiden“,
fer fram í Odda 101 þriðjudaginn 27.
október klukkan 17.
Háskólaárið 1915-1916 kenndi
Holger Wiehe danska tungu og
bókmenntir og einnig sænsku við
Háskóla Íslands. Hann var fyrstur
margra sendikennara í dönsku, sem
hingað hafa komið á vegum danskra
stjórnvalda.
É g var mjög ánægð með fundinn og þann vilja til að lækka byggingarkostnað og húsnæðisverð sem við fundum fyrir þar, sem
og vilja til að finna lausnir,“ segir Eygló.
Verkefnið byggir á samþykkt ríkisstjórn
arinnar um aðgerðir á sviði húsnæðis
mála í tengslum við gerð kjarasamninga
síðastliðið vor. Tilgangur fundarins var
að stilla saman strengi allra þeirra sem
þurfa að koma að verkefninu og fá fram
góðar hugmyndir að leiðum til að lækka
byggingarkostnað. Til fundarins voru
boðnir allir helstu hagsmunaaðilar sem
málefnið snertir. Breytingar á bygg ing
ar reglu gerð, lægri fjár magns kostnaður,
aukið fram boð lóða, betri nýt ing rýma
og bætt skipu lag á sveita stjórn arstigi
var meðal þess sem rætt var á fundinum.
Hægt að lækka byggingarkostnað
um 10-15%
Ráðherr arn ir Eygló Harðardótt ir,
Ragn heiður Elín Árna dótt ir og Sigrún
Magnús dótt ir hófu fundinn á að fara
stutt lega yfir stöðuna í húsnæðismálum.
Eygló sagði mark miðið vera þjóðarátak
til að lækka bygg ing ar kostnað. Hún
greindi frá því að milli 1015 manns
koma að því að byggja hús, frá því verður
til á pappír og þar til það er fullbyggt og
mik il vægt væri að hver og einn þeirra
myndi leita leiða til að lækka kostnaðinn.
„Ef hver aðili sparar um 1% má lækka
kostnað við byggingu húsnæðis um 10
15%.“ Markmið verkefnisins er jafnframt
að skoða lausnir á sviði húsnæðismála
í víðu samhengi með það að leiðarljósi
að auka fjölbreytni og framboð á hag
kvæmu húsnæði, ekki síst fyrir ungt
fólk og tekjulágt. „Ofan á stöðuna í dag,
þar sem vönt un er á ákveðnum stærðum
hús næðis, eru einnig stór ar kyn slóðir að
koma á markaðinn,“ segir Eygló.
Upphafsfundurinn aðeins fyrsta
skrefið
Á fund in um var unnið með svo kölluðu
þjóðfund ar fyr ir komu lagi þar sem fólki
var skipt niður á borð og hug mynda
vinna átti sér stað um helstu verk efn
in framund an. Allar hugmyndir voru
skráðar niður og stefnt er að vinna með
þær í fram hald inu. „Fyrirkomulagið
virkaði mjög vel og tryggði þátttöku
allra,“ segir Eygló. Fundurinn er hins
vegar aðeins fyrsta skref verkefnis
ins. Framhaldsvinnan verður í höndum
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og segir
Eygló að stefnt sé á að fara af stað með
ákveðið klasasamstarf. „Við teljum að
verkefnið „Vandað, hagkvæmt, hratt“
ætti að vera fyrsta verkefni klasans.
Jafnframt erum við að huga að sam
keppni um hagkvæmar húsnæðislausnir
þar sem sigurtillögur yrðu byggðar
og gerðar aðgengilegar.“ Aðspurð um
næstu skref segir Eygló þau felast í að
flokka hugmyndirnar sem fram komu á
fundinum og senda áfram til þeirra aðila
sem tengjast tillögunum og bera ábyrgð
á framkvæmd þeirra. „Þetta eru ýmist
sveitarfélögin, fjármálafyrirtæki, stofn
anir og hagsmunasamtök á húsnæðis
markaðnum. Við munum biðja um svör
um hvernig megi útfæra og vinna hug
myndirnar frekar.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Húsnæðismál nýtt verkefni um Hagkvæmt Húsnæði
Fyrsta skrefið í átt að lausn
við húsnæðisvandanum
Hátt í þrjú hundruð manns mættu á upphafsfund verkefnis ríkisstjórnarinnar um hagkvæmt hús-
næði sem fór fram í Reykjavík í gær, fimmtudag. Ráðherrar húsnæðismála, umhverfismála og
iðnaðar standa að verkefninu sem hefur fengið yfirskriftina „Vandað, hagkvæmt, hratt.“ Eygló
Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að brýnast sé að finna lausnir til að lækka
byggingarkostnað og húsnæðisverð.
Hátt í þrjú hundruð manns mættu á upphafsfund verkefnisins ríkisstjórnarinnar um hagkvæmt húsnæði sem fram fór á Hilton
Reykjavík í gær, fimmtudag. Verkefnið ber yfirskriftina „Vandað, hagkvæmt, hratt“ og er markmið þess að sameina alla helstu
hagsmunaaðila sem málefnið snertir og finna lausnir til að lækka byggingarkostnað og húsnæðisverð. Ljósmynd/Hari
Eygló Harðardóttir, hús-
næðis- og félagsmálaráð-
herra.
6 fréttir Helgin 23.-25. október 2015