Fréttatíminn - 23.10.2015, Page 12
Fljótleg og fersk
– þau koma á óvart á
kvöldverðarborðinu
Þ etta er alltaf púsl. Fjölskyld-an er ekki saman. Redda pössun eða taka krakka
með í vinnuna. Það er svona
stemningin,“ segir eitt þeirra for-
eldra sem Fréttatíminn ræddi
við um vetrarfrí og starfsdaga
kennara. Langflestir viðmælendur
tóku í sama streng þó sumir hafi
lært af reynslunni og eyrnamerki
sér nokkra sumarfrísdaga til að
eiga frí með börnunum. Það á þó
ekki við alla og reynist til dæmis
verktökum erfitt. „Ég er verktaki
og hef ekki efni á því að missa
úr vinnu í október en það eru 3
starfsdagar og 3 vetrarfrísdagar í
þessum mánuði. Þetta er heil vika
í vinnutap en samt sem áður býðst
okkur ekki frístund í vetrarfríinu.“
„Lausnin virðist vera að eyrna-
merkja nokkra sumarfrísdaga
á vetrarfríið til að dæmið gangi
upp. Það má því segja að vetrarfrí
sé í raun sumarfrí og að vetrarfrí
Vetrarfrí eða vetrarvandræði?
Vetrarfrí og starfsdagar kenn-
ara valda mörgum foreldrum
og atvinnurekendum hugar-
angri. Vetrarfrí grunnskólanna
hefur nú fengið 13 ára reynslu-
tíma og talsmaður borgarinnar
segir foreldra almennt vera
ánægða með fyrirkomulagið.
Samtök atvinnulífsins taka í
sama streng og telja atvinnu-
lífið hafa aðlagast breyttum
orlofsdögum. Það sama
gildi þó ekki um starfsdaga
kennara sem séu alltaf jafn
„óþolandi“.
ekki frá vinnu eða hafa ekki efni á
að taka sér frí.“
Borgin býður upp á fjölskyldu-
dagskrá
Helgi Grímsson, yfirmaður skóla-
og frístundasviðs borgarinnar
segir upphaf hugmyndarinnar um
vetrarfrí mega rekja til umræðu
meðal foreldra og skólafólks um
afar langa vinnulotu nemenda frá
skólabyrjun í ágúst og fram að
jólaleyfi. „Þessi vinnulota varð
mjög áberandi þegar skólaár var
lengt úr 170 dögum í 180 daga. Í
Reykjavík var ákveðið að hafa tví-
skipt vetrarleyfi og lengja skólann
sem því nemur fram á sumar. Var
vísað til góðrar reynslu foreldra
sem höfðu búið erlendis, en í Evr-
ópulöndum og víðar eru gjarnan
haust- og vetrarleyfi.“
Helgi segir Reykjavíkurborg
einnig hafa kannað viðhorf for-
eldra til vetrarfrís með reglu-
bundnum hætti og að í öllum
könnunum hafi fleiri verið sam-
þykkir þeim en á móti. „Vissulega
er það svo að sitt sýnist hverjum
þegar kemur að vetrarleyfum og
á það bæði við um foreldra og
starfsmenn skóla. Þess er gætt að
frídagar í leikskóla- og grunnskóla
í sama hverfi séu samræmdir eins
og frekast kostur er og eins er í
hverju hverfi borgarinnar útbúin
dagskrá sem á að stuðla að sam-
veru fjölskyldunnar,“ segir Helgi.
Atvinnulífið virðist hafa
aðlagast vetrarfríi
Ári eftir að vetrarfrí var sett á, árið
2002, tilkynntu Samtök atvinnu-
lífsins að þau væru reiðubúin til
að taka þátt í samráði um skipan
þessa mála og þannig stuðla að
því að vetrarfrí ylli sem minnstri
röskun fyrir atvinnulífið en frá
upphafi bárust samtökunum
margar kvartanir frá foreldrum
sem komust ekki frá vinnu. „Það
var mikil umræða um vetrarfrí
fyrst eftir að það var sett á,“ segir
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri SA. „Fólk hafði
mikið samband við okkur og var
greinilega í vandræðum með
þetta. En svo fjaraði þetta út og við
teljum að vinnumarkaðurinn hafi
aðlagast. Það má segja það að ein-
hverju leyti hafi orlofið færst yfir á
vetrartímann. Fólk er líklega farið
að skipuleggja sig betur og margir
fara í skíðaferðir sem hlýtur að
vera merki um aðlögun.“
„Óþolandi“ starfsdagar
SA gera reglulega kannanir þar
sem athugað er hvað betur mætti
fara í atvinnulífinu og Hannes
segir vetrarfríið ekki hafa komist
þar á blað. Hinsvegar ríki óánægja
með starfsdaga leikskóla. „Það
er alltaf jafn mikil óánægja með
ósveigjanleika leikskólanna, bæði
vegna sumarlokana og vegna
starfsdaganna. Þeir loka sinni
þjónustu í marga daga á ári bara
svo starfsfólkið geti rætt málin.
Þetta geta venjuleg þjónustufyri-
tæki auðvitað ekki gert. Þetta er
gert til að spara því annars þyrftu
þau að gera þetta utan vinnutíma
og borga fyrir það. Það er vanda-
mál og erfitt fyrir fólk að redda
sér þessa daga. Starfsdagar eru
viðvarandi vandamál sem ekki er
hægt að laga sig að. Þetta er alltaf
jafn óþolandi og við höfum reynt
að beita sveitarfélögin þrýstingi
hvað þetta varðar.“
Sveitarfélög velta kostnaði á
atvinnulífið
Ragnar Árnason, forstöðumaður
vinnumarkaðssviðs SA, segir at-
vinnulífið reyna eins og hægt er að
koma til móts við foreldra.
„Atvinnulífið hefur skilning á því
að foreldrar bera skyldur gagnvart
börnum sínum. Það er hins vegar
ergilegt hvernig sveitarfélög velta
miklum kostnaði yfir á foreldra og
atvinnulífið án nokkurrar umræðu
eða samráðs. Í skólum Hjallastefn-
unnar er boðið upp á frístund allan
daginn í vetrarfríinu gegn sann-
gjörnu gjaldi. Það gefur fjölskyld-
um valkost. „Vetrarfrí“ í október
er t.d. tími sem hentar sjaldnast til
sameiginlegrar frítöku fjölskyldu.
Mjög margir foreldrar eru því
ergilegir og telja sveitarfélög lítinn
skilning hafa á stöðu foreldra.“
Ragnar segir ekki hafa verið
rætt að taka upp almenna orlofs-
töku til samræmis við skóladaga-
tal sveitarfélaga. „Það gengur
ekki upp. Atvinnulífið er nýkomið
út úr sumarfrístörninni þegar
fyrstu vetrarfrí skella á. Við erum
að vinna að aukinni framleiðni í
rekstri og mikilvægt að hægt sé að
halda úti fullri þjónustu og fram-
leiðslu yfir veturinn.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
þýði ekki meiri samveru með börn-
unum, heldur dreifðari samveru,“
segir annar viðmælandi á meðan
enn annar segir hugmyndina um
vetrarfrí vera fallega en það sé þó
ekkert fallegt við það að „sum börn
fái frí með foreldrum á meðan önnur
sitji ein heima og horfi á sjónvarpið
því foreldrarnir annað hvort komast
Reykjavíkurborg gerði
könnun á afstöðu foreldra
til vetrarfrís árið 2012.
Ánægðir 48%
Óánægðir 31%
Hvorki né 21%
Í dag hefst vetrarfrí í grunnskólum Reykjavíkur sem þýðir að grunnskólar
og frístundaheimili loka í dag, föstudaginn 23. október, mánudaginn 26.
október og þriðjudaginn 27. október.
12 fréttaskýring Helgin 23.-25. október 2015